Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 85
Páskaferð Litla skíðafélagsins 1944
STEFÁN G. BJÖRNSSON
,,Til er félag í bænum, Litla skíðafélagið,
sem ferðast stundum í mestu fárviðrum
vetrarins uppum jökla og óbygðir sér til
skemtunar. Maður skyldi ætla að þetta
væru einhverjir annálaðir hreystimenn,
sjálfkjörnar þjóðhetjur, nokkurskonar
landpóstar nútímans, en fjarri fer því, þetta
eru pappírsbúkar úr ofnstofum, kontórist-
ar, búðarmenn. Þeir slá upp tjöldum sínum
á jöklum og liggja þar sólarhríngum saman
í stórhríð ef því er að skifta, — og það
kemur ekkert fyrir þá nema þeir eru heldur
hressari þegar þeir koma ofan en þegar þeir
fóru upp. Þeir hafa lært að búa sig í fjalla-
ferðir.“
Hverjir voru þeir og hvert ferðuðust þeir
„pappírsbúkarnir úr ofnstofum“, sem Halldór
Kiljan Laxness nefndi svo árið 1944 í ritgerð
sinni „Er kalt á Islandi?“ (endurprentuð í
Sjálfsögðum hlutum 1946).
Vegna snjóleysis í hinu næsta nágrenni
Reykjavíkur á árunum upp úr 1920 fór
Skíðafélag Reykjavíkur, sem L. H. Múller
hafði stofnað 1914, að flytja skíðafólk með
bílum upp á Hellisheiði; fyrsta slík ferð mun
hafa verið farin 1924 og þótti mikill viðburð-
ur. I þessum ferðum atvikaðist það svo að
nokkrir vinir og kunningjar fóru að halda
hópinn á skíðagöngum um heiðina og ein-
hvern tíma kallaði Múller þetta „Litla skíða-
félagið" og festist nafnið við þennan hóp.
Nokkrum árum seinna, árið 1936, fór Litla
skíðafélagið sína fyrstu páskaferð, en slíkar
ferðir voru farnar í 10 ár samfleytt.
Ferðir þessar verða lítillega raktar hér eftir
minni og einnig eftir blaðafréttum frá þessum
tima, en aðalfrásögnin verður helguð Hofs-
jökulsferðinni 1944.
Aðalhvatamaður [ressara páskaferða var
Tryggvi Magnússon verslunarstjóri, en hann
var góður skíðamaður og að auki fjölhæfur
íþróttamaður, úthalds- og úrræðagóður og
hinn ágætasti ferðafélagi. Þátttakendur í
flestum ferðanna voru auk Tryggva, Árni
Haraldsson, Björn Hjaltested, Einar G. Guð-
mundsson, Friðþjófur Ó. Johnson, Gunnar
Guðjónsson, Magnús Andrésson, Magnús J.
Brynjólfsson, Ólafur Haukur Ólafsson, Sig-
urður Sigurðsson, Stefán G. Björnsson og
Kjartan Hjaltested, en hann einn fór allar
ferðirnar. í fyrstu ferðinni voru einnig Guð-
mundur Sveinsson og Þórarinn Arnórsson og í
einstöku ferðum Björn Ólafsson og Guð-
mundur Kristjánsson.
Fyrsta páskaferðin 1936 var farin á Lang-
jökul. Tryggvi ritaði þá um vorið ítarlegar
greinar í vikublaðið Fálkann um þessa ferð,
undirbúning og útbúnað. Undirbúningur
þessarar fyrstu ferðar þurfti að vera óaðfinn-
anlegur, enda var vel til hans vandað og stóðst
allur búnaður þessa prófraun. Þetta var að
vissu leyti sérstæð ferð. Skíðamenn voru alls 11
og má vera, að þetta hafi verið fjölmennasti
jökulleiðangur, sem þá hafði verið farinn að
vetrarlagi hér á landi. Vegna aurbleytu varð
einungis komist á bílnum upp undir Múla í
Biskupstungum en áfram var brotist með far-
angur á hestum og kerrum upp að Geysi.
Þaðan var síðan haldið með 20 hesta, þar af
voru 7 undir klyfjum, og var enn brotist í
mikilli ófærð, snjó og krapa, upp að Einifelli
við Hagavatn. Þar fóru báðir fylgdarmenn-
irnir til baka með hestana, en göngumenn fóru
á skíðum að baki Jarlhettna, um Bláfellsjökul á
Skriöufell, síðan um hábungu Langjökuls á
Geitlandsjökul og um Þórisdal suður fyrir
Björnsfell, en jrangað komu menn frá Kára-
JÖKULL 31. ÁR 83