Jökull - 01.12.1981, Side 92
Mynd 10. Horft til Kerlingarfjalla 1944.
dúnalogn, þótt skafrenningur væri enn uppi á
jökli. Aðeins var gengið 16 km þennan dag,
því síðbúnir voru menn að morgni. Tjaldað
var á bersvæði einhvers staðar sunnan til á
Kjalvegi.
Á miðvikudag var gengið að Hvítárnesi í
góðviðri, 24 km samkvæmt skriðmæli.
Á fimmtudag var veður hið dásamlegasta,
sem völ er á til fjalla. Hvergi sá á dökkan díl.
Þarna var svo heitt að menn gengu berir
a. m. k. að mitti umhverfis sæluhúsið. Yfir
Hvítárvatn var nú haldið og Bláfellsháls. Það
er alltaf langt gangandi mönnum úr Hvítár-
nesi að Geysi og virtist enn lengra fyrir skíða-
menn með þunga sleða, þegar snjórinn fer að
renna sundur eins og varð út Sandvatnshlíðar,
en þar var tjaldað næstu nótt. Gengið var 26
km.
Á fóstudag var gengið að Geysi, 21 km. Bíla
þurfti að fá úr Reykjavík, bæði vörubíl og
fólksbíl, og var því gist þar síðustu nóttina,
enda voru menn seint á ferð. Sundlaugin við
Geysi hressti margan ferðalanginn.
Þrátt fyrir illviðri á Hofsjökli, sem eftir
þessa för var af sumum ætíð nefndur Ofsajök-
ull, var ferð þessi mikið æfintýri, ánægjuleg,
styrkjandi og lærdómsrík.
Tekið saman veturinn 1980—81 að beiðni
Jökuls, tímarits Jöklarannsóknafélags Islands.
ABSTRACT
The author describes the activities of Litla skíða-
félagið (the Little Ski Club). This club was formed
about 1924 by some members of Skíðafélag Reykja-
víkur (the Reykjavík Ski Club) with the purpose of
organizing ski-tours to the highland areas of Iceland.
In 1936 and the following mne years the members
used the Easter vacation for tours to the following
glaciers and skiing on them: Langjökull (1936,
1943, 1945); Kerlingarfjöll (1937); Mýrdalsjökull
(1938, 1939); Eyjafjallajökull (1940); Tindafjöll
and Tindafjallajókull (1941, 1942). The mosl
ambitious enterprise was the crossing of the interior
highland, from Vatnahjalli to Geysir, including
traversing of western Hofsjökull, April 4— 15, 1944.
Mynd 11. Tjaldað á Kjalvegi 1944.
90 JÖKULL 31. ÁR