Jökull - 01.12.1975, Blaðsíða 58
Snjóflóð á Breiðadal. Dagana 11. eða 12.
febrúar 1974 féll snjóflóð nokkru innan við
Neðri-Breiðadal. Það var breitt og eyðilagði
girðingu á allstóru svæði. Það er ekki dreg-
ið inn á meðfylgjandi landabréf.
13 og 14. Snjóflóð hjá Veðrará.
Hinn 12. febrúar kl. 1 féll stórt snjóflóð
milli bæjanna Ytri- og Innri-Veðrarár. Upp-
tökin eru hengjuhlaup uppi undir brún.
Flóðið féll nálægt bænum Ytri-Veðrará.
Þvert á stefnu hlaupsins liggja tvær raflín-
ur. Önnur er 33 kV orkulína frá Mjólkár-
virkjun, úr henni tók flóðið sjö staura.
Staurabrot og víraslitur flutti snjóflóðið út
á miðjan fjörð. Þarna hafa oft fallið snjó-
flóð, t. d. á 17. öld og 1894. Nr. 14 á að
sýna það snjóflóð. Það féll nær Innri-Veðr-
ará og tók skemmu er stóð nokkrum metr-
um utar og neðan við bæinn.
15 og 16. Tvö snjóflóð, flekahlaup, féllu yfir
veginn hjá Tannanesi. Þau skemmdu ekki
raflínu, en brutu sex símastaura. Hið fyrra
féll mánudaginn 11. febrúar kl. 11, en hið
síðara féll aðfaranótt þriðjudagsins 12. fe-
brúar.
17. Sténrt snjóflóð úr tírðarskál féll niður fyrir
veg 11. eða 12. febrúar.
18. Mánudaginn 11. febrúar féll snjóflóð hjá
Kirkjubóli í Korpudal. Snjóflóðið tók gaml-
an hjall og snerti hlöðuhorn; þarna hafði
fallið snjóflóð í nóvember 1969.
19. 20. Tvö snjóflóð féllu innar í Korpudal 11.
—12. febrúar. Á ytri staðnum (Nr. 19) féll
snjóflóð í nóvember 1969. Báðir staðirnir
eru kunnir snjóflóðastaðir.
21. Árið 1949 voraði seint, snjó hlóð niður,
þótt komið væri fram í maí, þá sprakk
fram snjófylla inni undir Hádegisá á Bjarn-
ardal.
Viðauki. Raforkulínan fýkur um koll.
Ekkert snjóflóð féll á Bjarnardal í ofsaveðr-
inu 10.—13. febrúar 1974, en inn undir botni
Bjarnardals fauk 33 kV orkulínan frá Mjólká
hreinlega um koll. Það gerðist í afspyrnu NA-
fárviðri, sem gekk yfir Vestfirði 12. eða 13. fe-
brúar 1974. Ástæða er til að veita tvennu at-
hygli. Hið fyrra er: Línan, sem er vestan Bjarn-
ardalsár, fauk austur yfir ána og lá þar nokkurn
spöl uppi í brekkunni. Hún fór austur yfir,
þótt vindáttin yfir Vestfjörðum væri frá norð-
austri. Það hefur að því er virðist slegið æði
56 JÖKULL 25. ÁR
hastarlega fyrir af vestri í dalbotninum. Hitt
atriðið er, að þótt 15 staurar brotnuðu, þeir
ýmist kubbuðust eða rifnuðu langsum, þá slitn-
aði enginn af þremur vírum línunnar.
Snjóflóð
nr.
22 og 23. Snjóflóðakortið af Önundarfirði
sýnir tvo snjóflóðastaði á Bjarnardal. Smá
spýjur falla úr Kaldbak og niður fyrir veg.
Þetta gerist einkum eftir vestanátt.
24. Snjóflóðakortið vekur athygli á, að snjó-
flóð falla í Ófeeruhlið. Frá Ófæru og út að
Verbúð falla snjóflóð í flestum giljum og
það oft á hverjum vetri, einkum eftir vest-
anátt.
25. I febrúar 1974 féll snjóflóð úr Þorfinni og
niður á tún á Þorfinnsstöðum. Bóndinn á
Þorfinnsstöðum hafði gert sér grein fyrir
aðsteðjandi hættu og rutt með jarðýtu snjó-
dyngju mikilli til varnar fjallsmegin að bæ
sínum. Það dugði, er á reyndi.
Snjóflóð á Isafirði og í Bolungarvik. (Heim-
ildarmenn: Aage Steinsson, Isaf., og Benedikt
Benediktsson, Bolungarvík.)
Fyrsta snjóflóðið, sem vitað er um að félli
á Vestfjörðum í norðaustan stórhríðarveðrinu
dagana 9.—13. febrúar 1974 var í Eyrarfjalli við
Isafjarðarkaupstað.
Sunnudaginn 10. febrúar kl. 23 fór Hnífs-
dalslínan út. Snjóflóð hafði fallið utan við Pét-
ursborg, yfir veginn og niður í sjó. Það tók þrjá
staura úr 6 kV ísafj./Hnífsd.línunni og einn
staur úr 11 kV Bolungarvíkur/Ísafj.orkulínunni
án þess að slíta hana.
Snjóflóð féll mánudaginn 11. febrúar kl. 10
úr Miðhvilft Þórólfshyrnu og braut stauratví-
stæðu úr 11 kV Bolungav./Isafj.orkulínunni,
sem áður er nefnd, og sleit hana utan við
Fremri-Hnífsdal.
Aðfaranótt þriðjudagsins 12. febrúar féll snjó-
flóð niður innan við Grænagarð, þ. e. a. s. nú-
verandi Grænagarð. Það féll niður þar sem bær-
inn Grænigarður stóð, sem eyðilagðist í snjó-
flóði 15. febrúar 1916.
Arnór Jónsson á Seljalandsbúinu hafði seint
um kvöldið áður orðið að ganga frá bíl sínum
föstum í ófærð á veginum. Bíllinn var nýr og
stór vörubíll. Snjóflóðið þreif bílinn og færði
niður í fjöru og gjörónýtti hann. Flóðið tók
einnig þrjá staura úr 33 kV raflínu.