Jökull - 01.12.1975, Side 51
ins 28. okt., en þá stytti upp með hægri austan-
og suðaustanátt, hiti 2 til 4° C.
A tímanum 12.00 til 16.30 á föstudag mun
snjóflóð hafa fallið í Mánárskriðum. Nálægt
hádegi á föstudag kom áætlunarbíll til Siglu-
1 jarðar um Mánárskriður. Þá var færð um skrið-
urnar ekki góð, og aðstoðaði bíll með snjótönn
áætlunarbílinn við að komast yfir skriðurnar.
Sama dag kl. 16.00 lagði áætlunarbíllinn af stað
til baka aftur, áleiðis til Sauðárkróks. Vestan
til í Mánarskriðum stöðvaðist bíllinn við snjó-
flóð, sem fallið hafði á veginn, og varð að snúa
aftur til Siglufjarðar.
A laugardagsmorgun var byrjað að ryðja veg-
inn, og kom þá í Ijós, að mikil snjódyngja var
á veginum á 100 m kafla vestan til í skriðun-
um. Snjóþykktin var 1,5 til 2 m. Engin merki
voru lengur sjáanleg, sem sýndu farveg eða
upptök snjóflóðsins. Eg tel sennilegt, að snjór-
inn hafi skriðið samtímis fram á löngum kafla,
um 100 m, í brattri hlíðinni ofan við veginn.
Snjóflóð i Oddskarði 1. desember. Heimild:
Morgunblaðið 2. desember.
Verið var að moka Oddskarð í gær, og komst
umferð á um miðjan daginn, en undir kvöld
féll töluvert af snjóflóðum á veginn á sama
tíma og versnandi veður fór í liönd. Urðu
mokstursmenn að skilja við veginn ófæran og
raunar að ryðja sér leið gegnum snjóflóð til að
komast til byggða.
Snjóflóð i Olafsfjarðarmúla. Heimild: Út-
varpsfrétt 2. janúar 1973.
í desember féllu stór snjóflóð á veginn í
Olafsfjarðarmúla.
1973
Um miðjan febrúar féllu snjóflóð víða á Vest-
fjörðum og á Norðurlandi vestan Eyjafjarðar.
Þau ollu tjónum á útihúsum, girðingum, bílum
og raflínum. Veðráttan, febrúar 1973, mánaðar-
rit Veðurstofu íslands, segir, að snjóflóða sé
getið:
Kirkjubólshlíð við Skutilsfjörð
Súðavíkurhlíð, mörg snjóflóð
Tunguskógi við ísafjörð
ísafjarðarkaupstað, innst
Arnarfirði, það sleit Mjólkárlínu
Munaðarnesi í Strandasýslu
Upsafjalli við Dalvík, mörg flóð
Hörgárdal, þrjú snjóflóð
Auðbjargarstaðabrekku, féll yfir veginn
Fyrri hluti janúar var fádæma hlýr, t. d. komst
hitinn 5. janúar í 12,6° C á Akureyri, en síðar
hljóp allt í gadd, svo að hjarnbreiður mynd-
uðust í fjalllendi. Nokkur snjósöfnun var síðari
hluta janúarmánaðar og í fyrri hluta febrúar,
einkum vestanlands. En snjóflóð tóku þó ekki
að falla fyrr en eftir norðaustan hríðarrumbu
11. og 12. febrúar. Hér skal snjóflóðanna í
Arnariirði og á Súðavíkurhlíð getið nánar.
Snjóflóð i Arnarfirði. Heimildarmaður Ómar
Þórðarson, rafstöðvarstjóri Mjólkárvirkjun, skv.
bréfi dags. 2. mars 1973.
Hinn 13. febrúar féll snjóflóð úr litlu gili
innanvert við Grjóteyrargil hér við Arnarfjörð
innarlega að vestan. Dagana áður liafði verið
mjög umhleypingasöm veðrátta, mest V- og SV-
átt, með töluverðri snjókomu, einkum 11. fe-
brúar. Aðfaranótt 12. febrúar skipti yfir í A-
og NA-átt með slyddu og síðan snjókomu. Um
morguninn 12. febrúar var hér NA fárviðri
með snjókomu og háaskafrenningi. Veðrið hélst
allan daginn og allt fram til kvölds 13. febrúar.
Það var kl. 11.50 hinn 13. febrúar að snjó-
flóðið féll. Það tók með sér 4 raflínustaura og
sleit línuna. Snjóflóðið breiddi mjög úr sér
neðst og var Jrar um 400 m breitt. Það fór í
sjó fram. Einn staur fannst í flæðarmálinu.
Gilið er um 300 m breitt hið efra, en mjókk-
ar niður, líkt og trekt. Fram úr því hefur áður
fyrr runnið mikið magn jarðefna og hlaðið upp
hrygg. Snjóflóðið rann að mestu sitt hvoru
megin við hann. Þar af leiðandi varð það svo
breitt neðst, sem raun bar vitni.
Viðauki: Víða í dölum, t. d. á Norðurlandi,
hafa snjóflóð gegnum aldirnar hlaðið upp grjót-
lióla og þá gjarnan við brekkurætur gegnt snjó-
flóðafarveginum. Þar sem snjóflóð falla í sjó,
fer sjórinn létt með að afmá þessi einkenni.
Mörg snjóflóð d Súðavikurhlið. Heimild:
Vísir 28. febrúar 1973, fréttaritari H. M., Súða-
vík.
Hér hafa mikil veður geisað í hálfan mánuð,
enda er allt á kafi í snjó. Á Súðavíkurhlíð hef-
ur hvert snjóflóðið rekið annað, og úr gili hér
beint ofan við kauptúnið, Traðargili, komu
óhemju rniklar snjódyngjur á dögunum. í gilið
JÖKULL 25. ÁR 49