Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 19
Helgarblað 24.–27. október 2014 Fréttir 19 byssurnar voru ekki gjöf heldur keyptar n Mikill þrýstingur um vopnavæðingu á fulltrúa í „Ögmundarnefndinni“ n Skýrslunni breytt n Landhelgisgæslan flutti inn hríðskotabyssur árið 2011 S amkvæmt skýrslu um stöðu lögreglunnar á Íslandi frá árinu 2012 þá áttu lögreglu- embættin á Íslandi 449 vopn af ýmsum toga. Má þar helst nefna skammbyssur, en þær voru 254 talsins, og þá næst sjálfvirk vopn sem voru 60 talsins. DV hefur óskað eftir upplýsing- um frá ríkislögreglustjóra um þann fjölda vopna sem embættið á í dag. Ekkert svar hafði borist þegar blað- ið fór í prentun. Það er því aðeins hægt að miða við tveggja ára gaml- ar tölur en hægt er að sjá spurn- ingar sem DV lagði fyrir ríkislög- reglustjóra í úttekt dagsins. Aðeins tvö embætti voru skráð með sjálfvirkar byssur árið 2012 en það voru embætti ríkislög- reglustjóra með 58 sjálfvirk vopn og embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum með tvö sjálfvirk vopn. Vopnaeign lögreglustjórans á Suðurnesjum tengist alþjóðaflug- vellinum á meðan vopnaeign ríkis- lögreglustjóra tengist sérsveitinni. Ítrekað hafa ráðamenn í lög- reglunni bent á að verið sé að endurnýja gamlar hríðskotabyss- ur sem ávallt hafi verið til og verið aðgengilegar. Það er beinlínis útúr- snúningur því þó að vissulega hafi verið til hríðskotabyssur hér á landi þá hafi þær eingöngu verið að- gengilegar sérsveitinni og lögreglu- mönnum við flugvallareftirlit. Önnur embætti höfðu aðeins skamm- byssur, í örfáum tilfell- um riffla og haglabyss- ur. Flestar skammbysur voru hjá ríkislögreglu- stjóra eða 78 en á Suðurnesjum voru þær 42. Þó ber að minna á að þetta eru tölur frá 2012. Í upp- talningu á vopnaeign lögreglunnar í skýrslunni er liður sem nefnist „önnur vopn“ en ekki er farið nánar út í það hvers konar vopn það eru. Ríkislögreglustjóri á til að mynda 9 „önnur vopn“ á meðan lögregluembættið á Akur- eyri á 4 „önnur vopn.“ Fæst vopn á Sauðárkróki Lögregluembættið á Sauðárkróki á fæst vopn eða þrjú talsins, allt skammbyssur. Á eftir Seyðisfirði koma embættin á Sauðárkróki, Húsavík og í Vestmannaeyjum með fimm vopn hvert. Embætti ríkislögreglustjóra á flest vopn og eru þau 202 talsins. Á eftir þeim kemur embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum með 52 vopn og embætti lögreglustjórans á höfuð- borgarsvæðinu með 41. Jón F. Bjartmarz, yfirlögreglu- þjónn ríkislögreglustjóra og yfir- maður sérsveitarinnar, hefur sagt í fjölmiðlum að um hefðbundna endurnýj- un á vopna- búnaði lög- reglunnar sé að ræða. Þá hefur hann, máli sínu til stuðnings, vísað í þessa skýrslu frá árinu 2012 og fjallað um stöðu lögreglunnar. Ef litið er einmitt á þessa skýrslu og bornar eru saman tölur um sjálfvirk vopn árið 2012 og 2014 þá kemur í ljós að fjölga á MP5-byssum um nærri því 200% – úr 60 vélbyssum í 150. Vildu endurnýja ónothæfan skrifstofubúnað Í skýrslunni, sem lögregluyfirvöld vonuðust til að myndi knýja fram úrbætur, er fjallað um búnað lög- reglunnar en þó er hvergi minnst á að byssur séu úreldar, eins og fram hefur komið í máli fjölmargra lögreglumanna. Þar er aðeins rætt um að skrifstofubúnaður sé úr sér genginn. „Eignakaup og endurnýj- un búnaðar í algjöru lágmarki. Á sumum stöðum eru fyrirliggj- andi athugasemdir og lokafrest- ir frá Vinnueftirliti vegna lélegs/ ónothæfs skrifstofubúnaðar o.fl. Búnaður lögreglu til sjóbjörgunar hefur ekki verið endurnýjaður og fleira mætti nefna,“ segir í skýrsl- unni. Vopnaeign lögreglunnar árið 2012 eftir embættum Skammbyssur: Rifflar: Sjálfvirk vopn: Haglabyssur: Önnur vopn: Samtals: RLS 78 30 58 27 9 202 LRH 28 5 8 41 LSR 18 1 3 22 Suðurnes 42 2 5 3 52 Akranes 7 1 1 9 Borgarnes 9 1 2 12 Snæfellsnes 6 3 9 Vestfirðir 10 1 1 3 15 Blönduós 3 2 5 Sauðárkrókur 3 3 Akureyri 19 3 4 4 30 Húsavík 3 2 5 Seyðisfjörður 5 3 8 Eskifjörður 9 1 1 3 14 Vestmannaeyjar 4 1 5 Hvolsvöllur 6 2 8 Selfoss 4 1 4 9 Samtals: 254 37 60 48 50 449 Hvað á lögreglan mikið af vopnum? Áttu 60 sjálfvirk vopn á öllu landinu árið 2012 Spurningar DV til ríkislög- reglustjóra Enn hafa engin svör borist við fyrirspurnum DV Við vinnslu DV á fréttinni um vopna- væðingu íslensku lögreglunnar var haft samband við ríkislögreglustjóra, innan- ríkis- og dómsmálaráðuneytið. Þessir aðilar fengu hnitmiðaðar spurningar sem sneru að innflutninginum á 150 MP5-hríðskotabyssum til landsins. Engin svör bárust við spurningunum. DV hefur nú aftur sent spurningar á ríkislög- reglustjóra og er nú meðal annars spurt um fjölda vopna í eigu embættisins. Einu tölurnar sem liggja fyrir um fjölda vopna í eigu lögreglunnar eru frá árinu 2012. Spurningar sem lagðar voru fyrir Harald Johannessen, ríkislögreglustjóra og Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjón hjá ríkislögreglustjóra og yfirmann sérsveitarinnar: 1. Í skýrslu frá árinu 2012, þar sem fjallað er um stöðu lögreglunnar, þá kemur fram að embætti ríkislögreglustjóra hafi yfir 202 vopnum að ráða, þar af væru 78 skammbyssur og 58 sjálfvirk vopn. Hver er staðan á fjölda vopna í eigu ríkislögreglustjóra í dag? Það væri gott ef hægt væri að fá svipaða sundurliðun og birtist í skýrslunni. 2. Hvenær var sú ákvörðun tekin að flytja inn/þiggja vopnin af norska hern- um? Hver tók þá ákvörðun og í samráði við hvern var hún tekin? 3. Hvenær fór sú vinna af stað hjá RLS að útvega umræddar MP5-byssur? 4. Talað er um endurnýjun á vopnabún- aði lögreglunnar – hvaða vopn er verið að endurnýja nákvæmlega? Hversu mörgum byssum verður fargað? 5. Í skýrslunni er vikið að sérstöðu ríkis- lögreglustjóra hvað varðar vopnaeign og hún sögð helgast af sérsveit ríkislög- reglustjóra – er ekki verið að breyta þessari sérstöðu með því að bjóða öllum embættum upp á þessar MP5-byssur sem voru fluttar inn til landsins? 6. Fram hefur komið í viðtölum við bæði almenna lögreglumenn og yfirlögreglu- þjón RLS að MP5-byssan sé mun ör- uggari en Glock-skammbyssan. Hvaðan er sá samanburður fenginn? 7. Embætti RLS fullyrðir að ekki sé um að ræða eðlisbreytingu á vopnaburði lögreglumanna – hvernig er ekki hægt að líta á það sem eðlisbreytingu á vopnaburði þegar öllum embættum bjóðast nú MP5-byssur þegar aðeins lögreglan á Suðurnesjum (þá vænt- anlega vegna Keflavíkurflugvallar) og ríkislögreglustjóri höfðu aðgang að þessum vopnum áður? 8. Hvað voru nákvæmlega margar byssur fluttar inn til landsins? 9. Voru einhverjar byssur fluttar inn á árinu 2013? 10. Hvernig kemur Landhelgisgæslan að þessum innflutningi fyrir RLS? og styrkja hana til þess að takast á við erfið verkefni með aukinni þjálfun og auknum búnaði“. Í ljósi málflutnings yfirmanna lögreglu síðastliðna daga er fyrst og fremst verið að tala um byssur. Stýrt af ópólitískum nefndar- mönnum Heimildir DV herma að þrátt fyrir að nefndin hafi verið að nafn- inu til þverpólitísk þá hafi raun- ar allt nefndarstarf sem og skýr- slugerð verið í höndum ópólitísku nefndarmannanna, Snorra Magn- ússonar, Haralds Johannessen, Skúla Þórs Gunnsteinssonar, og formannsins Þórunnar J. Hafstein. Heimildir DV herma að þessir að- ilar hafi skilað af sér frumútgáfu skýrslunnar þar sem talað var um byssur. Sumir nefndarmenn hafi hins vegar mómælt því og þannig var farið að tala um „búnað“ en ekki byssur. Heimildir DV herma að á fundum hafi enn fremur verið talað um skotvopn.n M ér finnst þetta bara alveg svakalegt. Maður fyllist bara hrolli,“ segir Sigríður Ósk Jónasdóttir, systir Sævars Rafns sem lést í átökum við lögregluna á heimili sínu í Hraun- bæ fyrir tæpu ári. Hún telur að lög- reglumenn á Íslandi séu ekki nægi- lega agaðir til að hafa aðgang að hríðskotabyssum. „Mér finnst íslenskir lögreglu- menn ekki vera í stakk búnir til þess að bera vopn. Þeir eru ekki með þá þjálfun sem þeir þurfa að vera með. Þeir eru bara ekki nógu agaðir eins og hefur sýnt sig. Mér finnst að í ljósi þess sem búið er að gerast, bæði í Hraunbæ og öðrum málum, – hvernig lögreglan bregst við, að þeir hafi ekki stjórn á sér. Maður spyr sig bara hvað gerist ef þeir fá byssur. Þeir hljóta að þurfa sérstaka þjálfun og að vera agaðir til að geta borið þessi vopn. Ég er ekki að tala um alla lögreglumenn en það eru þarna inni á milli menn sem hafa ekki aga til að bera vopn,“ segir Sigríður. Hvað varðar mál bróður síns segir hún að lögreglan hafi gert alvarleg mistök. „Þar gera þeir bölvað vitleysu í upphafi, þegar það var komið í gang var ekki aftur snúið,“ segir Sigríður. Í umræðunni um vopnavæð- ingu lögreglunnar hefur komið tals að fram til þessa hafi sérsveitin einungis haft aðgang að sjálfvirkum byssum. Sérsveitarmenn þurfa reglulega að fara í álagspróf þar sem sálrænt ástand þeirra er metið. „Mér finnst það ekki spurning að það ætti að láta almenna lögreglu- menn fara í það. Það ætti algjörlega að fylgja með.“ Gunnar Bragi Sveinsson Rekja má upphaf skýrslunnar til þingsálykt- unartillögu sem Gunnar Bragi Sveinsson, núverandi utanríkisráðherra, lagði fyrir Alþingi þann 4. október árið 2011. Systir Sævars: „Maður fyllist bara hrolli“ Jón F. Bjartmarz Yfirlög- regluþjónn hjá ríkislögreglu- stjóra flutti inn, fyrir hönd embættisins, 150 MP5-hríð- skotabyssur. Hann segir þær öruggari en skammbyssurnar sem embættin eiga nú þegar. Mynd SkJáSkot úR kaStlJóSi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.