Jökull - 01.12.1981, Side 90
kvaddir. Haldið var eftir Urðarvötnum, en
þau eru um 7 km löng í tæplega 900 m hæð
yfir sjó. Veður var gott, göngufæri ágætt en
skyggni slæmt, þar sem snjór og himinn runnu
út í eitt. Eftir 22 km göngu var komið að
Geldingsá og tjaldað þar í dalverpi við ána.
Þarna fengu menn ágæta nótt enda stillt og
milt veður.
Á skírdag var stefna tekin á Illviðrahnúka,
sem brátt birtust í jaðri Hofsjökuls. Farið var
yfir Austari-polla og sá vel til gljúfranna í
Jökulsá.
Flugpóstur barst þennan dag, því dagblöð-
um dagsins var kastað niður úr flugvél F. í.;
flugmaður var Örn Ó. Johnson, en hann var
einmitt flugmaður í norðurferðinni á þriðju-
dag. Sést hafði til flugvélar á norðurleið
nokkru áður og var álitið, að leiðangursmenn
hefðu ekki sést. Þegar flugvélin kom til baka,
var þess gætt að vera á göngu á snjó. Það
dugði. Nú hnitaði hún nokkra hringi. Göngu-
menn sáust. Blöðin komust til skila.
Veður var einnig gott þennan dag, en
nokkuð háði það ferðinni að hryggir allir eða
melöldur voru snjólausar og þurfti að krækja
fyrir þær. Farið var austur fyrir Illviðrahnúka
og tjaldað í lægð jökulmegin við þá miðja eftir
23 km göngu. Til þessa hafði verið stillt og
bjart veður en nokkurt frost. Sváfu menn vel
og áttu þarna ágæta nótt.
Á föstudagmn langa var sæmilega bjart í
upphafi ferðar, en nú skyldi gengið á Hofs-
jökul. Var stefna tekin á hábungu hans. Ef vel
hefði viðrað, hefði verið hæfileg tveggja daga
ferð á hábungu. Lengi vel sást allvel norður til
Skagafjarðarfjalla, en þegar líða tók á daginn
fór veður að spillast. Brátt hvessti af austri eða
norðaustri með slyddubyl fyrst, sem fljótt
breyttist í snjókomu og harðnandi veður.
Brattinn var mikill og varð að selflytja sleðana
upp jökulinn. Var þetta erfitt mjög, enda vildi
snjór frjósa undir sleðameiðunum og varð að
skafa vel undan þeim öðru hverju. Ýmis ráð
voru reynd í ferðinni, en ekkert reyndist
óbrigðult. Eitt þeirra var að strjúka með
steinolíubleyttum klút eftir meiðunum, þegar
allur snjór eða ís hafði verið fjarlægður, en allt
fór þetta eftir hita í snjó og lofti. Þennan dag
Mynd 7. Illviðrahnúkar fram undan 1944.
voru aðeins farnir 8 km og komist i um 1320 m
hæð. Þegar hér var komið, var skyggni komið
niður í 60—80 m. Veður fór nokkuð jafnt
versnandi og þarna reyndist nú verða tjald-
staðurinn næstu þrjár nætur.
Á laugardag var vonskuveður, mikil snjó-
koma og skafrenningur. Mokað var frá tjöld-
unum á vöktum, því ekki var viðlit að halda
ferðinni áfram. Var dagurinn notaður til að
grafa myndarlegt snjóhús niður og inn í snjó-
bunguna með sætum og bekkjum og var birta
þar inni næg til ljósmyndunar. Einnig þurfti
að grafa útihús og síðan þurfti að halda
þessum mannvirkjum við, svo að þau ónýttust
ekki.
Á páskadag var enn sama illviðrið og var
vaktavinna áfram við snjómokstur. Vel þurfti
að gæta þess, að ekki bærist óþarflega mikill
snjór inn í tjöldin. Frost var nokkuð stöðugt,
um 8—12 stig, og líklega óbreytt að mestu
þessa þrjá daga, sem þarna var legið við.
Annan páskadag birti örlítið til og var þá
ákveðið að halda áfram ferðinni, þó að
skyggni væri aðeins nokkrir tugir metra.
Stefnt var að því að komast sem næst hájökli
og í átt til Blágnípu. Veður var slæmt þennan
dag og er á daginn leið var varla stætt í verstu
byljunum. Vegna verulegs hliðarhalla vildu
sleðarnir velta og þurfti stöðugt að ganga eða
renna sér með þeim og rétta þá við eða að laga
88 JÖKULL 31.ÁR