Jökull - 01.12.1990, Qupperneq 182
og óvíst hvort erlendir ritstjórar kæmu auga á gildi
margra markverðra greina, sem vörðuðu rannsóknir
hér á landi. Þá má minna á að nemendum í jarðvísind-
um við Háskóla íslands er mikil stoð í Jökli.
FRÉTTABRÉF
Fréttabréf félagsins hefur nú komið út 28 sinnum
frá því það fyrst birtist í janúar 1984; að jafnaði fjór-
um sinnum á ári. Einar Gunnlaugsson, ritari félagsins,
hefur annast útgáfu þess frá upphafi og unnið þar mjög
mikilvægt starf. Bréfið flytur örar fréttir af félags-
starfinu en Jökull og bætirþví tengsl milli stjórnar og
félaga.
GÖMUL GÖGN UM JÖKLA OG SÖGU
FÉLAGSINS
Það verður nú stöðugt brýnna að bjarga frá glötun
gömlum gögnum um jökla, rituðum heimildum jafnt
sem ljósmyndum og kvikmyndum. Frá því um síðustu
aldamót hafa orðið miklar breytingar í loftslagi hér á
landi og stærð jökla. Enn eru víða til gögn um þessar
breytingar, sem við verðum að varðveita sem reynslu
okkar kynslóðar af áhrifum loftslags á jökla hér á
landi. Það hlýtur að vera okkur allflestum kappsmál
að skila svo gagnlegri þekkingu til afkomenda okkar.
Við hljótum einnig að geta sameinast um að láta það
ekki um okkur spyrjast um ókomna eilífð að við höfum
verið þeir aular að glopra niður slíkri vitneskju. Það
er okkur einnig mikilvægt að varðveita sögu jökla-
rannsókna hér á landi, skrá hvers vegna fyrirrennarar
okkar fóru á jökul, hvað dreif þá, hvernig þeir söfn-
uðu smám saman aukinni vitneskju um jökla, hvernig
þeir ferðuðust á jöklum: fótgangandi, á skíðum, hest-
um, hundasleðum, vélsleðum, snjóbílum af ýmsum
gerðum og nú jeppum. Yfirsýn yfir þessa sögu þarf
til þess að við getum séð framlag okkar í samhengi.
Án yfirsýnar og samhengis verðum við stefnulaus og
ráðvillt.
Ýmis frumgögn frá mælingum á jökulsporðum frá
fyrrihluta þessarar aldar hafa ekki enn fundist þrátt
fyrir mikla leit. Enn söknum við fyrstu gestabók-
arinnar frá Grímsfjalli og bókarslitra, sem fundust í
skálanum, sem fauk í Esjufjöllum, en nú eru týnd.
Ég hvet félaga til þess að leita uppi gömul gögn um
jökla og sögu félagsins. Sem dæmi um mikinn áhuga
á varðveislu heimilda get ég nefnt að Ámi Kjartans-
son hefur heimilað félaginu eftirtöku á myndband af
gömlum kvikmyndum sínum og Magnús Jóhannsson,
útvarpsvirki, hefur sent okkur gamlar ljósmyndir fra
Grímsvötnum.
SKÁLAMÁL
Hús félagsins eru nú 11,9 skálar og tvær geymslur.
I Jökulheimum eru tveir skálar, annar frá 1955 og hinn
reistur 1965. Auk þess er þar bílskúr frá 1958 og
eldsneytisgeymsla byggð 1963. Tveir skálar eru á
Grímsfjalli, annar frá 1957 og hinn reistur 1987, einn i
Kverkfjöllum (frá 1977), einn á Goðahrygg (frá 1979),
einn í Esjufjöllum (frá 1977) og annar í Kirkjubóh
við Langjökul, reistur 1979. Alls er flatarmál þessara
húsa um 285 fermetrar. Með því að reisa þessa skála
hefur félagið auðveldað ferðalög, björgunarstörf og
rannsóknir á jöklum.
Ekki er nú stefnt að byggingu fleiri skála á næst-
unni heldurmun áhersla lögð á að koma áreglubundnu
viðhaldi þeirra, sem þegar hafa verið reistir. Það starf
er þegar hafið. I byrjun júní fóru 7 félagar á 2 jeppum
í Esjufjöll og báru á hann fúavöm og máluðu lista.
Hinn 11.-13. ágúst fór Kvenfélag Grímsvatnahrepps
til Jökulheima og þar endurreistu þær gamla skálann,
hreinsuðu hann og máluðu og skiptu um dýnur í koj-
um. Samtímis var smíðaður pallur við nýja skálann.
í 20 manna haustferð félagsins í Jökulheima var
lokið við frágang pallsins og komið upp nýju Vatikani
á hraunsprungu um 100 m NNA við nýja skálann.
Framundan er að ljúka viðhaldi á bílskúr og
eldsneytisskemmu í Jökulheimum. Á Grímsfjalli þarf
að þétta gólf í gamla skálanum og koma sams konar
hitaveitu íhann og nú er í nýja skálanum. Með aukinni
umferð á Vatnajökli er orðið augljóst að félagið verður
að koma upp læstri geymslu á Grímsfjalli fyrir birgðir,
tæki og eldsneyti.
SEPTEMBERFERÐ
í haustferð félagsins til Jökulheima, 15.-17. sept-
ember, fóru 20 manns undir stjóm Stefáns Bjamason-
ar. Veður var frekar hryssingslegt. Ekið var inn i
Tungnaárkrók og skoðaðar miklar breytingar, sem þaf
178 JÖKULL,No. 40, 1990