Jökull - 01.12.1981, Qupperneq 86
Mynd 1. Lagt af stað í
fyrstu ferðina 1936. Bak
Jarlhettna. Guð-
mundur, Þórarinn,
Olafur Haukur og
Tryggvi.
stöðum og Stíflisdal með hesta og var farangur
fluttur á þeim til Þingvalla, en skíðamenn
gengu. Ferð þessi tók átta daga og að sögn
Morgunblaðsins eftir heimkomu ferðalang-
anna voru þeir „allir brúnir eins og Hita-
beltisbúar og mátti hvarvetna sjá er þeir
gengu um göturnar í gær, að bæjarbúar öf-
unduðu þá af hinu hraustlega útliti eftir
dvölina í óbygðum“.
Á páskum 1937 var farin 6 daga ferð í
Kerlingarfjöll. Farið var frá Geysi um Blá-
fellsháls og Hvítárbrú til Kerlingarfjalla
nálægt Árskarðsá, en sæluhúsið var þá
ókomið. Þaðan var farið á Blágnípu og til
baka í tjaldstað. Úr Kerlingarfjöllum var
Mynd 2. Páskaeggið afhent á Skriðufelli
1936. F. v. Magnús Andrésson, Björn, Árni og
Einar.
síðan gengið í Hvítárnes og yfir Hvítárvatn og
um Bláfellsháls að Geysi. Góð þótti sú för, því
kveðið var:
Páskasveinarnir allir — átta
ösluðu gegnum krap og snjó,
höfðu nesti og nýja skó,
brennivín til níu nátta,
pneumatic tjöld og radíó
— færir í flestan sjó.
Gistu þeir hjá Geysir,
sem gusunum úr sér þeysir,
— einn varð veikur þar
af völdum flensunnar
með feber allt að fjörutíu
— fjögur strik yfir þrjátíu og níu.
Úr vöndu að ráða var,
þeir voluðu ekki par,
vasklega þoldu raunirnar.
Hinir sjö
tjöldin tvö
tóku og sleðana báða,
tóku til ráða,
tóku til sinna ráða.
Lustu geislum gadd og fönn
gneistaði undan skíðum,
drundi við í hlíðum,
drundi við í Bláfells- og Blágnípuhlíðum.
Þeir gátu loksins stoppað sig
við gnípuna bláu
— Hofsjökulshlíðina háu.
84 JÖKULL 31.ÁR