Jökull - 01.12.1975, Side 68
Snjóflóð i Öxnadal.
I snjóflóðahrinunni, sem hófst á Norður- og
Austurlandi 18. desember 1974 og stóð fram yfir
áramót, lét snjóflóð úr Illagili niður á Háu-
skriðu ekki á sér standa. Það braut og sleit
orkulínuna Eyjafj./Skagafj. Afleiðingarnar urðu
nær þær sömu og í Klofagilshlaupinu hjá Steins-
stöðum fyrr á árinu. Flóðið tók eina tvístæðu,
en svo hreif vírinn með sér aðrar sex í viðbót.
Munurinn var raunar sá, að nú var straumur
kominn á línuna. Snjóflóðið féll kl. 10 24. des-
ember 1974. Síminn er aðeins 27 m neðan há-
spennulínunnar á þessum stað. Hann sakaði
ekki. Snjóflóðatungurnar, sem lengst náðu,
teygðu sig aðeins 15 m niður fyrir símann. Koll-
óttum haug hafði verið ýtt upp ofan háspennu-
línunnar, ætlaður til varnar. Hann mun hafa
lyft snjóspýjunni upp, en ekki náð að kljúfa
hana.
Snjóflóð i Siglufirði 19. desember. Heimildar-
maður: Þorsteinn Jóhannesson, bæjarverkfræð-
ingur, skv. bréfi dags. 23. des. 1974.
Frá 13.—18. desember 1974 var stöðug austan
og norðaustan átt á Siglufirði með talsverðri
snjókomu og frosti. Úrkoman var mest í all-
hvössum byljum og rofaði að mestu á milli.
Snjómagn var ekki mikið á láglendi, en þó
höfðu myndast talsverðir skaflar í bænum. I
fjöllum virtist ekki mikill snjór, nema í giljum,
en á melurn og þar sem hærra bar hafði snjó
ekki fest.
Seinnipart miðvikudagsins 18. desember og
um nóttina 19. snjóaði nokkuð í hægu veðri,
en undir morguninn hvessti og snjókoman varð
meiri, þannig að skyggni varð mjög lítið. Frost-
ið á þessum tíma var oftast 4 til 6° C.
Fyrir 13. desember var nær enginn snjór á
láglendi, en neðarlega í fjöllum var hart hjarn
og ofar í fjöllum var talsverður snjór og erfitt
göngufæri (að sögn rjúpnaskyttna).
Um kl. 13 fimmtudaginn 19. desember féll
snjóflóð úr svonefndu Strengsgili, sem er þröngt
gil í Hafnarfjalli ofan við syðstu húsin í Siglu-
firði. Snjóflóðið lenti á húsunum nr. 76 og 78
við Suðurgötu. Húsið Suðurgata 78 var alveg
í jaðri flóðsins og brotnuðu stórir gluggar á
sunnanverðri vesturhlið hússins og fylltist húsið
sunnanvert af snjó. Húsið Suðurgata 76 varð
harðar úti, þar brotnuðu gluggar á vesturhlið
og steinsteyptur veggur milli glugga og neðan
við glugga brotnaði. Snjóflóðið fyllti húsið
sunnanvert og fór í gegnum það út um glugga
á austurhlið. Bæði eru húsin mikið skemmd, en
þó sérstaklega húsið Suðurgata 76, auk þess
urðu miklar skemmdir á innanstokksmunum.
Þá tók snjóflóðið bíl, sem var í akstri eftir Suð-
urgötunni skammt norðan við húsið nr. 76, og
barst bíllinn með flóðinu um 30 m niður fyrir
götuna. Einnig braut snjóflóðið einn staur í
raflínunni frá Skeiðsfossvirkjun, en línan er
þriggja fasa 22 kV á tveggja staura samstæðum.
Línan féll ekki niður, þar sem annar staurinn
í samstæðunni hélt.
í flóðinu urðu ekki slys á fólki, og verður það
að teljast mesta mildi.
Vegna veðurhæðar sást ekki, hvar upptök
flóðsins eru í gilinu, en sunnudaginn 22. des.
var bjart og gott veður og sást þá vel til fjalla.
Laugardaginn 21. des. fóru tveir menn upp í
fjallið og töldu þeir, að upptök flóðsins hefðu
verið upp við fjallsbrúnina efst í gilinu. Þann
22. des. hafði sett talsverðan snjó ofan í farveg
flóðsins, en farvegurinn sást þó greinilega.
Ofan til í Strengsgili var árið 1970 sett girð-
ing, sem hafði það að markmiði að minnka
hengjumyndun á norðurbarmi gilsins, og voru
nú ekki hengjur sunnan við girðinguna, en stór-
ar hengjur voru á gilbarminum neðan við hana.
Eins og áður sagði, byrjaði snjóflóðið uppi
við fjallsbrúnina, þar sem brattinn er mestur,
og hefur flóðið því sennilega ekki hafist eins og
oft áður með því að holhengja hafi brostið og
komið flóðinu af stað, heldur er sennilegra að
flóðið hafi byrjað sem flekahlaup að þessu sinni.
Rétt neðan við girðinguna hefur flóðið verið
komið á mikla ferð, þar sem greinilega sást að
það hafði kastast upp á norðurbarm gilsins við
smá sveig, sem er á gilinu. Síðan hefur flóðið
borist niður gilið og breitt lítillega úr sér þar
sem gilið opnast og landið verður hallaminna.
Farvegurinn er þó nokkuð samfelldur allt nið-
ur að Suðurgötu, en þar hefur meginstraumur-
inn stöðvast, en neðstu mörk flóðsins voru um
40 m neðan við Suðurgötu.
Snjórinn í farveginum varð strax nokkuð þétt-
ur og tiltölulega sléttur, en eftir því sem ofar
dregur er yfirborðið ósléttara, og í gilinu eru
einstaka stórir snjókögglar.
Hér fara á eftir áætlanir um magntölur flóðs-
ins, en taka verður fram, að þær geta verið
mjög ónákvæmar:
66 JÖKULL 25. ÁR