Jökull


Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 95

Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 95
Jöklarannsóknafélag íslands Skýrsla formanns um starfsárið 12.febr. 1980— 26.febr. 1981 Góðir félagar. >,Arunum fjölgar, fer það eins og gengur, fáir af slíku hljóta mikinn vinning.“ Þessi orð, sem eg viðhafði eitt sinn um annan mann, eru nu tekin að hrína á sjálfum mér. Sem betur fer er ekki hægt að segja það sama um félagið okkar. Það er enn á þeim aldri, sem er væn- legur til aukins þroska með ári hverju og á síðasta ári hefur sitt hvað skeð, sem vekur bjartsýni um framtíð þess. útgáfustarfsemi A þessu ári hefur það tekist í fyrsta sinni að koma út tveimur heftum af Jökli, sameigin- legu tímariti okkar og Jarðfræðafélagsins, og eru bæði heftin vönduð að efni og frágangi. Um fyrra heftið, fyrir árið 1978, sá Helgi Björnsson að mestu og flyt ég honum þakkir fyrir mikið og gott starf þau ár, sem ritstjórn Jökuls mæddi að langmestu á honum. Eins og nefnt var í síðustu ársskýrslu, er árgangur Jökuls 1979 helgaður yfirliti yfir jarðfræði ís- lands, sem samið var af nokkrum íslenskum jarðvísindamönnum í tilefni af alþjóðaþingi jarðfræðinga í París sumarið 1980. Sem sér- prent af Jökli dreifðu Frakkar því á alþjóða- þinginu í þúsundum eintaka og er mér kunn- ugt um, að það hlaut lof dómbærra manna. Kristján Sæmundsson var sérlegur ritstjóri þessa heftis. Hafi hann hugheilar þakkir fyrir. Þá hefur það skeð, sem jaðrar við krafta- verk, að Jökull er að kalla má kominn inn á fjárlög og verður þar vonandi áfram. Flyt ég hlutaðeigandi ráðherrum og fjárveitinga- nefnd Alþingis þakkir fyrir skilning á nauðsyn þess, að halda úti jarðfræðitímariti hérlendis, er birti aðalgreinar á erlendum málum. Ár- gangur Jökuls fyrir árið 1980 er nú kominn vel á veg. Félagatala er nú rétt um 600. SKÁLAMÁL Segja má, að með átaki næstliðinna ára hafi skálamálum félagsins verið komið í allgott horf, enda engar framkvæmdir i skálamálum á því starfsári, sem nú er að enda, utan sú, að skálinn á Grímsfjalli var bikaður og sá Jón Isdal um það. RANNSÓKNIR Um annan meginþátt félagsstarfseminnar, jöklarannsóknir, er það að segja, sem gleðilegt má telja, að ýmsir þeirra er virkjunarmálum ráða hérlendis, eru farnir að átta sig á þýðingu þeirrar staðreyndar, að jökull er frosið vatn og þótt jöklar skríði eru þeir óvænlegri til virkj- ana en ár þær, sem undan þeim falla, en það vatn, sem í jöklunum binst, er frá þeim fall- vötnum tekið. Því hefur búskapur jökla okkar — og þar með einnig gerð þeirra, undirlag o. fl., áhrif á orkubúskap þjóðarinnar. Lands- virkjun fól á sl. ári Helga Björnssyni að kanna undirlag Tungnárjökuls með radarmæling- um. Mun Helgi fjalla um þessar mælingar og fleiri að aðalfundi loknum og hér skal því að- eins nefnt, að þær fóru fram á tímabilinu 11. apríl til 15. maí og þátttakendur í leiðangrin- um voru 7, allir úr félagi okkar, þótt leiðangurinn væri ekki á vegum þess. Að venju var farin vorferð á Vatnajökul á vegum félags okkar og nú einnig að nokkru á vegum Orkustofnunar. Er eftirfarandi út- dráttur úr greinargerð, er Kristinn Einarsson, starfsmaður hjá Guttormi Sigbjarnarsyni, sendi mér: Þátttakendur voru 16 og var farið frá Reykjavík 14. júní, en komið að jökli 20. júní og héldu flestir til Reykjavíkur sama dag. Farartæki á jökli voru Jökull I frá Jörfi ogjaki frá Landsvirkjun. JÖKULL 31.ÁR 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.