Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 42
Helgarblað 24.–27. október 201442 Sport *Greinin er byGGð á úttekt bleacherreport.com. 15 leikmenn sem valda stöðugum vonbrigðum n Rándýrir gæðaleikmenn sem bregðast n Enski boltinn reynist mörgum erfiður Mesut Özil Félag: Arsenal n Miklar væntingar voru gerðar til Mesuts Özil þegar hann gekk til liðs við Arsenal í september í fyrra – væntingar sem honum hefur reynst erfitt að standa undir. Özil byrjaði vel með Arsenal en tókst ekki að fylgja góðri byrjun sinni eftir. Hann hefur ekki staðið undir væntingum síðustu misseri og er nú frá í sex vikur vegna meiðsla. Fernando Torres Félag: AC Milan n Torres hefur ekki borið sitt barr frá því hann var hjá Liverpool. Honum tókst aldrei að ná sér á strik hjá Chelsea, eftir að hafa komið þangað sem stjarna. Sjálfstraustið hrundi og hann varð aldrei nema skugginn af sjálfum sér, þó að bæði Chelsea og Spánverjar hafi unnið til verðlauna. Hann er nú á láni hjá Milan og hefur skorað eitt mark í fjórum leikjum. Roberto Soldado Félag: Tottenham n Soldado var fyrir ekki löngu einn hættu- legasti leikmaðurinn í Evrópuboltanum. Hann lék með Valencia á Spáni og hrellti varnarmenn. Þegar hann fór til Tottenham í fyrra voru gerðar þær væntingar til hans að hann skyti þeim í meistaradeildina. Þess í stað er nú svo komið að hann vermir varamannabekkinn flestum stundum. Iker Casillas Félag: Real Madrid n Fréttir af hnignun markvarðarins hafa vakið athygli um knattspyrnuheim allan á undanförnum misserum. David De Gea hefur meira að segja hrifsað af honum markvarðarstöðuna í landsliðinu. Cassilas átti hræðilega daga í Brasilíu í sumar en vissulega vann hann Meistaradeildina síðast liðið vor. Hnignun hans á milli stang- anna hefur ekki farið fram hjá neinum. Wayne Rooney Félag: Manchester United n Þegar horft er til þess hversu góður Rooney hefur verið á köflum á ferli sínu, svo sem eins og leiktíðina 2011–2012 og aftur árið 2009–2010, verður ekki annað sagt en að leikmaðurinn hafi valdið vonbrigðum síðustu tvö keppnistímabil. Hann er vissulega fyrirliði United í dag en það er ekki hægt að líta fram hjá því að meira býr í leikmanninum. Rio Ferdinand Félag: QPR n Ferdinand var fenginn til QPR til að binda saman vörnina og veita öðrum leikmönnum innblástur. Hvorugt hefur hann gert því liðið er í botnsætinu. Ferdinand er einfaldlega að eldast og satt að segja virðast dagarnir þegar hann var á meðal bestu varnarmanna Evrópu, löngu liðnir. Ferillinn er að fjara út, smám saman. Nemanja Vidic Félag: Inter Milan n Félagi Rios Ferdinand úr United-vörninni, á einnig í vandræðum. Rauð spjöld og brot innan teigs hafa sett blett á byrjunina á Ítalíu. Vidic glímdi á tíðum við meiðsli síðustu árin hjá United og virðist hafa misst ansi mikið af því sem gerði hann um tíma einn af bestu miðvörðum heims. Hann tekur orðið rangar ákvarðanir og les leikinn ekki eins vel og áður. Joe Hart Félag: Manchester City n Hart hefur á undanförnum árum verið lykil- maður í liði City. Um hann hefur verið rætt á þann veg að hann hafi allt það til að bera sem þarf til að verða einn albesti markvörður í heimi. Einhvern veginn hefur hann aldrei náð þeim stalli, þrátt fyrir að spila í Meistara- deildinni og verja mark Englands. Hann hefur gert of mörg mistök og hefur þess vegna skort stöðugleika. Það eru vonbrigði. Marouane Fellaini Félag: Manchester United n Fellaini er í dag ekki annað en sorglegur minnisvarði um misheppnaða ráðningu Davids Moyes til United. Leikmaðurinn var frábær hjá Everton en fellur engan veginn að leikstíl United eins og Louis van Gaal hefur þróað hann. Fellaini hefur aldrei náð sér á strik hjá United og gerir líklega engar rósir hjá félaginu úr þessu. Hann þarf að komast annað. David Luiz Félag: Paris Saint-Germain n Luiz varð dýrasti varnarmaður heims þegar franska liðið keypti hann frá Chelsea í júní, skömmu fyrir HM í Brasilíu, á 50 millj- ónir punda. Óhætt er að segja að hann hafi brugðist löndum sínum. Hann var afleitur í keppninni og spilaði líklega verst allra í 7–1 tapinu á móti Þýskalandi – frammistaða sem verður lengi í minnum höfð. Hann hefur ekki náð sér á strik hjá Parísarliðinu. Emmanuel Adebayor Félag: Tottenham n Það efast enginn um hæfileika Adebayors en frammistaða hans á vellinum er ekki alltaf í samræmi við það. Eina stundina virðist hann óstöðvandi en þá næstu er eins og hann týnist. Leikmaðurinn hefur byrjað illa í haust og enn hafa vaknað spurningar um það hvort hann sé nógu góður til að leika fyrir eitt af toppliðunum. Mamadou Sakho Félag: Liverpool n Þegar hann kom frá Paris Saint-Germain í fyrra vonuðust stuðningsmenn Liverpool til þess að Sakho væri maðurinn til að stoppa í leka vörn liðsins. Leikmaðurinn er sterkur, kraftmikill og í frábæru formi. Hann virðist á köflum óöruggur á boltann og er auk þess slakur að verjast í teignum, í föstum leikatriðum. Á hann framtíð fyrir sér í enska boltanum? Andy Carroll Félag: West Ham n Caroll mun örugglega aldrei bera þess bætur að hafa verið keyptur til Liverpool á 30 milljónir punda. Undir slíkri fjárhæð gat leikmaðurinn aldrei staðið, þó að hann hafi staðið sig vel hjá Newcastle. Leiðin hefur síðan legið niður á við og það er kannski svo- lítið pínlegt að West Ham virðist ekki sakna leikmannsins, sem hefur verið meiddur í upphafi leiktíðar. Mario Balotelli Félag: Liverpool n Balotelli er gæddur miklum knattspyrnu- hæfileikum og gæti, ef hann hefði rétt hugarfar, verið einn albesti leikmaður heims. Hann hefur hins vegar á ferli sínum gert alls kyns miður gáfulega hluti og komið sér í vandræði oftar en flestir aðrir. Liverpool ákvað að gefa honum séns og stuðnings- menn eru þegar farnir að velta því fyrir sér hvort hann hafi átt tækifærið skilið. Paulinho Félag: Tottenham n Paulinho hefur átt nokkra ágæta leiki frá því hann kom til félagsins í fyrrasumar. Yfirleitt fer þó frekar lítið fyrir honum á vell- inum og á stundum virðist sem hann skorti metnað til að leggja það á sig sem til þarf. Hann var slakur á HM í sumar en spurningin er hvort Mauricio Pochettino takist að kveikja í honum löngunina sem til þarf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.