Jökull


Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 84

Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 84
MINNING Að afloknu heilladrjúgu ævistarfi í þágu lands og þjóðar andaðist búvisindafrömuðurinn og land- könnuðurinn Ölafur Jónsson á 86. aldursári. Meðal jöklamanna er Ólafur best þekktur af rit- verkinu Skriðuföll og Snjóflóð, sem kom út 1957 í tveimur bindum, hvort um 550 blaðsíður. Með þessu gagnmerka ritverki er lagður grundvöllurinn að íslenskri snjóflóðafræði. Ólafur kannaði ræki- lega ritaðar heimildir: Annála, tímarit, fjölda bóka og bréfa. Auk þessa leitaði hann uppi fjölda sjón- arvotta að ofanföllum víðs vegar um land og at- hugaði jafnframt ummerki og staðhætti. Ólafur kynnti sér allar fáanlegar erlendar fræðibækur um snjóflóð og snjóflóðavarnir t. d. frá Sviss og Noregi og ritaði kafla í snjóflóðabókina um erlendar snjó- flóðavarnir. Aður en Skriðuföll og Snjóflóð kom út var Ólafur orðinn kunnur meðal jarðfræðinga og annarra sem unna náttúru landsins, einkum hálendinu, því að út hafði verið gefið 1945 frá hans hendi stórverkið Odáðahraun í þremur bindum. Eftir það var hann, iðulega til aðgreiningar frá fjölmörgum nöfnum sínum, nefndur Ódáðahrauns-Ólafur. Vel mátti merkja virðingu í raddblænum þegar menn tóku það nafn sér í munn. Að sjálfsögðu var Ódáða- hrauns-Ólafur í liði Akureyringa er þeir björguðu Geysismönnum af Bárðarbungu haustið 1950. Lagði Ólafur drjúgan skerf til giftusamlegrar björgunar ekki hvað síst í skíðagönguferðinni á jöklinum. Árið 1976 kom út þriðja stórverkiö Berghlaup eftir Ólaf Jónsson. Auk þessara þriggja verka sendi hann frá sér fjölda titla, má þar nefna t. d. ljóð, skáld- Ólafur Jónsson F. 23. mars 1895 D. 16. des. 1980. sögur og æviminningar: Fjöllin blá, Örœfaglettur ogÁ tveimur jafnfljólum. Þrátt fyrir þessi miklu ritverk minnist ég þess vart að hafa heyrt hann nefndan rithöfund. Við Akureyringar nefndum hann venjulegast einfald- lega Ólaf i Gróðrarstöðinni, og það var ekki að ófyrirsynju. Hann var búfræðikandídat frá Land- búnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1924 og með áframhaldandi sjálfsnámi varð hann há- menntaður í búvísindum og jarðfræði. Ævistarf hans voru margþættar gróður- og áburðartilraunir. Hann var framkvæmdastjóri Ræktunarfélags Norðurlands um fjölda ára og síðar jarðræktar- ráðunautur Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Verkin þrjú, sem ég minntist á áðan og hv.ert um sig virðist sómasamlegur afrakstur ævistarfs, eru aðeins fristundaverk áhugamannsins. Ólafur í Gróðrarstöðinni segir sjálfur: „Öræfin hafa tví- mælalaust veitt mér besta andlega hvíld.“ Ég átti því láni að fagna að kynnast Ólafi allnáið, einkum innan vébanda Ferðafélags Akureyrar. Ólafur var afar þægilegur og notalegur ferðafélagi. II ann var fullkomlega raunsær, hvort heldur rætt var um veg eða veður. Síðan hélt samstarf okkar áfram í sambandi við framhald snjóflóðaannála Ólafs. Hljóp þá Jökull undir bagga sbr. árg. 21, 24 og 25. Ólafur hvatti landsmenn til að gefa gaum að snjóflóðahættunni og lagði til að skráning snjóflóða yrði hafm á kerfisbundinn hátt á Veðurstofu ís- lands. Honum auðnaðist skömmu fyrir andlátið að heyra að málið var komið heillavænlega I höfn. Sigurjón Rist. 82 JÖKULL 31. ÁR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.