Jökull


Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 96

Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 96
Undir stjórn Kristins og Magnúsar Más Magnússonar voru nú i fyrsta skipti um all- langt skeið framkvæmdar mælingar utan Grímsvatna á vetrarákomu á Vatnajökli. Voru boraðar 8 holur með vélknúnum kjarnabor Raunvísindastofnunar H. I., á línu frá Háubungu vestanverðri austur að Goða- hnúkum, og vatnsgildi mælt. Dýpsta holan var 7,5 m. Var ein holan í Grímsvötnum, mæld 18. júní, og vetrarlagið þar5,7 m, en vatnsgildi 3500 mm. Vatnshæð í Grímsvötnum við Vatnshamar reyndist vera 1429— 1430 m y. s. Vonandi verður framhald á ákomumæl- ingum á jöklinum. Ekki væri síður nauðsyn- legt að endurmæla einhver þeirra sniða á jökl- inum, sem áður hafa verið mæld og hefi ég einkum í huga snið það, sem Magnús Hallgríms- grimsson mældi milli Grímsfjalls og Kverk- fjalla. Slíkar endurmælingar gæfu öðru frem- ur vitneskju um hag jökulsins, hvort hann hefur þykknað eða ekki á síðustu árum, og ætti þetta að vera áhugaveröur fróðleikur fyrir þá, sem vinna að virkjun jökulvatna. Sigurjón Rist hefur áður haft umsjón með mælingum á lengdarbreytingum jökla. Eins og félagsmönnum er kunnugt, hefur hann verið forfallaður um skeið, en er nú sem betur fer alveg að ná sér og tveggja ára skýrslu um lengdarbreytingar senn að vænta. BÍLAMÁL Bílamálin eru sem stendur aðalhöfuð- verkurinn varðandi starfsemi félagsins og næsta viðfangsefni að koma þeim málum á réttan kjöl. Helgi Ágústsson, formaður varnarmálanefndar, hefur haft góð orð um að hugsa til okkar ef hentugan bíl ræki á hans fjörur og ég veit, að bílanefnd fylgist með þeim málum öllum og vantar ekki viljann til að leysa þessi mál. FRÆÐSLUFERÐIR Ekki varð úr fyrirhugaðri Hagavatnsferð 16. ágúst og hafa menn líklega fundið á sér, að Hekla myndi gjósa daginn eftir. Hin venju- lega haustferð til Jökulheima var farin 15.—17. september undir stjórn Ástvaldar Guðmundssonar og var vel heppnuö. FUNDARHÖLD Stjórnin, eða hlutar hennar, héldu allmarga fundi á árinu, einkum vegna útgáfustarfsem- innar. Á aðalfundi 12. febr. flutti Sigfús Johnsen, eðlisfræðingur, ítarlegt erindi um rannsóknir á Grænlandi, aðallega töku ís- kjarna og mælingu á þeim, en hann hefur sjálfur tekið þátt í Grænlandsleiðöngrum mörgum. Fræðslufundur var haldinn á Hótel Heklu 21. október og sóttu hann um 90 manns. Formaður fjallaði um Heklugosið í ágúst 1980. Pétur Þorleifsson sýndi myndir. Árshátíð félagsins, Jörfagleðin, var haldin að Átthagasal Hótel Sögu 8. nóvember og var þar minnst þrítugsafmælis félagsins. Var undirbúningur allur skemmtinefnd, undir stjórn Soffiu Vernharðsdóttur, til sóma og hátíðin vel sótt. Veislustjóri var Ásgrímur Hermannsson. Formaður rakti nokkuð sögu félagsins, en aðalræðumaður kvöldsins var Sigurður Steinþórsson. í tilefni af þrítugsafmæli Jöklarannsókna- félagsins voru eftirfarandi félagar sæmdir silfurstjörnu þess: Eggert V. Briem, Gunnar Guðmundsson, Hörður Hafliðason, Magnús Jóhannsson, Ólafur Nielsen og Þórarinn Björnsson. Sigurður Þórarinsson. 94 JÖKULL 31. ÁR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.