Jökull


Jökull - 01.12.1990, Page 183

Jökull - 01.12.1990, Page 183
hafa orðið á síðustu árum. Þar sem áður var þverhnípt jökulstál er nú aflíðandi jökulbrekka og framan við hana hefur mikið nýtt land komið í ljós. Kvöldvakan tókst mjög vel að vanda. I ferðinni var gengið frá palli við nýja skálann og Vatíkani eins og fyrr var greint. STIKUÐ LEIÐ INN í JÖKULHEIMA Helgina 30. september til 1. október fór hópur félaga á þremur bílum inn í Jökulheima og setti á leið- inni niður stikur, sem fengnar voru hjá Vegagerðinni. Frá því Sigurjón Rist o.fl. settu stikur á þessa leið fyrir 25 árum höfðu margar þeirra fallið vegna frostlyfting- ar, snjóþyngsla og árekstra við flutning nýja skálans til Grímsfjalls árið 1987. Er komið var sem leið lá að norðurtöglum Þóristinds var vikið af leið og farin nokkuð bein stefna inn fyrir Vatnaöldur. Komið var aftur inn á gömlu slóðina sunnan við þann stað þar sem Vatnakvíslin fellur ofan í hraunið. Með þessu móti var sneitt fram hjá lægðum, sem oft voru erfiðar yfirferðar á vorin vegna krapa og styttist leiðin við það um 1.5 km. húsnæðismál Frá árinu 1985 hefur félagið leigt herbergi í Bakka- gerði 9 í Reykjavík og geymt þar birgðir okkar af Jökli °g nokkur önnur skjöl. Stjórnarfundi höfum við hald- >ð s.l. ár í Tæknigarði á háskólalóðinni og almenna félagsfundi hér í Lind á Rauðarárstíg. Tækjageymslu hefur félagið hins vegar enga í Reykjavík. Það er skoðun stjórnar Jörfi að félagið þyrfti á komandi ár- um að eignast á höfuðborgarsvæðinu geymslu fyrir snjóbíl og annan ferðaútbúnað, um 80-90 fermetra, og geymslu fyrir tímaritið Jökul og bækur félagsins með aðstöðu til funda í stjóm félagsins, um 50 fermetra. Á aðalfundi í fyrra var frá því skýrt að rætt hefði verið við Ferðafélag íslands um að Jörfi gæti hugsanlega fengið inni í væntanlegu húsi félagsins að Mörk 6 í Reykja- vík. Stjórn Ferðafélagsins hefur síðan lýst eindregnum vilja til þess að eiga samstarf um húsamál við Jökla- rannsóknafélagið og lagt fyrir byggingamefnd sína að líta til ábendinga félagsins um stærð og gerð þess hús- næðis, er félagið hefur talið sig þurfa til starfsemi sinnar. Stjóm Ferðafélagsins telur leigusamning við Jöklarannsóknafélagið æskilegri kost en sameignar- samning og er fús til samninga um leigu til langs tíma. Því er við að bæta að Stefán Bjamason, meðstjómandi í okkar félagi, situr í byggingamefnd Ferðafélagsins. Grunnur að Mörk 6 hefur verið grafinn en teikningar eru í endurskoðun og byggingarmálin því í biðstöðu. Stjómin mun því bíða eftir framvindu byggingarmála Ferðafélagsins og ekkert aðhafast í húsnæðismálum okkar hér í borg fyrr en þau skýrast. BÍLAMÁL OG FARARTÆKI Félagið á nú einn snjóbíl, Bombardier af árgerð 1972. Hann er geymdur í Jökulheimum. Dráttarsleð- ar félagsins eru nú þrír. Á liðnu ári gerði bílanefnd upp gamlan sleða, sem síðast var notaður við borunina á Bárðarbungu 1972. Nokkur umræða hefur verið með- al félagsmanna um endumýjun bílakosts. Undanfarin ár höfum við notið aðstoðar frá Landsvirkjun, sem lagt hefur til bíl í vorferð félagsins þar sem ekki hefur verið fært að fara einbíla með allan farangur okkar til Grímsvatna. Á síðasta vori fékkst sú aðstoð ekki þar sem snjóbíll Landsvirkjunar var bilaður og svo fór að vorferð með venjulegum hætti féll niður. Skotist var á Grímsfjall á jeppa til þess að sinna nauðsynlegustu verkunum eins og frá var greint hér að framan. Við væntum þess vissulega að á komandi árum verði unnt að fá aðstoð Landsvirkjunar við vorferðir á Vatnajökul. í rannsóknaferðir á öðrum tímum árs eða á öðrum jöklum, t.d. Mýrdalsjökli, þurfum við hins vegar að vera sjálfbjarga með flutning á mælitækjum, eldsneyti og fólki. Því væri æskilegt að eignast annan snjóbíl við hlið Bombans. Við flestar jöklamælingar, t.d. íssjármælingar, nægir okkur að eiga lítinn bíl, t.d. af þeirri gerð sem fyrir nokkrum árum fékkst að láni í vorferðir frá Vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Jepp- ar duga enn lítt til dráttar, en munu vissulega nýtast vel þegar skreppa þarf með léttan farangur á jökul og þeir eru á margan hátt þægilegri og öruggari en vélsleðar. Á allra síðustu árum hafa orðið miklar framfarir í gerð farartækja sem reynast vel til jöklaferða og svo mun áreiðanlega verða með auknum áhuga á torfæru- bílum. Áfram mun fylgst með þessum framförum en það má ekki dragast lengi enn að ákveða hvers konar farartæki félag okkar ætti að stefna að því að eignast. Við þá ákvörðun ætti að láta þarfir okkar ráða, en ekki þröngan fjárhag. Þegar við vitum hvað við viljum, JÖKULL, No. 40, 1990 179
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.