Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 24.–27. október 201418 Fréttir
byssurnar voru ekki gjöf heldur keyptar
L
andhelgisgæslan keypti 250
hríðskotabyssur af norska
hernum og borgaði fyrir þær
tæpar tólf milljónir íslenskra
króna. Þetta staðfesti Dag Rist
Aamoth, ofursti í norska hernum, í
samtali við DV á fimmtudag.
Samningur um kaup á hríðskota-
byssunum var undirritaður þann 17.
desember síðastliðinn. Byssurnar
voru fluttar til Íslands stuttu eftir
áramót.
Þar með hefur verið afhjúpað að
bæði Jóhannes Þór Skúlason, að-
stoðarmaður Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, og Jón F. Bjart-
marz, yfirlögregluþjónn hjá embætti
ríkislögreglustjóra lugu að almenn-
ingi.
Því hefur verið haldið fram af
bæði Jóni F. Bjartmarz og Haraldi
Johannessen að Landhelgisgæslan
hafi haft milligöngu um að koma
hríðskotabyssunum í hendur lög-
reglunnar. Fjöldi byssa sem lög-
reglan hefur fengið hefur verið á
reiki. Jón sagði í Kastljósi að um væri
að ræða 150 byssur en þegar þeir
sátu fyrir svörum á fundi allsherjar-
og menntamálanefndar sögðu þeir
að um væri að ræða 200–300 byssur.
Vopnavæðing hófst með
skýrslunni
Samkvæmt heimildum DV var gíf-
urlegur þrýstingur í byssumálinu
af hálfu lögregluyfirvalda á fulltrúa
nefndar sem fjallaði um grund-
vallarskilgreiningar löggæslu á Ís-
landi og gerð löggæsluáætlunar fyrir
Ísland. Sú nefnd skilaði af sér hinni
margumtöluðu „Ögmundarskýrslu“.
Í fyrstu drögum skýrslunnar, sem
virðast hafa verið skrifuð nær alfar-
ið af lögreglufulltrúum, var hvatt
til vopnavæðingar og talað berum
orðum um byssur. Í lokaútgáfu var
hins vegar einungis talað um „bún-
að“. Skýrslan hefur verið notuð sem
rökstuðningur fyrir vopnavæðingu
lögreglunnar, til að mynda ítrek-
að í viðtali Kastljósi við Jón F. Bjart-
marz. Óumflýjanleg niðurstaða er
að undirbúningur við vopnavæð-
ingu lögreglunnar hafi raunar stað-
ið yfir í það minnsta frá árinu 2012.
Rekja má málið til núverandi
ráðherra
Rekja má upphaf skýrslunnar til
þingsályktunartillögu sem Gunn-
ar Bragi Sveinsson, núverandi
utanríkis ráðherra, lagði fyrir Alþingi
þann 4. október árið 2011. Með-
flutningsmenn, ásamt Gunnari
Braga, voru tólf, allir úr núver-
andi stjórnarflokkum og eru fjórir
þeirra ráðherrar í dag, þar á meðal
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Þingsályktunartillagan var svo sam-
þykkt, eftir minni háttar breytingar,
án mótmæla þann 19. júní 2012.
Markmið var líkt og fyrr segir að
gera grundvallarskilgreiningu á
löggæslu og sömuleiðis að gera lög-
gæsluáætlun.
Tíu manna nefnd
Í kjölfar þess að þingsályktunar-
tillagan var samþykkt var skipuðu
níu manna nefnd. Eftirfarandi að-
ilar sátu í nefndinni: Siv Friðleifs-
dóttir alþingismaður, tilnefnd af
þingflokki Framsóknarflokksins,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir al-
þingismaður, tilnefnd af þingflokki
Sjálfstæðisflokksins, Sjöfn Krist-
jánsdóttir héraðsdómslögmaður,
tilnefnd af þingflokki Hreyfingar-
innar, Arndís Soffía Sigurðardóttir
lögfræðingur, tilnefnd af þingflokki
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs, Jónína Rós Guðmunds-
dóttir alþingismaður, tilnefnd af
þingflokki Samfylkingarinnar,
Snorri Magnússon, formað-
ur Landssambands lögreglu-
manna, tilnefndur af Landssam-
bandi lögreglumanna, Haraldur
Johannessen ríkislögreglustjóri, til-
nefndur af embætti ríkislögreglu-
stjóra, og Skúli Þór Gunnsteinsson
lögfræðingur og Þórunn J. Hafstein
skrifstofustjóri, tilnefnd af innan-
ríkisráðherra. Þórunn var jafnframt
formaður nefndarinnar.
Almennt orðalag notað til
rökstuðnings
Niðurstaða nefndarinnar var að
setja þrjú atriði í forgang, en tvö
þeirra snúast raunar um vopna-
væðingu þótt talað sé undir rós.
„Forgangsatriði eitt er að fjölga al-
mennum lögreglumönnum sem
annast útköll og almennt lögreglu-
eftirlit og bæta nauðsynlegan bún-
að og þjálfun því tengdu,“ segir í
skýrslunni. Í fyrstu hljómar þetta
almennt en einn helsti rökstuðn-
ingur lögreglunnar fyrir vopna-
væðingu hefur verið viðbragðstími
sérsveitarinnar. Í mörgum tilfell-
um þýðir „búnaður“ einfaldlega
byssur. Þriðja forgangsatriði er svo
að „bæta búnað lögreglu og þjálf-
un lögreglumanna“, aftur er talað
um búnað sem raunar má líta á
sem dulmál fyrir byssur.
Búnaður í stað byssa
Í frumriti skýrslunnar var þó talað
tæpitungulaust og talað um byssur
en ekki „búnað“. Við einfalda leit
í núverandi skýrslu má ítrekað
finna setningar þar sem vitnað
er einvörðu til „búnaðar“. Þar má
nefna: „fjöldi og þjálfun lögreglu-
manna og búnaður þarf að vera í
samræmi við þær ógnir sem lög-
reglan þarf að takast á við“ og
„stytta viðbragðstíma við útköll
n Mikill þrýstingur um vopnavæðingu á fulltrúa í „Ögmundarnefndinni“ n Skýrslunni breytt n Landhelgisgæslan flutti inn hríðskotabyssur árið 2011
Atli Már Gylfason
Hjálmar Friðriksson
atli@dv.is / hjalmar@dv.is
Á
rið 2011 keypti Landhelgis-
gæslan 50 hríðskotabyssur
af norska hernum. Fyrir
byssurnar greiddi hún
22.314 dollara eða rúmlega
tvær og hálfa milljón miðað við
gengi um mitt ár 2011. Innflutn-
ingurinn er undir liðnum „Military
firearms“ eða herbyssur og með
fylgir verðið sem Landhelgisgæslan
greiddi en það gerir um 50 þúsund
krónur á hverja byssa.
Þetta kemur fram í tveimur
gagnagrunnum sem halda utan
um viðskipti á milli þjóða. Annars
vegar er um að ræða NISAT, gagna-
grunn norska ríkisins sem heldur
utan um sölu á vopnum til annarra
þjóða, og hins vegar UNcomtrade,
gagnagrunn Sameinuðu þjóðanna
sem heldur utan um allan inn- og
útflutning landa.
Innflutningurinn á 150 MP5-
byssum fyrir ríkislögreglustjóra er
hvorki kominn í gagnagrunn Norð-
manna né Sameinuðu þjóðanna
og því ekki hægt að vita fyrir víst
hvort og þá hvað hafi verið greitt
fyrir þær. Eitt er þó víst og það er að
Landhelgisgæslan hafi, að beiðni
lögreglunnar, haft milligöngu um
að útvega lögreglunni búnað frá
Norðmönnum. Þetta staðfesti upp-
lýsingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar.
Í viðtali Kastljóss við Jón F. Bjart-
marz, yfirlögregluþjón hjá ríkislög-
reglustjóra og yfirmann sérsveitar-
innar, kom fram að byssurnar hafi
verið gjöf frá Norðmönnum og að
þessar 150 MP5-byssur sem emb-
ættið fékk hafi verið „í sama pakka“
og byssur sem Landhelgisgæslan
flutti inn. Miðað við þær útskýr-
ingar þá skýtur það skökku við að
Landhelgisgæslan borgi fyrir sínar
byssur en að ríkislögreglustjóri hafi
fengið töluvert meira magn af þeim
án þess að greiða krónu fyrir. Þess
ber að geta að norska lögreglan,
samkvæmt frétt norska miðilsins
VG, sóttist eftir þessum sömu byss-
um fyrir sitt eigið lögreglulið.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri og Jón F. Bjartmarz, yfir-
lögregluþjónn hjá sama embætti,
sátu fyrir svörum á fundi allsherj-
ar- og menntamálanefndar á mið-
vikudaginn. Á fundinum voru þeir
spurðir um hversu mikið magn af
hríðskotabyssum hafi verið flutt inn
til landsins. Svörin þóttu ekki ná-
kvæm og töluðu þeir um að á milli
200 og 300 byssur hafi verið fluttar
til landsins.
DV hefur sent bæði Haraldi og
Jóni fyrirspurn vegna innflutnings á
hríðskotabyssunum en henni hefur
ekki verið svarað.
Landhelgisgæslan keypti
MP5 á 50 þúsund krónur stykkið
n Fluttu inn 50 MP5-hríðskotabyssur árið 2011