Jökull - 01.12.1989, Blaðsíða 92
Rúmmál Grænalóns og breytingar
á stærð og tíðni jökulhlaupa
HELGI BJÖRNSSON
og
FINNUR PÁLSSON
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 5,107 Reykjavík
FLATARMÁL OG RÚMMÁL GRÆNALÓNS
Kort hafa nú verið gerð af Grænalóni svo að unnt
er að finna dreifingu flatarmáls og rúmmáls lónsins
með hæð yfir sjó og ákvarða heildarrennsli Græna-
lónshlaupa út frá breytingum á hæð vatnsborðs við
hlaupin. Flugmyndir voru teknar af Grænalóni og
næsta umhverfi nokkrum dögum eftir hlaup, sem
varð um mánaðamótin ágúst-september 1986 (Land-
mælingar íslands, myndflokkur J, nr. 9069, 9070 og
9071, 10. sept. 1986 við vatnshæð 559,1 m y. s.).
Allmörg snið voru myndmæld út frá þekktum hæð-
arpunktum Landmælinga íslands, bæði á landi og á
jökulstíflunni. Hæðarlínur á kortum bandaríska flug-
hersins frá 1945-46 (AMS-kortblöð 5919-1 og
5919-11) voru notaðar til þess að ná fram megindrátt-
um í landslagi. Neðan við vatnsborðið í 559,1 m var
eingöngu stuðst við snið, sem mælt var þegar lónið
tæmdist við hlaup í september 1935 (Jóhannes Ás-
kelsson, 1936; Guðmundur Kjartansson, 1938; Sig-
urður Þórarinsson, 1939). Bil milli hæðarpunkta var
loks brúað með þriðju gráðu margliðum (spline-föll-
um) og endanlegt hæðarkort unnið þannig að tölu-
gildi voru sett í fylki þar sem stök þess svara til
hnútpunkta í neti með femingslaga möskvum. Hver
þeirra er 25 m á kant. Á 1. mynd er teiknað kort úr
þessum stafræna kortagrunni. Á 2. mynd sést hvem-
ig flatarmál og rúmmál Grænalóns breytist með hæð
yfir sjó. Við hæstu mögulegu vatnsstöðu, um 640 m
y.s., væri flatarmál lónsins 22.5 km2, heildarrúmmál
þess 2020T06 m3 og meðaldýpið því um 90 m.
Dreifing flatarmáls og rúmmáls með hæð í
Grænalóni hefur síðastliðna fjóra áratugi verið svip-
uð því sem fram kemur í 2. mynd. Þessa ályktun má
draga af því að lega jökulstíflunnar og hæð hefur
verið svipuð á öllum loftmyndum, sem teknar hafa
verið frá 1954 (15.9. 1954, 23.8. 1960, 21.6. 1961,
28.8. 1968, 20.8. 1972, 1.8. 1979, 2.9. 1982, 6.9.
1983, 29.8. 1986 og 10.9. 1986 og Landsat-myndum
frá 22.9. 1973 og 9.8. 1978). Flatarmál lónsins hefur
á þessu tímabili verið frá 10 til 15 km2 og vatnsborð
á bilinu 560-580 m (sjá einnig Sigurjón Rist, 1970,
1973). Á 3. mynd eru sýnd nokkur dæmi um legu
1. mynd (til hægri). Kort af Grænalóni, teiknað úr stafrænum kortagrunni, sem unninn var eftir loftmyndum
frá 10. sept. 1986, AMS-korti frá 1946 og sniðmælingum þegar lónið tæmdist 1935 (Jóhannes Áskelsson,
1936; Guðmundur Kjartansson, 1938; Sigurður Þórarinsson, 1939). Sniðið frá 1935 var í suður frá hæsta
tindi Grænafjalls. Hæðarlínur eru með 5 m bili frá 565 m til 590 m, 20 m ofan við 600 m en 50 m neðan við
550 m y.s. Innsta skyggða svæðið þekur yfirborð lónsins við lok hlaupsins 1986.
Fig. 1 (right). A map ofGrœnalón, drawnfrom a digital map derived from aerial photographs taken on Sept.
lOth 1986, the AMS-map from 1946 and a surveyed section from 1935 when the lake drained completely.
90 JÖKULL, No. 39, 1989