Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 34
Helgarblað 24.–27. október 201434 Neytendur Fimmfalt dýrara að panta sér pítsu n Bakaðu eigin útgáfu af pítsu á matseðli fyrir aðeins 555 krónur n Sparar þúsundir króna Þ að getur verið þægilegt að rífa upp símann og panta sér gómsæta pítsu þegar andann til að laga kvöld­ mat fyrir fjölskylduna skort­ ir í lok vinnudags. En fæstir hafa þó krufið hversu mikið greitt er fyr­ ir þau þægindi að losna undan því að laga einfalda heimabakaða pít­ su. DV ákvað að kryfja málið og leið­ ir úttekt DV í ljós að allt að 138 pró­ sentum munar á verði vinsællar pítsu af matseðli Domino's og inni­ haldsefna í sömu pítsu í Bónus. Það er sáraeinfalt að hnoða í pítsu­ botn, og þegar þú bakar þína eigin pítsu stýrir þú matseðlinum, magni áleggs og innihaldsefnin duga oftar en ekki í fleiri en eina, jafnvel fleiri en tvær pítsur. DV ákvað að taka tvær vin­ sælar pítsur af matseðli Domino's og endurgera þær frá grunni úr ódýrustu fáanlegu innihaldsefnum úr Bónus. Rýnt í verðið Í könnun DV voru keypt helstu innihaldsefni til að búa til botn, pítsusósa, rifinn ostur og svo áleggs­ tegundir viðkomandi pítsa frá Dom­ ino's. Sá pítsustaður varð fyrir valinu vegna þess að keðjan er líklega sú umsvifamesta á Íslandi, nýtur mik­ illa vinsælda og verð ásættanlegt. Líklega er hægt að fá ódýrari píts­ ur annars staðar en án nokkurs vafa má finna staði sem eru dýrari. Ekki er tekin afstaða til gæða, heldur að­ eins litið á verð og innihaldsefni. DV fann einfalda og álitlega upp­ skrift að pítsubotni á netinu þar sem aðeins þarf um 500 grömm af hveiti, Stór Svepperoni Domino's Álegg: Pepperóní og sveppir Stór Domino's Surprise Álegg: Pepperóní, skinka, rjómaostur, jalapeno, hvítlaukur, svartur pipar, sveppir. 2.549 kr. 3.049 kr. Þetta kostar hráefnið Hveiti: 1 kg - 95 kr. Dugar í 2 pítsur. Sveppir: 250 gr 279 kr. Dugar í 2–3 pítsur. Þurrger: 2 x 12 gr - 82 kr. Dugar í 2–4 pítsur. Skinka: 237 gr 198 kr. Dugar í 2–3 pítsur. Pítsusósa: 430 gr - 198 kr. Dugar í u.þ.b. 3 pítsur. Rifinn ostur: 200 gr - 198 kr. Dugar í 2 pítsur. Rjómaostur: 125 gr - 205 kr. Dugar í 2 pítsur. Pepperóní: 155 gr - 398 kr. Dugar í 2–3 pítsur. Hvítlaukur: 250 gr - 139 kr. Dugar í a.m.k. 20 pítsur. Verð alls: 1.792 kr. Verð á pítsu: 826,5 kr.* *Miðað við að tvær drekkhlaðnar pítsur fáist úr innihaldsefnunum og þau séu öll notuð á báðar, að hvítlauknum undanskildum. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is 555 kr. 479 kr. einn pakka af þurrgeri, örlítið salt og smá olíu en flestir eiga þetta tvennt síðastnefnda uppi í skáp og er það því ekki tekið með í verðið frekar en vatnið sem þarf í baksturinn. Vinsælar pítsur endurgerðar Í könnun DV voru tvær vinsælar pítsur af matseðli Domino's skoð­ aðar. Svepperoni, sem er pítsa með pepperóní og sveppum og kostar 2.549 krónur og Domino's Surprise sem er vel útilátin með pepperóní, skinku, sveppum, rjómaosti, jala­ peno, hvítlauk og svörtum pipar og kostar 3.049 krónur. Verð miðast við stóra pítsu og að þær séu sóttar. Hafa ber í huga að það má setja saman ódýrari útgáfu af Sveppe­ roni­pítsunni með því að nýta sér tilboð Domino's á stórri, sóttri pítsu með tveimur áleggstegundum á 1.590 kr. Ef þú pantar eina svoleiðis með pepperóní og sveppum þá ertu kominn með Svepperoni, bara 959 krónum ódýrari. Til samanburðar þá er hægt að fá stóra pítsu með tveimur áleggstegundum á 1.895 krónur í Eldsmiðjunni, ef þú sækir. Sparar 4.000 með því að baka Sem fyrr segir voru innihaldsefnin keypt í Bónus og reynt að kaupa það ódýrasta sem í boði er. Skemmst er frá því að segja að þegar blaða­ maður hafði keypt öll innihalds­ efnin sem duga til að búa til báðar píts urnar frá Domino's, eða tvær stórar og drekkhlaðnar pítsur með öllum innihaldsefnunum var heildarverðið aðeins 1.792 krónur eða um 826 krónur pítsan miðað við að þú gerðir tvær með öllu á. Ef þú pantar þér eina stóra Sveppe roni og eina stóra Surprise kostar það þig 5.598 krónur. Þú getur því sparað þér að minnsta kosti 3.806 krónur með því að baka þessar pítsur heima, og jafnvel meira ef þú átt þegar til eitthvað af innihaldsefnunum heima fyrir. Það er rúmlega fimmfalt ódýrara fyrir þig að baka t.d Surprise pítsu sjálf/ ur eins og sjá má hér á síðunni. Mun ódýrara Sé litið til hvorrar pítsu og inni­ haldsefnunum deilt niður á þann fjölda pítsa sem þau geta auðvelda­ lega dugað í þá kostaði það það blaðamann 479,2 krónur að gera heimabakaða útgáfu af Svepperoni. Það er 2.069 krónum ódýrara. Það kostaði blaðamann 555,6 krónur að gera heimabakaða útgáfu af Dom­ ino's Surprise. Það er 2.493 krónum ódýrara. n Verð á heimagerðri SvepperoniVerð á heimagerðri Surprise Hveiti 500 gr 47,5 kr. Þurrger 1 pk 41 kr. Pítsusósa 143 gr 66 kr. Pepperóní 51,7 gr 132,7 kr. Sveppir 83 gr 93 kr. Rifinn ostur 99 kr. Hveiti 500 gr 47,5 kr. Þurrger 1 pk 41 kr. Pítsusósa 143 gr 66 kr. Pepperóní 51,7 gr 132,7 kr. Sveppir 83 gr 93 kr. Skinka 79 gr 66 kr. Rjómaostur 62,5 gr 102,5 kr. Hvítlaukur 12,5 gr 6,95 kr. ATH. Við sleppum jalapeno. Piparinn eiga svo flestir til. Tilboð hjá Domino's Stór pítsa með tveimur áleggstegundum: 1.590 kr. Tilboð hjá Eldsmiðjunni Stór pítsa með tveimur áleggstegundum: 1.895 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.