Jökull - 01.12.1981, Side 64
fyrst skriðið þangað fram undir lok s. 1. aldar,
t. d. á árunum 1880—90. Líklegt má einnig
teljast vegna reynslu frá öðrum jöklum, að
hlaup í jöklinum hafi ýtt honum fram á þessa
garða.
2. Jökulframrás yngri en jökulhámarkn). Þegar
jökullinn var nýlega farinn að hopa nokkuð
frá hámarksjökulgörðunum hefur hann aftur
gengið frarn eða hlaupið, eftir ummerkjum að
dæma. Það framskrið hefur verið minna en
það næsta á undan, svo að víðast hvar hefur ís
numið staðar á dauðíshryggjum frá fyrra
framskriðinu. Hæð þessa hlaups hefur verið
minni, því þar sem land er hæst (t. h. á 2.
mynd) sést mestur munur á því fyrra, en á
lægsta landinu vestan Krókárfells (t. v. á 2.
mynd) sjást ekki ummerki þess, svo það hefur
að öllum líkindum gengið þar jafnlangt fram
og hið fyrra, eða e. t. v. lengra. Ekkert er vitað
um, hvenær þetta hlaup eða framskrið varð,
en líklegt má teljast að það hafi verið snemma
á þessari öld og ekki siðar en um 1920.
3. Aurþakinn jökulís, dauðís. Víða innan við
fremstu ummerki hámarksjökulframrásarinn-
ar eru mjög mikil hrúgöld og garðar, sem að
mestu eru byggð upp úr aurþöktum jökulís
allt að 40 — 45 m þykkum, þar sem ísinn er
meginhluti garðanna. Helst litur út fyrir að i
siðara sinnið hafi jökullinn hlaupið eða skriðið
fram á dauðan jökulsporð fyrra framskriðsins
(1) og lagt til mikið af [seim aur, sem nú hylur
þessa jökulgarða.
4. fökuljaðannn 1938. Samkvæmt dönsku
kortunum (Geodætisk Institut) fellur jökul-
jaðarinn 1938 alveg saman við legu fremstu
jökulgarða vestan Krókárfells, en austan þess
rétt innan við eða innan í dauðísgörðunum (3)
frá síðara framskriði jökulsins (2). Það cr því
TAFLA 1. Lengdarbreytingar á jaðri Hofsjökuls á Lambahrauni
TABLE 1. Changes in position of the edge of Höfsjökull at Lambahraun
Fjarlœgð Fjarlœgð Lengdar-
frá V3 frá VI breyting Tími IIop m/ár
Distance Distance Changes ár Recession
from V3 from VI in posit Year m/year
Hámarksframskrið undir lok s. I. aldar (Maximum advance at the end of the last century) 85 -200
Jökulframrás yngri en hámarkið (Ad- vance later than the maximum) 190 -95 -95 50 4,5
Skv. korti eftir flugmyndum árið 1938 315 30 -125
(Map 1938) Skv. korti eftir flugmyndum árið 1946 330 45 -15 8 2.0
(Map 1946) Vörðurnar V71 og \;3 hlaðnar árið 1950 385 100 -55 4 14.0
(Year 1950) 435 150 -50 5 10.0
Mæling (B. E.) árið 1955 (Year 1955) 465 180 -30 2 15.0
Mæling (B. E.) árið 1957 (Year 1957) 495 210 -30 2 15.0
Mæling (B. E.) árið 1959 (Year 1959) Flugmynd frá 1960 (Airphoto 1960) 510 225 -15 i 15.0
Skv. korti eftir flugmyndum árið 1974 (Map 1974) 685 400 -175 14 12.5
Mæling (G. S.) árið 1981 (Year 1981) 700 415 -15 7 2.0
62 JÖKULL 31.ÁR