Jökull


Jökull - 01.12.1975, Page 33

Jökull - 01.12.1975, Page 33
argon í jarðvatni er í jafnvægi við argon and- rúmsloftsins, sé magnið í vatninu 1/20 af því sem er í loftinu, þegar miðað er við rúmmáls- einingu. Til þess að jafnmikið magn af Ar myndist á rúmeiningu í sanidín-krystalli, sem er K-ríkur, þarf 3280 milljón ár. Lengi framan af veru slíks krystalls í bergi, ætti argon grunnvatnsins að leita inn í krystall- inn. En hvenær kemur að jafnvægi milli vatns og krystalls, og hvenær færi þá argon fremur að leita út í vatnið? Um þetta jafnvægi virðast ekki vera til neinar tölur, og er því hér bent á vafa um það, sem kann að hafa gerst í krystöll- um í gömlu bergi, sem aldursgreina á með K/Ar- aðferð. 4. kafli fjallar um tap efna út úr krystöllum með hreinni dreifingu (diffusion), þegar grunn- vatn gegnir aðeins því hlutverki að bera burt það, sem út i það dreifist. a) Bent er á, að slík dreifing efna fari mjög eftir stærð krystallsins. Sé miðað við kúlulög- un, er tæmingartími efnis, að tilteknu marki, í réttu hlutfalli við 2. veldi geislans. Það þýðir, að ef kúla með 1 cm geisla tapaði helming viss efnis á tíma, sem svaraði til tífalds aldurs jarð- ar, þ. e. 45.000 milljón árum, mundi kúla með geislanum 1 míkron (10-4 cm) sýna helmingstap að öðru jöfnu á 450 árum, en svona litlir krystallar hafa raunhæfa þýðingu í vissu sam- bandi. Af þessu er dregin sú ályktun, að við aldursgreiningu með einstökum krystöllum, beri að aldursgreina úr hverju sýni röð krystalla frá þeim stærstu niður í þá minnstu, því að þá megi sjá, hvort hinir stærstu hafi tapað efni eða ei. Þótt t. d. 5 stærstu krystallar sömu teg- undar gefi mjög svipaðan aldur í vissu sýni, er það út af fyrir sig ekki trygging fyrir réttum aldri; þeir gætu allir hafa tapað svipuðu magni þess efnis, sem aldurinn er metinn eftir. b) Annað mikilvægt og reiknanlegt dæmi en kúlan, er jafnþykk plata, þar sem framleiðsla efnis á sér stað, jafnframt því sem efnið tapast að nokkru leyti með dreifingu út um hliðarfleti plötunnar. Tapið með dreifingu verður að öðru jöfnu þeim mun hraðara, sem rneira liefur fram- leiðst í plötunni, þ. e. því brattara sem efnis- magnið á rúmeiningu fellur til hliðarflatanna, en við þá er gert ráð fyrir föstu efnismagni, t. d. engu, með því að rennandi grunnvatn flytji jafnharðan burt það sem dreifist út úr plötunni. Þar sem framleiðslan í plötunni fer fram með jöfnum hraða, en tapið vex þannig með tímanum, eykst efnismagnið i plötunni hægar og hægar þegar tíminn líður, og loks nær það hámarki, þegar jafnmikið tapast og fram- leiðist. Þessi þróun er sýnd á Mynd 2. Hér á það aftur við, að tapið vex í öfugu hlutfalli við þykkt plötunnar, eins og formúlan á myndinni sýnir. Af því er ljóst, að þótt plötu- laga krystall með 1 cm þykkt gæti reynst sem næst taplaus, mundi tap úr sams konar plötu sem aðeins væri 1 míkron á þykkt, vera 100 milljón sinnum .meira. Hámarkið, sem efnið gæti náð skv. Mynd 2 í svo þunnri plötu, gæti verið langt fyrir neðan það sem vera ætti, ef ekkert tap hefði átt sér stað með dreifingu, og mældur aldur yrði að sama skapi lægri. c) Þetta var raunhæft dæmi og þýðingarmik- ið, þar eð sýnt hefur verið fram á, að í basalti geti 40K aðallega sest fyrir í 1—3 míkrón þykk- um þynnum úr sanidíni í lok meginkrystöllun- ar basaltsins, og kemur þetta ekki á óvart. Einnig má búast við, að 40K setjist fyrir í næfur- þunnri glerfyllingu milli megin-krystalla; grunn- vatn þvær Ar auðveldlega úr slíku gleri, og fleira stuðlar að því, eins og greint var í 2. kafla, þ. e. hæg kæling þessa glers. Hættan á argontapi úr basalti er mikil, enda mjög almenn reynsla við tilraunir til- að mæla aldur þess. Jafnframt er ljóst af Mynd 2, og mjög eftirtektarvert, að áður en hámarki efnis er náð, vex efnismagnið með aldri að öðru jöfnu, þótt í öllum tilvikum geti það verið langt fyrir neðan rétt magn. Þetta þýðir, að mælingar geta gefið rétta aldursró'ð', þótt allar aldurstölur séu langt fyrir neðan réttan aldur. Þetta hefur mikla þýðingu í sambandi við aldursmælingar á hraunlögum í fornum laga- stöflum hér á landi. Aldurinn vex, því neðar sem kemur í stafla, en þótt rnæld aldursröð sé í samræmi við það, getur mældur aldur verið allt of lágur og er það að dórni höfundar. Við mælingar 1 basalti er ekki stuðst við aðgreinda krystalla heldur mola úr berginu („whole-rock“ aðferð), og verður þeirri prófun eftir krystalla- tegundum, sem áður var getið, því ekki komið við. d) Grófkrystallað berg, t. d. granít, er gert úr samsafni nokkurra krystaltegunda. Sumar fram- leiða efni með geislavirkni („framleiðendur"), en aðrar ekki. En í báðum flokkum ætti fram- leidda efnið að geta dreifst, út úr þeim framleið- andi og inn í þær móttakandi. Gæti þá á hverj- um tíma komist á viss jafnvægisdreifing efnis- JÖKULL 25. ÁR 3 1

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.