Jökull - 01.12.1975, Qupperneq 81
Betrumbætur
Athugasemd við bókina Vötnin stríð
í desember 1974 gaf Menningarsjóður út bók-
ina Vötnin strið, eftir undirritaðan. Síðan sú
bók kom út hef ég rekist á þó nokkrar villur
og á aðrar hefur mér verið bent. Þar eð margir
þeirra, er bókina hafa eignast, eru í hópi þeirra,
sem lesa Jökul, þykir mér rétt að koma þessum
leiðréttingum þar á framfæri.
Það er þá fyrst til að taka, að einhversstaðar
á leiðinni milli handrits og hreinprentunar hef-
ur, af mér lítt skiljanlegum ástæðum, fallið nið-
ur frásögnin af einum Grímsvatnaleiðangri. Þar
eð ætlunin var að vikja í bókinni að öllum
Grímsvatnaleiðöngrum fram til 1953, vil ég
geta þessa „glataða“ leiðangurs liér að nokkru.
Þessi leiðangur, sem var undir stjórn Niels Niel-
sens, dvaldist á Vatnajökli nær samtímis sænsk-
íslenska Vatnajökulsleiðangrinum, eða frá því
í maí 1936 fram í júní og var ætlunin að við í
sænsk-íslenska leiðangrinum, sem vann að rann-
sóknum á austurhluta jökulsins, hittum hinn
leiðangurinn í Grímsvötnum, en af því varð þó
ekki.
Með Nielsen voru í för Jóhannes Áskelsson
og ungur danskur jarðfræðingur, Arne Noe-
Nygaard. Aðaltilgangur leiðangursins var að
kanna breytingar á Grímsvatnasvæðinu frá því
Eyjabakkajökull og Kverkjökull
Dagana 13. til 15. júlí var jökulhlaup í Jök-
ulsá i Fljótsdal. Skv. rennslisskýrslum Vatna-
mælinga Orkustofnunar, vhm 109 hjá Hóli í
Fljótsdal, fór rennsli árinnar upp í 428 m3/s
og hlaupvatnið hefur verið um 26 Gl. Það var
Háöldidón, sem hljóp. Hlaupvatnið myndaði
vatnsfarveg í Háöldu og niður með jöklinum.
I bréfi með mæliskýrslunni tekur Gunnsteinn
fram:
„Jökullinn hefur lækkað nokkuð og er farinn
að sléttast eftir framskriðið."
Varðandi Kverkjökul segir Gunnsteinn:
„Isgöngin hafa haldið áfram að brotna nið-
ur.“
Sigurjón Rist.
að þeir Jóhannes og Nielsen voru þar vorið
1934. Leiðangurinn hreppti hin verstu veður í
maí og var lengi veðurtepptur, eins og sá sænsk-
íslenski. Hann var kominn að Pálsfjalli 29.
apríl, en komst ekki að Grímsfjalli fyrr en 17.
maí, hafði þar nokkurra daga viðdvöl og náði
þar mjög góðum myndum. Til Pálsfjalls var
aftur komið 25. maí og dvalið þar í þrjá daga.
Noe-Nygaard, sem er bergfræðingur, kannaði
Pálsfjall, Hágöngur og Geirvörtur og var á þeim
slóðum fram í miðjan júní, en í júlímánuði
unnu hann og Nielsen, og þó einkum sá fyrr-
nefndi, að rannsókn á móbergssvæðinu frá Or-
æfum til Kirkjubæjarklausturs og síðan á svæð-
inu milli Klausturs og Eyjafjalla og var Pálmi
Hannesson þá með í för. Um rannsóknir sínar
á íslandi þetta sumar birti Noe-Nygaard einar
tíu ritgerðir og eru þeirra veigamestar tvær rit-
gerðir, er birtust í Folia Geographica Danica.
Sú fyrri, er kom út 1940 (Fol. Geogr. Dan. Tom.
1. No. 2), hefur titilinn Sub-glacial Volcanic
Activity in Ancient and Recent Times, og er
ein af grundvallar ritgerðum um móbergsmynd-
unina. Hin (Fol. Geogr. Dan. Tom. I. No. 3)
kom út 1952. Hún bar heitið A Group of Lipa-
rite Occurrences in Vatnajökull, Iceland, og
fjallar aðallega um bergfræði Pálsfjalls og Geir-
vartna.
Nýlega rakst ég í gömlu dóti á skrá yfir
myndatökur mínar vorið 1934, en þá var ég ný-
búinn að eignast mína fyrstu Leica myndavél.
Þar sá ég, að mig liefur misminnt svo að skakk-
ar einni viku, er ég held því fram í bók minni
(bls. 24), að ég hafi farið austur á Skeiðarár-
sand í fyrsta sinni 4. maí 1934, ásamt Nielsens-
hjónunum og Pálma. Myndirnar á bls. 148 eru
teknar 12. og 13. maí.
Á miðri bls. 21 er talað um grein í Fróða
2. jan. 1883. Þetta á að vera 2. júní og er svo
á bls. 34. — Á bls. 63 er talað um vesturlilíð
Lómagnúps, en textinn ber með sér, að um
austurhlíðina er að ræða. — Undir 44. rnynd
(bls. 170) stendur jakasker í'yrir jakaker. — Á
töflunni á bls. 224 stendur júní 1883 í stað jan.,
sbr. annálinn á bls. 220. — Þau hlaup, sem orðið
hafa í júní eru 3 og í júlí 3 (bls. 223). — Á bls.
230 er hæð Stóra Mósa sögð 1528 eða 1529 m
en á að vera 1428 eða 1429, sbr. kortið af Grims-
vötnum á bls. 227.
Ragnar Stefánsson bóndi x Skaftafelli hefur
upplýst mig um, að það sé byggt á misskilningi
hjá mér, að hellir sá, sem nefndur er á bls. 241,
JÖKULL 25. ÁR 79