Jökull - 01.12.1989, Blaðsíða 110
Jöklabreytingar
1930-1960, 1960-1980, 1980-1987 og 1987-1988
ODDUR SIGURÐSSON
Orkustofnun
Grensásvegi 9,108 Reykjavík
YFIRLIT
Haustið 1988 var gengið til mælinga á jökuljöðr-
um á 36 stöðum. Á 10 stöðum hafði jökull gengið
fram, staðið í stað á 2 stöðum, en hopað á 19. Tveir
staðir voru á kafi í hjamskafli og því ekki hægt að
mæla þar og á öðrum tveim stöðum var jaðar jökuls-
ins óaðgengilegur vegna lóns. Frá 4 mælingastöðum
var snúið vegna veðurs.
Hyrningsjökull hefur numið staðar á framrás sinni
en ekki er hann byrjaður að hopa aftur.
Reykjafjarðarjökull mældist kyrrstæður í fyrsta
sinn síðan framrás hans milli 1930 og 1940 lauk.
Ekki þarf þetta að þýða að hann sé að sækja í sig
veðrið því hann er skelþunnur eins og Guðfinnur
segir. Hinir útskæklar Drangajökuls sem mældir eru
hopuðu að vanda.
Sólheimajökull V gengur enn fram og vantar nú
um 230 m á að standa þar sem hann var 1936 en þá
kom síðast jökulhlaup sem stendur undir nafni úr
Jökulsárgili. Ef svo heldur fram sem horfir má búast
við hlaupi um aldamótin eða jafnvel fyrr.
Vatnajökull dregst enn saman á flestum stöðum
meðan flestir skriðjöklanna í Öræfum ganga fram
eins og undanfarinn áratug.
Brúarjökull var mældur nú eftir 5 ára hlé og hopar
hann stöðugt eins og við er að búast af honum.
NÝJA TAFLAN
Ekki hafa mér borist neinar athugasemdir við hið
nýja fyrirkomulag á töflunni svo að ég held mig
áfram við það.
ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR
DRANGAJÖKULL
Kaldalónsjökull — Pistill Indriða Aðalsteinssonar er
á þessa leið: „Veturinn fyrir jól var enginn og snjó-
laust til háfjalla. Eftir áramót snjólétt og veðurvægt.
Voraði sæmilega, júní þó sólarlítill og fremur
drungalegur svo og sumarið allt, heyskapartíð þó
góð, en með síðustu viku ágústs gekk í norðaustanátt
og úrkomur og ber þroskuðust ekki úr því vegna
bleytu og sólarskorts. Næturfrost ekki fyrr en í sept-
emberlok og gróður féll seint. Dilkar vænir. Gamall
snjór í fjöllum lítill orðinn í haust. I Kaldalóni hafa
skriðjökulsleifamar haldið áfram að þynnast og jök-
ulkverkin undir Ufnum að mestu tekin upp og orðið
jökullaust ofan í ána. Veðurfar til þessa í haust
ágætt. Lítið eftir af Skjaldfönninni, hana er nú 7.
nóvember ennþá að leysa."
Reykjafjarðarjökull — í bréfi Guðfinns Jakobssonar
getur þess að jökullitur hafi fyrst komið í ána þann 7.
júní. Sumarið í Reykjafirði var í heild votviðrasamt
einkum eftir miðjan júlí vegna þráfaldrar norðaust-
anáttar með þokum og miklum rigningum. 22. júní
gránaði í fjöll og 26. júlí fennti í fjöll og gránaði í
rót niður á láglendi. Mælingardaginn 25. ágúst var
krapahríðog skyggnislítið við jökulröndina.
Leirufjarðarjökull — í bréfi dags. 19. október 1988
getur Sólberg Jónsson þess að jökullinn hafi verið
auður að einum fimmta hluta og fannir í efstu fjöll-
um meiri en árið áður. Veturinn sérlega mildur og
snjóléttur svo snjór var með minna móti í maíbyrjun.
108 JÖKULL, No. 39, 1989