Jökull


Jökull - 01.12.1989, Síða 121

Jökull - 01.12.1989, Síða 121
E. Isdal flutti skýringar með sýningunni. Myndin er ágætasta heimild um þetta merka framtak félags- manna og jöklarannsóknir þeirra, skemmtileg, vel gerð og öllum sem að henni stóðu til mesta sóma. Hún var sýnd í ríkissjónvarpi að kvöldi nýársdags 1989. Þar sem allmargir félagsmenn sýndu áhuga á að eignast eintak af myndinni, voru gerð af henni nokkur myndbönd og fást þau keypt hjá gjaldkera félagsins. Vorfundur var haldinn 26.4.88. Helgi Bjömsson sagði þar frá ferð sinni til Svalbarða í ágúst 1987 og sýndi myndir þaðan. Svalbarði er eyjaklasi norður í höfum um 1500 km norðaustur frá íslandi, um 1100 km frá Norðurpólnum og um 800 km frá Trom- sö í Noregi. Eyjamar eru um 62 þús. km2 og að mestu huldar ís. Vestur- og norðurstrendur eyjanna eru mjög vogskomar með löngum fjörðum sem eru isilagðir um 6 mánuði á ári. Margir jöklanna ganga beint í sjó fram, einkum á austurströnd eyjanna. Helgi sagði frá atvinnuháttum, sem fyrr á öldum snerust um hvalveiðar en nú kolagröft úr lögum frá kola- og krítartímabilum jarðsögunnar þegar hnatt- staða Svalbarða leyfði mildara loftslag. Seinni hluta fundarins skoðuðu menn nýprentuð kort af vesturhluta Vatnajökuls og landi undir hon- um, sem Raunvísindastofnun hafði gert í samvinnu við Landsvirkjun. Einnig ræddu menn rannsóknir og félagsstarf yfir kaffi. Haustfundur var haldinn 25.10.88. Þar lýsti Helgi Björnsson kortasafni af vesturhluta Vatnajökuls, Eyjabakkajökli og Hofsjökli. Kort af botni jöklanna sýna áður óþekkt land, dali, hryggi og eldstöðvar (Grímsvötn, Bárðarbungu, Hamarinn og öskjuna í Hofsjökli). Enn fremur eru kort um legu ísa- og vatnaskila, ísþykkt og rennslisstefnu íss og vatns að jökulám (Köldukvísl, Sylgju, Tungnaá, Skaftá, Þjórsá, Jökulfalli, Blöndu og Jökulsánum í Skaga- firði) og að jarðhitasvæðum í Grímsvötnum og sig- kötlum norðvestan við Grímsvötn. Eftir kaffihlé sýndi Bragi Hannibalsson myndir úr vélsleðaferðum Um Kjöl og Langjökul. Þar er mikil vetrarparadís með fögru og fjölbreyttu landslagi engu síður en á Vatnajökli. Arshátíð var haldin að veitingastaðnum Norður- Ijósum 5.11.88. Margrét ísdal var veislustjóri. Skemmtunin tókst með ágætum eins og venja er en aðsókn hefði mátt vera nokkru betri. Um 63 voru á hátíðinni. VORFERÐIN 1988 (Ritari Margrét ísdal) Vorferðin á Vatnajökul var að þessu sinni 4. - 12. júní. Fararstjóri var Jón E. Isdal og þátttakendur 33. Auk hefðbundinna vorverka á Grímsfjalli og í Vötn- unum voru gerðar ýmsar mælingar og borað eftir gufu á Eystri-Svíahnjúk til reksturs mælitækja og til upphitunar á skálum. Til borunarinnar lánuðu Jarð- boranir hf. Sullivan bor og Hagvirki hf. stóra loft- pressu. Flutningar voru því miklir í þessari ferð og gekk á ýmsu. Með góðri aðstoð Landsvirkjunar og Hjálparsveitar skáta í Reykjavík komst þó allur far- angur á Grímsfjall. Fyrirhugað var að bora fjórar allt að 100 m djúpar holur, en þær enduðu allar í gufu- ríku gjalllagi á 30 - 40 m dýpi og varð ekki borað dýpra vegna hruns úr þessu lagi. Allar holumar gáfu um 90 °C heita gufu og ætti gufumagnið að nægja skálum og tækjum næstu árin. Borstjóri var Sigurður Guðmundsson og með honum boruðu Bragi Skúla- son og Jón Kjartansson. Aðstoð veittu einnig Hjalti Gunnarsson, Bárður Harðarson, Eggert ísdal og Jó- hannes Sigurðsson. Mælingar og töku svarfsýna annaðist Einar Gunnlaugsson og margir aðrir léttu undir. Hitaveitustjóri Grímsvatnahrepps, Jón Sveinsson, var fljótur að tengja eina holuna við ofn- rör í nýja skálanum og skilaði hún strax 70 °C ofn- hita. Gissur Símonarson hafði með sér tjalddúk og plastboga og reisti baðhús yfir gufuauga á Saltaran- um sem óspart var notað til baða og annarrar skemmtunar. Veður var fremur leiðinlegt framan af, dumbungur í lofti, þoka og úrkoma. Rannsóknir í Vötnunum hófust því ekki fyrr en á þriðjudegi þegar þokan minnkaði. A miðvikudegi sást til sólar og á fimmtudegi var komið hið fegursta veður í Gríms- vötnum og allt í kringum Grímsfjall, en á fjallinu sátu þeir sem þar unnu í þoku og strekkingsvindi. A föstudegi var síðan glampandi sól og léttskýjað. Að- faranótt laugardags var lagt af stað niður og komu flestir til byggða á sunnudagskvöldi. I gestabók nýja skálans á Grímsfjalli sést að þangað hafa komið 124 í 18 leiðöngrum á þessu fyrsta ári skálans á fjallinu. JÖKULL, No. 39, 1989 119
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.