Jökull - 01.12.1981, Blaðsíða 49
Snjóflóðaannáll áranna 1975—1980
HAFLIÐI HELGIJÓNSSON
Veðurstofu Islands, Bústaðarvegi 9, 105 Reykjavík
inngangur
Þessi samantekt er framhald fyrri snjó-
flóðaannála (Ólafur Jónsson 1957, Ólafur Jónsson
°g Sigurjón Rist 1971, Sigurjón Rist 1975). Hér
verður gerð grein fyrir tjóni af völdum snjó-
flóða, staðsetningu þeirra, fjölda á hverjum
stað og dagsetningu, en veðurfarslegum að-
draganda þeirra og lýsingum á stærðum
þeirra sleppt. Ekki er i öllum tilfellum ljóst
nakvæmlega hvenær snjóflóð urðu, eða hver
fjöldi þeirra var á tilteknum stað, þannig að
sums staðar eru óumflýjanlegar eyður.
Heimildir eru einkum starfsmenn Vega-
gerðar ríkisins og veðurathugunarmenn, en
einnig er stuðst við fréttir dagblaða og lands-
hlutablaða. Þá hafa greinagóðir menn á
nokkrum stöðum látið ýmsar upplýsingar í té.
Söfnun gagna um snjóflóð hefur tekið
verulegum framförum hin síðustu ár. Nú
vinna, t. d., Veðurstofa Islands og Vegagerð
ríkisins saman að skipulegri skráningu snjó-
flóða. Sérstökum eyðublöðum er dreift til
veðurathugunarmanna og starfsmanna
Vegagerðarinnar um allt land, og á þau skrá
þeir staðsetningar, tímasetningar og upp-
lýsingar um tjón af völdum allra snjóflóða sem
þeir verða varir við. Auk þess skrá þeir upp-
lýsingar um stærðir snjóflóðanna, gerð og eðli.
Ennfremur er samvinna með Veðurstofunni
°g nokkrum sveitarfélögum um svipaða
skráningu. Útfylltum eyðublöðum er síðan
safnað saman á Veðurstofu íslands til frekari
urvinnslu. Þar er nú m. a. verið að athuga
samhengi snjóflóða og veðurs, með það fyrir
augum, að geta út frá veðurathugunum og
serstökum snjómælingum varað við snjó-
flóðahættu.
Tiðni snjóflóða er ákaflega misjöfn á hinum
dreifðu snjóflóðastöðum. Sums staðar falla
snjóflóð árvisst, en sums staðar með áratuga
millibili. Hin síðustu ár hefur komið í ljós, að
fáeinir staðir skera sig úr hvað snertir snjó-
flóðatíðni. Eru þetta vegakaflarnir í Ólafs-
víkurenni, Óshlíð, Eyrarhlíð í Skutulsfirði og
Breiðadalsheiði, Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði,
Súðavíkurhlíð og í Ólafsfjarðarmúla. Á
þessum stöðum verða snjóflóð yfirleitt mörg-
um sinnum á hverjum vetri, og stundum svo
mörg í einu að tugum skiptir. Þykir því rétt, að
skipta þessum annál í tvennt; annars vegar í
samantekt snjóflóða á víð og dreif um landið,
og hins vegar í samantekt snjóflóða hvers
vetrar á þessum vegaköflum. Að auki eru svo
eftirhreytur frá fyrri tíð, sem hér er komið á
framfæri í viðauka.
SNJÓFLÓÐ Á VÍÐ OG DREIF
Hér er gerð grein fyrir öllu tjóni sem snjó-
flóð hafa valdið og Veðurstofu íslands hefur
borist vitneskja um. Auk þess eru hér birtar
töflur yfir snjóflóðastaðina, fjölda snjóflóða á
hverjum stað og dagsetningar snjóflóðanna.
Geymd eru þó til næsta kafla snjóflóð þau sem
orðið hafa á vegaköflunum áðurnefndu, en
tjóns af þeirra völdum er getið hér.
Þessa 5 vetur, 1975 — 1980, fórust 5 manns í
snjóflóðum. Hafa þá samtals 119 manns látið
lífið með þessum hætti frá síðustu aldamótum
(Sigurjón Rist 1975).
Veturinn 1975—1976
Snjóflóð þessa vetrareru talin upp í 1. töflu.
Ekki er vitað til að þau hafi valdið neinu tjóni.
JÖKULL 31. ÁR 47