Jökull - 01.12.1975, Blaðsíða 50
1972
Snjóflóð i Auðbjargarstaðabrekku. Heimild:
Bjarni Gunnarsson, bóndi, Auðbjargarstöðum.
Sunnudaginn 23. janúar lentu fjórir menn á
rússneskri jeppabifreið í blindbyl og ófærð í
Auðbjargarstaðabrekku og urðu að ganga frá
bílnum. Áttin var vestlæg. Af hendingu komust
þeir í fjárhús frá Auðbjargarstöðum og síðar til
bæjar, er rofaði tii um nóttina.
Þegar gætt var að bílnum daginn eftir var
hann horfinn. Snjóflóð hafði tekið hann og
flutt nokkuð niður fyrir veg. Lítið sást móta
fyrir snjóflóðinu, en snjódyngjan var hörð
orðin.
Snjóflóð i Mánárskriðum. Heimild: Morgun-
blaðið 28. janúar 1972.
Hinn 26. janúar var NA-átt og snjókoma á
Norðurlandi. Talið var að i allt hafi 10 snjó-
flóð fallið á veginn í Mánárskriðum — sum all-
stór. Vegagerðarmenn unnu þar að snjómokstri
27. janúar.
Snjóflóð í Tálknafirði. Heimild: Utvarpsfrétt.
Hinn 29. janúar féll snjóflóð á Suðurfjarðar-
veg og braut raflínustaur.
Snjóflóð við Skíðaskálann i Hveradvlum.
Heimild: Morgunblaðið 17. febrúar 1972.
Snjóskriða færði tvær telpur í kaf í brekk-
unni innan við Skíðaskálann í Hveradölum
síðdegis laugardaginn 12. febrúar. Mesta mildi
var, að til þeirra sást, og voru þær grafnar upp
úr fönninni, önnur á eins metra dýpi, en hin
á 20—30 cm dýpi. Náðu telpurnar sér fljótt.
Tveir menn sáu, er snjóskriðan féll yfir telp-
urnar. Annar þeirra, Sigurður Kristjánsson,
starfsmaður hjá Gjaldheimtunni, sagði Mbl., að
hann og Guðmundur Jóelsson hefðu verið ný-
búnir að renna sér niður skíðabrekkuna um kl.
4 á laugardag og snéru þannig, að þeir sáu,
þegar telpurnar, sem voru á að giska 11 og 12
ára gamlar, komu niður brekkuna á snjóþotu.
Kom snjóskriðan á eftir þeim og steyptist yfir
þær, eftir að þær voru komnar niður á jafn-
sléttu. Allir aðrir voru uppi í brekkunni og
gátu ekki séð þetta, en fleiri komu fljótt á vett-
vang. Gekk fljótlega að finna aðra telpuna, sem
var á 20—30 cm dýpi í snjónum. En hin fannst
ekki fyrr en farið var að stinga niður skíðum
og kanna þannig snjódyngjuna. Sú telpan, er
48 JÖKULL 25. ÁR
seinna náðist, var á um metra dýpi í snjó, og
var hún farin að stirðna, að sögn Sigurðar. Var
borið við að nota blástursaðferðina og náði
hún sér skjótt.
Síðdegis á laugardag var gott veður og orðið
frostlaust og því mun skriðan hafa losnað. Sig-
urður giskar á, að fallhæð hennar hafi verið
um 30 metrar.
Snjóflóð i Óshlið.
Hinn 4. apríl segir útvarpið, að Oshlíðarveg-
ur hafi verið lokaður undanfarna daga vegna
snjóflóða.
Snjóflóð á Múlavegi. Heimild: Dagur, Akur-
eyri 20. apríl 1972; fréttaritari B. S., Ólafsfirði.
Seint á laugardag 15. april féllu snjóskriður
á Múlaveg og stöðvuðn alla umferð. Voru þá
tveir bílar á leið til Ólafsfjarðar, sendibíll og
slökkvibíll, sem Ólafsfjarðarbær hafði keypt.
Þegar ökumennirnir voru komnir út undir Flag-
ið, lokaði nýfallin snjóskriða þeim leiðina,
snéru þeir þá við og ætluðu til Dalvíkur. En er
þeir komu inn að Vogagjá, var snjóskriða fallin
þar yfir veginn og lokaði leiðinni. Ökumenn-
irnir gengu til Ólafsfjarðar. Snjódyngjunum var
ýtt af veginum daginn eftir.
Snjóflóð á Múlavegi.
Snjóflóð féll á Múlaveg þann 21. apríl og
teppti hann í bili.
Óshlíðaruegur, athugasemd.
Aðfaranótt 29. okt. varð gangandi vegfarandi
úti á Óshlíðarvegi. Fjölmiðlar fluttu þá fregn,
að dauðsfallið væri af völdum snjóftóðs. Við
nánari athugun reyndist það ekki rétt. (Heim-
ilclir: Tíminn og lögregla ísafjarðar.)
Snjóflóð i Mánárskriðum. Heimildarmaður:
Þorsteinn Jóhannesson, bæjarverkfræðingur,
Siglufirði, skv. bréfi dags. 31. okt. 1972.
Fimmtudaginn 26. okt. og fyrrihluta föstu-
dagsins 27. okt. snjóaði talsvert á Siglufirði í
allhvassri norðaustanátt með vægu frosti. Snjó
festi nokkuð í láglendi, 10—15 cm, og upp eftir
fjallshlíðum, en efst í fjöllum festi lítinn snjó
vegna veðurhæðar. Skömmu eftir háclegi á föstu-
dag hlýnaði í veðri, jafnframt hvessti af norð-
austri. Um kvöldið var koniið norðaustan hvass-
viðri með rigningarslyddu á láglendi og krepju
til fjalla. Veðrið hélst til birtingar laugardags-