Jökull - 01.12.1975, Blaðsíða 57
3. Féll í desember 1973 utan Kdlfeyrar.
4. Snjóflóð úr Eyrarfjalli utan Flateyrar.
Hinn 11. febrúar 1974 hljóp þar úr þrem-
ur giljum hengjuhlaup. Efnismagn var
fremur lítið, það laskaði raflínuna Flateyri/
Suðureyri og náði i sjó fram.
5. Snjóflóð úr Eyrarfjalli féll 11. febrúar úr
gili utan við Skollahvilft og féll til sjávar
utanvert við Flateyrina. Snjóflóðið braut
þrjá staura í raflínunni Flateyri/Suðureyri
og tók stóran fiskhjall, sem útgerðarfélagið
Hjálmur átti. Hjallurinn stóð utan við
Goðahól. Það mölbraut hjallinn og flutti
niður í fjöru. Snjóflóðið fór niður nálægt
nýbyggðum húsum við Hjallaveg.
6. Snjóflóð úr Skollahvilft. Hinn 11. febrúar
féll snjóflóð úr Skollahvilft og í sjó fram.
Þarna falla iðulega snjóflóð (1953, 1969).
Snjóflóðið féll yfir kirkjugarðinn, en hann
var áður kominn á kaf i fönn, svo að
skemmdir urðu litlar eða engar. Háspennu-
línan hefur verið flutt og er nú strengd
yfir voginn innan Flateyrar, svo að hana
sakaði ekki.
7. Snjóflóð úr Skollahvilft. Hinn 11. febrúar
féll annað snjóflóð spölkorn innar. Það
kom einnig úr Skollahvilft — þar er þekkt,-
ur snjóflóðastaður og hefur oft valdið veru-
legu tjóni.
8. Snjóflóð úr innanverðri Skollahvilft féll
niður á milli Sólbakka og Hvilftar um 400
m breitt. Það féll mánudaginn 11. febrúar
kl. 13. Snjóflóðið braut fjóra staura x 33 kV
orkulínunni frá Mjólká og sleit línuna,
einnig tók það sjónvarpshús, sem var að
vísu niður lagt, en í því var talstöð frá
Landssíma Islands. Sjónvarpshúsið fannst
rekið handan fjarðarins, gjörónýtt. Það er
engin nýlunda að raf- og símalínur verði
þarna fyrir skakkaföllum. Nokkuð upp í
fjallshlíðinni var vatnsból (vatnstankur)
síldarverksmiðjunnar á Sólbakka. Vatns-
þróin skemmdist í snjóflóði 27. nóv. 1938.
10, 11 og 12. Snjóflóð á Selabólsurð.
Nr. 10. Hinn 11. eða 12. febrúar féll stórt
snjóflóð á Selabólsurð, nokkru utar en
venja er. Það lenti á eyðibýlinu Selakirkju-
bóli og braut húsin. Snjóflóðin, sem merkt
eru nr. 11 og 12, féllu 1969. Háspennulín-
una sakaði þó eigi, því að snjóflóðaplógur
var til varnar.
Mynd 2. Fig 2.
JÖKULL 25. ÁR 55
„ • ' V ' ‘ú
./V.J lí’fB V’