Jökull - 01.12.1975, Blaðsíða 67
Karl Waldorff, bílstjóri, Þiljuvöllum 22, 47 ára
Ólafur Eiríksson, vélstjóri, Mýrargötu 9, 58 ára
Ólafur Sigurðsson, ýtustjóri, Urðarteig 37, i9 ára
Stefán Sæmundsson, húsasmíðameistari, Þilju-
völlum 10A, 53 ára
Sveinn Davíðsson, bílstjóri, Miðstræti 20, 49 ára
Þórstína Bjartmarsdóttir, húsmóðir, Urðarteig
52, 26 ára, og synir hennar tveir:
Ágúst Sveinbjörnsson, 8 ára
Björn Hrannar Sigurðsson, 3 ára.
Hér var um þurr foksnjóflóð að ræða, blönduð
að gerð, svonefnd kóf- og flekahlaup. Einmitt
sú tegund snjóflóða, sem mannskæðust er hér
á landi. Fara þar saman tveir mikilvirkir þættir:
Ferlegt magn og leifturhraði. Snjókoma var mik-
il á Austfjörðum eftir 8. desember, einkum dag-
ana i6. til 19. des. Annað veifið kyngdi niður
í logni, en blés svo með háarenningi þess á milli.
Ríkjandi vindátt var N- og NA-átt, lægðir fóru
austur sunnan við land. Fannburður nefndra
desemberdaga verður að teljast aðalvaldur snjó-
flóðanna, en liuga skal lengra aftur í tímann, ef
rekja á aðdragandann að snjóflóðunum og or-
sakasamhengið. Mikill snjór kom í fjalllendi
austanlands í september. Hlákur um mánaða-
mótin okt/nóv. unnu ekki á fönninni að fullu.
1 nóvember lögðust snjóteppi og áfreðar á
strandfjöllin. Snjóhjúpurinn lokaði varma sum-
arsins inni, og má því ætla að ummyndun í
neðstu lögum snævarins hafi verið tiltölulega ör.
Hinn fyrsta vatnafræðilega þátt, sem mátti sín
nokkurs í þessu sambandi, er e. t. v. að finna í
síðustu viku ágústmánaðar, en þá sté grunnvatn
á Austurlandi í hæstu stöðu og stóð hátt út árið,
svo að vatn mun hafa verið til staðar að seytla
úr berggrunni og mynda svellbólstra, það jafn-
vel hátt til fjalls. Siðari hluta dags þ. 19. kyngdi
niður fádcema lognsnjó, sem var ósiginn, þegar
tók að skafa. Frá kvöldi þess 19. des. til hádegis
20., er snjóflóðin féllu, sté hitinn á Dalatanga,
sem er skammt frá Neskaupstað, úr —3° í —0,4°.
En einmitt við vaxandi lofthita er tíðni snjó-
flóða meiri heldur en í óbreyttu eða kólnandi
veðri.
Árið 1885, hinn 26. febr., féll snjóflóð á
Naustahvammsbæina og varð þremur manneskj-
um að bana, samanber Skriðuföll og snjóflóð II.
bindi bls. 315 og Jökul 1971, bls. 43. Þar hefur
verið að verki sama tegund snjóflóða og nú í
desember.
Hinn 24. janúar, 1894, féll snjóflóð á býlið
Þiljuvelli, sem stóð þar sem nú er nefnt Þilju-
vallatún hið ytra. Snjóflóðið braut útihús og
grandaði búpeningi, en manntjón varð ekki.
Flóðið stöðvaðist á melunum nálægt því, þar
sem nú stendur húsið Mýrargata 2. (Heimild:
Austurland, jólablað 1960.)
í Norðfirði falla bæði þurr og vot snjóflóð.
Þar fer eins og annars staðar, þegar málið er
kannað og rækilega er farið í saumana, að í ljós
koma vegsummerki snjóflóða og aðrar öruggar
heimildir, svo að snjóflóðin, sem hvergi eru
skráð og nær alveg fallin í gleymsku, skipta tug-
um. Á árinu 1974 féllu snjóflóð úr fjallinu ofan
við Neskaupstað milli Naustahvammslækjar og
Bakkagils, sem hér segir:
5 vot snjóflóð 4. febrúar
14 þurr snjóflóð 19.—21. desember
4 vot snjóflóð 28. desember.
23 snjóflóð samtals.
Þessu verða engin viðhlítandi skil gerð, nema
á snjóflóðakorti. Hjörleifur Guttormsson vinn-
ur nú að vönduðu og ítarlegu korti, og gera má
ráð fyrir, að Jökull birti það síðar.
NORÐURLAND, Ussember 1974
Snjóflóð á Múlavegi. (Heimikl: Dagur, Akur-
eyri 11. desember.)
Hinn 8. desember var bleytuhríð og hvöss
norðanátt á Dalvík. Þann dag fóru þaðan tveir
bílar áleiðis til Ólafsfjarðar. Voru tveir karl-
menn í öðrum bílnum, en hjón með fjögur
börn í hinum. Er fólkið hafði farið meira en
helming leiðarinnar, kom það að snjóflóði og
varð þá ekki lengra komist. Karlmennirnir
tveir skildu bíl sinn eftir og héldu gangandi til
Ólafsfjarðar, en fjölskyldan snéri við á bíl sín-
um til Dalvíkur. Þegar karlmennirnir símuðu
frá Ólafsfirði til Dalvíkur var fjölskyldan ekki
komin fram. Björgunarsveit Slysavarnafélagsins
hóf þegar leit og fann fjölskylduna inni króaða
milli tveggja snjóflóða.
Snjóflóð i Dalsmynni.
Skýrsla um snjóflóð í Dalsmynni ásamt snjó-
flóðakorti verður birt síðar í Jökli.
Snjóflóð i Ljósavatnsskarði.
Um 20. desember féll snjóflóð í Ljósavatns-
skarði austan Ljósavatns, á sama stað og árið
áður.
JÖKULL 25. ÁR 65