Jökull


Jökull - 01.12.1975, Síða 79

Jökull - 01.12.1975, Síða 79
„Nokkurt nýsnævi kom á jökulinn 13. sept- ember, og svo var að smá bæta á út mánuðinn. Nú, þegar dregið hafði úr vatnsgangi og ég mældi 24. nóvember, var alautt að jökli. Við jökulröndina var 1—2 m þykkur snjóskafl frá síðasta vetri. Tel ég enga breytingu hafa orðið á jöklinum frá síðustu mælingu. Neðsta skerið var uppúr, en hin sáust ekki.“ „ ... Arið 1974 gekk vetur í garð 10. nóv. Gerði þá hálfgerða bleytuhríð, og setti snjólag yfir alla jörð, sem var í miðjan legg á manni (30 cm). Þetta lag hvorki skóf af né leysti upp, heldur smá rann niður í svell, sem víða hélst langt fram á vor. Það varð þess valdandi, að verulegar kalskemmdir hlutust hér af á túni. Það var fremur snjólétt hér um áramótin 1974/75, en um miðjan janúar gerði mjög mik- inn snjó, og var öðru hvoru að bæta á fram í apríl. Útkoman varð sú, að í vor var hér ein- hver mesti snjór, sem ég hef séð. Vegur héðan niður að sjó var ekki fær frá 8. jan. og út í maí, en þá var mokað. Grasspretta var seint á ferðinni, enda vorið kalt. Berjaspretta var engin, sást ekki kræki- berjavísir. Bláberja- og aðalbláberjavísar náðu ekki að blána. Skógarkjarr var ekki að fullu út- sprungið 17. júní. Það var mjög erfitt með hey- þurrk, en frostglærurnar í september björguðu víða, svo að hey náðust um 20. sept. Það hlýn- aði með október, og nær frostlaust var allan mánuðinn og raunar að 13. nóv. Kvistgróður allur stóð allaufgaður út september, og fór ekki að fella lauf fyrr en um 13. okt. Þótt vorið væri kalt og sumarið reyndar líka, nema ágúst, þá leysti furðu mikið. Snjóskafl er eftir við Traðarlækinn, þar eru tveir árgangar og þykkt- in er 5 m. Nú við áramótin 1975/76 er mjög lítill snjór hér.“ ReykjarfjarðarjökuU I bréfi með mæliskýrslunni segir Guðfinnur: „Eg hafði með mér meitil og hamar og hjó ártalið 1975 i klöpp 11 metra frá jökli, og einnig hjó ég það í tæplega eins metra háan stein 7 metra frá jöklinum. Ekki er jökullinn líklegur til að fara yfir þessi merki á næstunni. Jökuljaðar er sléttur og aflíðandi, engar stórar sprungur eða önnur missmíði, sem benda á framskrið. Artalið 1966 greypti ég á sínum tíma í stóran stein, nú eru 218 m frá honum að jökli. Þótt sumarið væri kalt sökum hafíssins, sem varð landfastur hér í júlí, þá varð jökullinn blár óvenjulangt uppeftir. Þeir, sem kunnugir eru mælistað og geta ann- ast mælinguna, eru: Guðmundur Ketill Guð- finnsson, Bolungarvík, Hallgrímur Guðfinns- son, Bolungarvík, og Jóhannes Jakobsson, Engja- vegi 7, Isafirði." Leirufjarðarjökull í bréfi dags. 14. október segir Sólberg: „ ... Þegar ég kom að jökulmerkjunum 27. sept. kom í ljós, að nýsnævi var svo mikið, að ekki reyndist unnt að mæla með fullri vissu. í september hafði komið hret, raunar óvenju mikið miðað við árstíma. Ég tel að jökullinn hafi hopað þarna, og miða ég þá við snjólag hjá mælistað og h'vernig umhorfs var þarna í ágústmánuði. Vetrarsnjórinn var ekki mikill, vorið var kalt. Raunverulegt sumar kom ekki fyrr en í ágúst.“ Hálsjökull (Hamarsjökull) í mæliskýrslunni tekur Helgi fram: „Allur jökullinn og hvilftin neðan hans var á kafi í snjó frá s.l. vetri, að auki var komið 10—20 cm nýsnævi. Mælt var frá jökulmerkinu að dæld, sem fullvíst má telja að hafi markað jökuljaðar. Mestar líkur eru á, að jökuljaðar hafi ekki breyst.“ Sólheimajökull Um Vesturtunguna tekur Valur fram í mæli- skýrslunni: „Jökuliinn hefur flætt langleiðina yfir lón- stæðið, sem var að myndast fram til 1969. Jökul- veggurinn er 30—40 metra hár, vestar er ísborg nokkru hærri. Aðalkvísl árinnar kemur undan jöklinum og fellur í mælistefnu. Smákvísl kem- ur undan jöklinum vestar. Vatnsgangur hefur eytt endavörðu í mælilínu. Við Jökulhaus hef- ur jökullinn hækkað enn. Jökulstálið er 20—30 metra hátt. Endavarðan næst jökli komin á kaf undir ruðning. Jaðar Austurtungu hefur hækk- að enn og er brattari en í fyrra. Hlaup hafa komið undan jöklinum og eytt mælivörðu, en ekki náð að hagga J 107, sem er nú 367 m frá jökli. Helgi Björnsson er kunnugur staðháttum við jökuljaðar." Ljósmyndir fylgja mæliskýrsl- unni. JÖKULL 25. ÁR 77
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.