Jökull


Jökull - 01.12.1981, Page 68

Jökull - 01.12.1981, Page 68
Mynd 2. Stuðlabergs- myndunin Risatröð á Norður-írlandi. Fig. 2. Giant’s Causeway. — Ljosm. (photo): S. Þórarinsson. ar í dagbók sína (þýðing Pálma Hannessonar eða Jóns Eyþórssonar): ,,Rétt fyrir austan túnið, í sandinum skammt frá ánni er blettur, nokkrir faðmar að ummáli, sem gerður er úr fimm- og sexstrendu stuðlabergi. Stuðlarnir standa uppréttir og teygja kollana aðeins örfáa þumlunga upp úr sandinum, en falla svo þétt saman sem flísar í gólfi. Ekki verður komist að því, hve djúpt þeir ná niður nema með miklum erfiðismunum“ (Ferðabók, 1945, bls. 266). Ekki getur Sveinn nafns á þessu stuðlabergi, en auðsætt er að um Kirkjugólf er að ræða. Næstur til að lýsa Kirkjugólfi, og mun ítar- legar en Sveinn, er enski fræðimaðurinn Ebenezer Henderson, sem ferðaðist um flestar byggðir Islands 1814—1815 og kom að Kirkjubæjarklaustri 11. sept. 1814. Tvö voru aðaláhugamál þessa öðlingsmanns í Islands- ferðinni: að dreifa biblíunni i íslenskri þýð- ingu og skoða náttúru landsins, einkum jarð- fræðileg fyrirbæri. Hann skrifaði gagnmerka bók um ferðalag sitt. Um Kirkjugólf hefur hann eftirfarandi að segja (í þýðingu Snæ- bjarnar Jónssonar, lítt breyttri): „Skammt fyrir austan Kirkjubæ er ein sú feg- ursta stuðlabergssmið, sem mjer hefur nokkru sinni komið fyrir augu. Liggur hún rjett við veginn, mitt á sandinum, og myndar nálega rjettan ferhyrning, tuttugu fet á lengd og tuttugu á breidd. Súlurnar eru nær allar fimmstrendar og tengdar saman á undursamlegan hátt. Bilin á milli þeirra eru hag- lega fyllt þunnu lagi, gulleitu, um það bil einn áttundi þumlungs á þykt. Er við fyrstu sýn likast þvi sem þvi væri smurt i með múrskeið, og væri það steinlim. En þegar nánar er aðgætt, leynir sjer ekki að þetta hefur verið fljótandi náttúrlegt sement, sem rann meðan súlurnar voru að myndast. Mesta þvermál þeirra er um níu þumlungar. Yfirborð ferhyrningsins, sem er nálega jafnhátt sandinum, er sljett eins og gangstjett, og sökum þess, hve veður hefir aflitað það, er það gráleitt að sjá, en fyrir það ber meira á því og það sker sig fagurlega úr þar sem sandurinn er svartur alt í kring. Munnmælin um þessar slóðir segja enn í dag, að súlur þessar sjeu undirstöður og gólf munkaklaust- urs, er þarna hafi verið endur fyrir löngu. Og þegar þess er gætt, að sú var tiðin, að kristnir írar voru hjer um slóðir, er það alls ekki ósennilegt, að þegar þeir fundu þessa blágrýtisstjett, kunni þeira að hafa reist á henni guðshús, einkum þar sem hún minnti mjög á Risatröð / Giants Causeway / i heimalandi þeirra“. (Ferðabók eftir Ebenezer Henderson, Snæ- björn Jónsson & Co., Reykjavík 1957, bls. 186). Stuðlabergsmyndun sú, Giant’s Causeway (2. mynd), sem Henderson vitnar til, er ein hin fegursta og frægasta er um getur. Hún er í Antrimhéraði á norðurströnd Irlands, á þvi tertíera blágrýtissvæði, sem þar er að finna. Þriðja elsta lýsingin á Kirkjugólfi er litlu yngri en lýsing Hendersons. Hún er skráð af 66 JÖKULL 31. ÁR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.