Jökull - 01.12.1981, Page 111
mjög. Meðan núverandi kvikuvirkni helst á
Kröflusvæðinu og mikill varmi og súrar loft-
tegundir streyma frá kvikuinnskoti undir
jarðhitakerfinu má búast við vandasömum
ahrifum af útfellingum járnsteinda úr vatns-
æðum með hita yfir 300°C.
Utfelling kvars og annara kísilsteinda er
treg, jafnvel þótt kæling, sem leiðir af suðu,
valdi verulegri yfirmettun. Snerting
,,kísil-yfirmettaðs“ jarðhitavatns við and-
rúmsloftið örvar útfellingu. Gæti það stafað af
oxun og útfellingu járns, sem virkaði hvetj-
andi á kísilútfellingu. Á hliðstæðan hátt gætu
utfellingar járnsteinda verið valdar að útfell-
'ugum kristóbalíts og ópals, sem fundist hafa í
borholum í Kröflu.
Fræðilegar athuganir sýna, að magn kalk-
utfellinga, sem myndast við suðu á jarðhita-
vatni verður því meiri sem hitastig vatnsins er
lacgra en selta þess meiri. Virðast þær ekki vera
tú vandræða, nema suða hefjist í borholunni.
Reynslan í Kröflu er í samræmi við það.
Vandasamar kalkútfellingar verða úr sögunni,
Valdi nýting nægilegu þrýstifalli í jarðhita-
geyminum til að koma fyrstu suðu í kaldari
æðum úr borholum og út í vatnsæðar.
ÁHRIF KVIKUVESSA Á TÆRINGU í
JáRÐHITAMANNVIRKJUM í kröflu
Hrefna Kristmannsdóttir, Trausti Hauksson
og Sverrir Þórhallsson,
Orkustofnun
Við upptekt á vélum Kröfluvirkjunar i júní
'd' eftir 1 árs rekstur, kom í ljós óeðlilega mikil
tæring og slit á gufuveitu og vélarhlutum.
Mikið magn aðskotaefna var hreinsað úr
gufuveitu og vélum. Algengustu aðskotaefni
voru járnsúlfíð og járnoxyð, sem stafa af
málmtæringu, og kísill.
Fyrri hluta árs 1979 hafði orðið vart við
tæringu á holutoppi KG-12 og föstum með-
burði í gufu frá holunni. Meðburðurinn og
aðskotaefni sem söfnuðust í sigti í gufulögnum
1 virkjuninni reyndust vera járnklóríð, járn-
°xyð og kísill.
Talsvert magn klórvetnis er í gufunni frá
holu KG-12 og er það talið afleiðing kviku-
virkni á Kröflusvæðinu. Þessa hefur ekki gætt
í öðrurn holum á svæðinu.
Tæringarskemmdir á holutoppi KG-12 og
aðveitu frá henni stafa af tærandi eiginleikum
gufun nar.
Slitskemmdir ! gufuhverfli stafa af lausum
tæringarflögum, sem losna úr gufulögnum
vegna hitabreytinga við stopp og gangsetn-
ingu gufuveitu og vegna tærandi áhrifa frá
gufu í holu KG-12.
TVÍ-FASASTREYMI í BERGI
Valdimar Kr. Jónsson,
Verkfrœðistofnun Háskóla Islands
Stærðfræðilegt líkan af tví-fasa streymi í
bergi hefur verið gert við Jarðvísindadeild,
I.awrence Berkeley Division, Berkeley háskóla
1 Kaliforníu. Höfundur hefur dvalið þar í
nokkra mánuði bæði á þessu ári og því síðasta
til þess að vinna að þvi að nota þetta stærð-
fræðilikan á kerfi sem likist Kröflujarðhita-
svæði.
Þetta líkan getur leyst massa-, streymis- og
orkujöfnur í þrivíðu rúmi fyrir gleypt efni og
fylgst með hvernig hegðun kerfisins breytist
eftir vinnsluálagi eða niðurdælingu.
Þrjú tilfelli hafa verið athuguð.
1) Hegðun í kringum borholu þegar vinnsla
hefst ef vatnið í berginu er við suðumark i
upphafi.
2) Hegðun efra og neðra kerfis við vinnslu frá
þeim báðum.
3) Áhrif niðurdælingar af vatni i neðra kerfið.
I fyrsta tilfellinu er sýnt hvernig suða hefst
út frá borholunni og breiðist út í bergið. Holan
gefur fljótlega þurra gufu.
I öðru tilfelli er athuguð hegðun kerfis við
vinnslu bæði frá efra kerfi og neðra samfellt i
rúm 30 ár. Kemur í ljós að suða á sér stað í öllu
neðra kerfinu eftir nokkurra ára vinnslu, en öll
gufa sem reynir að stíga upp í efra kerfið þétt-
ist.
I þriðja lagi er athuguð áhrif niðurdælingar
JÖKULL 31. ÁR 109