Jökull


Jökull - 01.12.1975, Síða 70

Jökull - 01.12.1975, Síða 70
SNJÓFLÓÐAHRINAN — þurru foksnjóflóðin — á norðanverðu landinu 13.-16. janúar 1975 Dagana 12.—15. janúar 1975 gekk norðanstór- viðri yfir landið. Mikill fannburður var norðan- lands, iðulaus stórhrið og háaskafrenningur var á öllu svæðinu frá Arnarfirði í vestri til Norð- fjarðar í austri og einnig á Snæfellsnesi. A fok- sandssvæðum og áraurum sunnanlands hrærð- ust saman í flekkótta skafla, snjór, sandur og jurtaleifar. í Neskaupstað gerði svonefnt Nípu- kollsveður, og skóf það að mestu snjó úr fjalls- hlíðinni fyrir ofan kaupstaðinn. Snjóflóð í Dalsmynni 13.—15. janúar. (Heim- ild: Erlingur Arnórsson, Þverá, úr bréfi Erlings dags. 29. apríl 1975). „í Fnjóskadal settist vetur snemma að haust- ið 1974. Snjóaði fyrst í logni dögum saman. Oftast var bleytuhríð. Lagðist því snjórinn jafnt yfir allt, og í Dalsmynni urðu jarðbönn fyrir allar skepnur snemma í nóvember, og er svo enn 29. apríl. Mestur er snjórinn hér í Dals- mynni, en mun minni í Fnjóskadal og Ljósa- vatnsskarði. Aðfaranótt 12. janúar brast á aftakastórhríð, er stóð til 15. janúar. Var rokið svo mikið, að raflínur slógust saman í Ljósavatnsskarði og urðu rafmagnstruflanir miklar. Þetta þriggja sólarhringa stórviðri byrjaði með austan- og n.a.átt, síðan norðanátt og loks norð- austanátt. Frost var 3° í fyrstu og fór í 8°. Snjór var þungur og þéttur og þjappaðist saman með dimmum dynkjum, þegar gengið var um snjó- breiðuna. Við svona aðstæður virðast mér oft falla snjóflóð. Þó eru það staðhættirnir, sem meiru ráða og valda snjóflóðunum í Dalsmynni. í hvassri austan- og norðaustanátt skefur snjó- inn af öllu Austurfjallinu (Þverárfjalli), neðan frá Þúfu og Vestari-Krókum, og getur hann safnast á skammri stund í óhemju dyngjur í vesturbrúnunum, svo sem Lambatorfum og Illu- kinn, og falla þær svo í stórum flekaflóðum. I þvi stórviðri, sem hér hefur verið lýst, féllu þau, mestu snjóflóð, sem ég hef haft sagnir af. Hve- nær þau féllu, get ég ekkert fullyrt um, en tel líklegt, að fyrst hafi fallið snjóflóð syðst í Þver- áröxlinni meðan áttin var austlæg, en síðar norð- ar, er áttin snerist meira til norðanáttar. Athyglisvert er, að í þetta sinn féllu ekki flóð úr Lambatorfunum, sem oftast hefur fallið úr, síðan ég flutti að Þverá 1945. Syðsta snjóflóðið féll að þessu sinni úr Stekkj- argili, inn yfir nyrstu hluta Þverártúns og yfir Fnjóská. Það næsta í Nautagili, yfir Fnjóská og langt upp á Skuggabjargatún og yfir fjárhús- tætturnar þar. Þriðja flóðið úr Illukinn, Stóra- gili og hlíðinni milli Stóragils og Merkjagils. Lengst náði það flóð fram undan Stóragili, langt upp eftir Skuggabjargahaga, sem er vestan ár, og um 100 m vegalengd upp fyrir raflínu, sem lögð var vestan Fnjóskár og talin vestan hættusvæðis. Aðalflóðið fór milli staura. Einn staur lenti í hlaupinu, en brotnaði ekki. Síðan má heita, að snjóflóðin hafi verið sam- felld frá Merkjagili og norður fyrir Skessuskál nyrst í Austurfjalli (Þverárfjalli). Skammt norð- an Merkjagils náði flóðið lengst, eða upp undir fjallsrætur vestan Fnjóskár. Norður við Gæsagil náði flóðið langt upp eftir brattri hlíðinni og braut þar stóra spildu úr skóginum. Ef veiðihús- ið Flúðasel hefði verið endurbyggt, hefði það hlotið sömu örlög og í fyrra. Snjóflóðið braut 3 staura, svo að bæirnir Skarð og Þverá urðu raf- magnslausir nokkra daga. Nyrstu mörk flóðsins voru við sumarhús Jóhanns Skaptasonar, en þar brotnuðu rúður og fyllti tvö herbergi af snjó. Vestar sveigði flóðið meira til norðurs og fór um miðja vega brekkuna í Skarðsgili og rétt sunnan Gæsagils að vestan. Þótt snjóflóðin væru ekki samfelld við upptök, voru þau það á þjóðveginum frá Þverártúni og norður í Skarðsgil ca. 3—3,5 km. Ogurleg spjöll hafa orðið á skóginum milli Skarðs og Þverár og mest, þar sem skógurinn var fallegastur og beinvaxinn. Er mikil eftirsjá í beinvöxnum fallegum skógi, s'em náð hafði 8 m hæð, og nokkurn tíma hefur hann haft til vaxtar. I þessari stórhríð urðu miklir skaðar af snjó- flóðum i Suður-Fnjóskadal að austan, bæði girð- ingurn og skóglendi. Sérstaklega varð tjónið mik- ið í Lundsskógi. í Gönguskarði munu hafa fallið mikil snjó- flóð að sögn þeirra, sem þar hafa farið um á vélsleðum. Einnig á Hólsdal, Finnstaðadal og Mjóadal, sem eru samfelld daladrög suður úr Gönguskarði fram undir Hallgilsstaði. í þessari stórhríð féllu ekki teljándi snjóflóð úr Skarðsfjalli, en leiðin milli Skarðs og Litla- gerðis er þó í flestum tilfellum ekki hættuminni 68 JÖKULL 25. ÁR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.