Jökull


Jökull - 01.12.1975, Side 83

Jökull - 01.12.1975, Side 83
Ferð í Nautöldu 22,-24. ágúst 1975 Að þessu sinni var ákveðið að fara mælinga- ferð í Nautöldu nokkru fyrr en venjulega, eða um mánuði fyrr en árið áður. Lagt var af stað úr Reykjavík kl. 2 síðdegis föstudag 22. ágúst. Veður var eins og títt var um veður síðastliðið sumar, rigning. En fyrir mestu var, að þessi 19 manna ltópur var hinn hressasti. Ekið var sem leið liggur inn með Þjórsá vestanverðri og áætl- að að gista í skálanum við Nautöldu. Undir miðnætti kom liópurinn að Blautukvísl og var þegar ljóst, að draumur manna um gistingu í skála var að engu orðinn. Var því sett ráðstefna og ákveðið að tjalda á melunum við ána. Þegar menn höfðu fengið sér hressingu á laugardagsmorgun var lagt í Blautukvísl. Þrenn- ar vöðlur voru með i ferðinni og neyddust eig- endur þeirra til að fara nokkrar aukaferðir. Sumir íklæddust plastpokum sem ætlaðir eru utan um laxa og ösluðu yfir. Botninn úr pok- anum fór að gefa sig út í miðri á og upphófst þá mikið kapphlaup um að komast á þurrt, áður en vatnsborðið i pokanum hækkaði upp fyrir stígvél. Sumir komust þurrir yfir en aðrir blotn- uðu í aðra eða jafnvel báðar, en yfir komst allur hópurinn og gekk saman til skálans. Þar skildust leiðir. Nokkrir hugðust fara og skoða lónið upp með Olafsfelli en urðu frá að hverfa sakir þoku, og gengu þess í stað um nágrenni Nautöldu. Suddarigning var og veður því ekki fýsilegt til skemmtigöngu. Mælingaflokkur æddi af stað í áttina að Hjartafelli, enda veitti ekki af tím- anum. Mikið vatn var í ánum og urðu „vöðl- ungar“ oft að bera hina yfir. „Ekki ber ég það sem þú berð,“ heyrðist einn tauta, mjög kok- hraustur, um leið og hann rétti manni bakpoka sinn og tók manninn á bakið. Mælt var við Nauthagajökul, sem reyndist hafa skriðið fram um 2 m frá síðasta ári. Lögðu menn sig mjög fram við mælingar, og var vel strekkt á málbandinu — fullntikið að áliti þeirra, sem héldu í bandið. Ekki hafði neinn úr hópnum komið þarna árið áður og gátu því ekki sagt til um útlitsbreytingu á jökulröndinni. Múlajökull reyndist hafa hopað um 15 m í kverkinni. Um það leyti, sem menn komu að mælistaðnum framan i Múlajökli, stytti upp og eitt andartak svipti Arnarfell af sér þokunni. Mynd 1. Fótabað við laugina undir Hjartafelli. Jökullinn liafði hopað um 15 metra og jökul- röndin var allmiklu sléttari en árið áður. Á leið til baka voru menn teknir að lýjast og var því kærkomið að fá sér fótabað í lauginni undir Hjartafelli. Að vísu er laugin sjálf of heit, en í læknum, sem rennur frá henni, er vatnið mátulega heitt fyrir lúna fætur. Ekki er vatns- rennsli mikið, svo að þetta var fremur aurbað en vatnsbað. Er haft fyrir satt, að slík böð séu hin heilsusamlegustu. Eftir skamma viðdvöl í skálanum var haldið áfram og komið að Blautukvísl rétt um mið- nætti. Svartamyrkur var skollið á, en bílljósin höfðu verið kveikt við tjaldstað, og því auðvelt að taka mið á þau. Þar sem menn voru nú orðnir blautir og slæptir var lítt skeytt um plast- poka en vaðið yfir beint af augum. Allmiklu meira var í ánni en um morguninn og hefðu plastpokar dugað skammt, þar sem sumir óðu því sem næst í mitti. Eftir góða næturlivíld var sigið heirn á leið. Loks sáu veðurguðirnir aumur á liópnum og hélst þurrt á meðan gengið var niður að Gljúf- urleitarfossi. En greinilegt var að fólk hafði ekki fengið nóg af volkinu, því komið var við í lauginni í Þjórsárdal. Heim kom hópurinn á sunnudagskvöld og skildi glaður í bragði á planinu hjá Guðmundi Jónassyni. Ragna Karlsdóttir. JÖKULL 25. ÁR 81

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.