Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 47
Athugasemdir og viðaukar
abstract
Glacier variations were recorded al 34 locations, 18
locations showed advance and only 14 retreat. The
advance of steep glacier snouts from high altitudes is
remarkable.
As a result of these observations, we can come to
similar conclusions as in 1972, i.e. the retreat period
1s over, at least temporarily. The relreat of Breiða-
merkurjökull is now very little compared to recent
years. The annual retreal of Tungnárjökull is of the
sarne magnitude as in the last decade.
The most remarkable event is the surging of
Hagafellsjökull, station No. 5. The advance slarted
m March; the final figures are not presented now, but
tvill wait until next issue.
Haustið 1980 voru lengdarbreytingar
tnældar á 34 stöðum. Jökuljaðar sýndi fram-
skrið á 18 stöðum, en hop á aðeins 14 stöðum.
Það er eftirtektarvert að það eru einkum
jökultungur úr háum og bröttum jöklum, sem
gengið hafa fram. I metrum talið er hop við
•nælistaðina meira en framskriðið. Astand og
horfur líkjast að ýmsu leyti því sem var 1972,
en þá var niðurstaðan orðuð á þessa leið:
,Jöklarýrnun þeirri, sem staðið hefur um
arabil, eða allt frá því, að kerfisbundnar mæl-
‘ngar hófust um 1930, er lokið a. m. k. í bili“.
Eftirtektarvert er að nú hefur hægt á rýrnun
Breiðamerkurjökuls, en hop Tungnaárjökuls
hjá Jökulheimum heldur áfram sem fyrr.
Merkasti viðburður ársins er framhlaup
Hagafellsjökla. Tölur um framhlaupið í heild
bíða næstu skýrslu. Gangur hófst austan til í
vestri Hagafellsjöklinum nálægt miðjum mars
1980 og breiddist síðan fljótlega út til eystri
jökulsins og stóð út sumarið, var þá hlaupin
fram væn spilda í Langjökli. Allt sumarið var
Farið dökkt af aur og bar fram mikinn korg
um Tungufljót og Sandá til Hvítár. Ölfusá var
dökk allt sumarið eins og þar færi aðeins
jökulvatn. Athuganir hafa sýnt, að aurinn var
rnulin eldfjallaaska og basalt, en engar leir-
steindir fundust.
I lok vetrarins 79/80 var snjór í háfjöllum og
á jöklum nokkuð yfir meðallag. Sumarið var
sólríkt um allt land. Leysing varð þó ekki að
sama skapi mikil, sennilega vegna kulda í
næturheiðríkjum. Vetur lagðist snemma að.
Snœfellsjökull
I mælingaskýrslu Jökulháls segir Hallsteinn:
,J'okullinn og hjarnskaflinn í lautinni, sem ég
gat um fyrir ári síðan, mynda nú eina sam-
fellu, tel ég það allt jökul. Öll gömlu jökla-
merkin eru nú horfin.“
Drangajókull
f bréfi með mælingaskýrslu Kaldalóns segir
Aðalsteinn m. a.: „Frá innstu vörðunni voru í
fyrra 384 m en nú 500 m að jökli. Undanfarin
ár hefur aðeins legið þarna mjó jökultunga
niður árgljúfrið. Tungan hefur að mestu
horfið í sumar, aðeins mjó ís- og hjarn-fönn
eftir neðan við Ufinn og liggur þessi ístunga
sýnilega yfir þeirri kvísl Mórillu, sem kemur
Votubjargamegin undan jöklinum“. I bréfinu
getur Aðalsteinn um árferði og segir m. a. „Úr
dagbók síðasta vetrardag, 23.apríl 1980: Nú er
óvenju góðviðrasömum vetri lokið. Litlar úr-
komur eftir áramót, snjólétt, að vísu töluvert
snjóugl í Skjaldfannarlandi. Snjórinn kom
aðallega fyrir jól, vestanátt ríkjandi síðari
hluta vetrar, jarðleysi fyrir fé vegna svella og
klammalaga. Klaki er lítill í jörðu.“
,,. . . 30. júlí fór hitinn upp í 20° og þann 31. í
22°. Kartöflu- og rófnauppskera var góð,
berjaspretta engin, mun því hafa valdið
næturfrost, miklir þurrkar og kuldakaflar.“
,,. . . Fuglalíf fer ört þverrandi, er nú svo komið
að sumar tegundir sem voru algengar fyrir 30
árum eru horfnar en öðrum fækkað, en gæs
komin í staðinn“ „. . . fé kom vænt af fjalli,
fallþungi 2 kg meiri en mörg undanfarin ár.“
„. . . það var undarlegt hvað þessum litla snjó
frá síðasta vetri gekk illa að leysa. Það munaði
næstum ekkert dögum saman. Skaflarnir tóku
kipp þegar rigndi og svo hitadagana síðast í
júlí. Skaflinn fyrir ofan bæina, Skjaldfönnin,
JÖKULL 31.ÁR 45