Jökull - 01.12.1975, Side 60
flóðin urðu í Neskaupstað, er tólf manns létust,
en um þau er skráð sérstaklega hér á eftir.
Snjóflóð i Oddskarði.
Hinn 19. desember féll stórt snjóflóð í Odd-
skarði og braut æðimarga staura í orkulínunni
Grímsá/Neskaupstaður.
Snjóflóð í Seyðisfirði.
Fimmtudaginn 19. desember kyngdi niður
miklum snjó í logni við Seyðisfjörð. Um kl. 10.30
á föstudag féll snjóflóð á fjárhús að Selstöðum,
sem er út með Seyðisfirði að norðan, nokkru
innan við Brimnes. Talið er líklegt, að hengja
hafi brostið í efstu brún fjallsins Halli. Snjó-
flóðið kom á langhlið fjárhússins, færði það í
kaf og braut niður. Níu ára gamall drengur
lokaðist inni í húsunum. Það tókst fljótlega að
bjarga honum ósködduðum. I fjárhúsunum voru
130 kindur, 40 drápust. Snjóflóðið kom úr gili
ofan við Selstaði og hljóp í sjó fram. Heima-
fólk fullyrðir, að þarna hafi ekki fallið flóð
áður, en örskammt frá eru kunnir snjóflóða-
staðir, Selstaðavík og utar Markhellur.
Snjóflóð á Tungudal.
Milli Eskifjarðarheiðar og Eyvindarárdals er
lítil dalskora, sem Tungudalur nefnist. Norð-
austan dalsins er Slenjufjall. Urn dalinn liggur
orkulínan af Héraði til Eskifjarðar. I desember
féllu úr Slenjufjalli sex snjóflóð. Heimildar-
menn: Gunnsteinn Stefánsson og Erling Garðar
Jónasson, Egilsstöðum.
Klukkan 9 á aðfangadagsmorgun fór straum-
ur af orkulínunni. Ljóst var, að hún var slitin
á Tungudal. Viðgerðarmenn, sem brutust inn
Tungudal í mikilli ófærð, sáu að fimm fremur
smá snjóflóð höfðu fallið fyrir nokkrum dög-
um, líklega 19. eða 20., úr Slenjufjalli nálægt
miðbiki dalsins. Öll snjóflóðin höfðu fylgt gilja-
drögum og sloppið á milli raflínustauranna.
Inn undir botni dalsins var nýfallið snjóflóð.
Það var 500 m breitt og hafði tekið níu staura
af orkulínunni, og voru þeir með vír og ein-
angrurum algjörlega horfnir. Hlaupið hafði far-
ið þvert yfir dalinn og staðnæmst við rætur
hlíðarinnar hinum megin í dalnum. I dalbotn-
inum var snjódyngjan um 20 m há.
Snjóflóðasvœði við Mjóafjörð.
Bréf Vilhjálms Hjálmarssonar, menntamála-
ráðherra:
Merkingar á korti eru ekki nákvæmar, en
nærri lagi — og hvergi ofmerkt. (Mynd 3).
Engin snjóflóðasvæði eru kunn á Suðurbyggð
utan smáhrun uppi undir tindum. Því veldur
einkum landslagið, en e. t. v. einnig að ein-
hverju leyti snjóalög.
Úr Mjóafirði liggja sex gönguleiðir til Seyðis-
fjarðar, fjölfarnar áður: Króardalsskarð, Skóga-
skarð, Hesteyrarskarð, Brekkugjá, Hofsgjá og
Dalaskarð. Engin þeirra mun vera fyllilega ör-
ugg fyrir snjóflóðum, en ég merki aðeins það,
sem ég veit með vissu.
Hér á eftir verða nefnd þau snjóflóðasvæði,
sem ég merki inn á kortið.
Króardalur: Hlaup eru tíð úr hlíðum dals-
ins, símalínan stóð aldrei og var lögð í jörð.
Tangi, neðan undir Króardal: 1941 hljóp
fram úr dalnum, hús (verbúðir) og bátar sóp-
uðust allt suður að á (um 200 m). Maður fórst
og 40 kindur. Forn naust frá Firði eru til hliðar
við hlaupið, hið eina þarna, er sögur fara af.
Skógadalur: Nálægt 1940 fórst póstur í snjó-
flóði utanvert við Skógaskarð.1
Víkur: Milli Skóga og Hesteyrar heita Víkur.
Þar eru snjóflóð tíð, t. d. í Selhamravik, um
Hlauptanga, í Svarthamravik og á Hesteyrar-
stekk. Hátt í fjallinu er allbreiður hjalli á
löngum kafla. Fyrir ofan hann heita Efri-Fláar.
Fyrir kemur, að snjóflóð tekur sig upp hæst
uppi undir fjallsegginni og hleypur frarn yfir
hjallann og síðan allt í sjó á breiðu svæði sam-
tímis. Þetta gerðist meðan hvalveiðistöðin var
á Asknesi. Flóðbylgja hljóp yfir fjörðinn og
gerði usla á hvalveiðistöðinni (1912).
Hesteyri: Snjóflóð hefur fallið í árgilinu rétt
utan við bæinn Hesteyri og e. t. v. einnig
skammt innan við bæinn.
Hesteyri—Brekkuþorp: Á þessu svæði falla
snjóflóð úr giljum uppi í Ekrutindi, allt frá
svokallaðri Ekru og út fyrir Þúfuurð.
Hlið—Holt: Innst i Brekkuþorpinu stóð býl-
ið Hlíð. Utan við það er Teigsgil. Um það falla
snjóflóð til sjávar. Rétt utan við Holtsgrunn-
ana er Holtsleekur, þar hefur fallið snjóflóð.
Höfði: Svo nefnist hæð, sem gengur fast að
sjó milli Höfðabrekku og Brekku og endar í
snarbrattri brekku, sem rís 50—70 m yfir sjávar-
mál. Þar hafa sprungið fram skaflar og fallið
1) Þetta slys er ekki talið í Skriðuföllum og snjóflóðum,
svo að tala látinna af völdum snjóflóða er 102 en ekki 101
eins og sagt var í Jökli 1971.
58 JÖKULL 25. ÁR