Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 25
Umræða 25 Það voru stór mistök Ágúst Jenson bað leigjanda ekki um meðmæli. – DV Helgarblað 24.–27. október 2014 Kristján Hreinsson Skáldið skrifar Hin frónska bylting í friði háð N ú verðum við Íslendingar að vona að aðrar vinveittar þjóðir feti í fótspor norskra vina okkar og ættingja, og gefi okkur eitthvað bitastæðara en vélbyssur. Reyndar tel ég hollt fyrir okkur, hvert og eitt, að taka afstöðu til þess hvort löggur eigi að vera með tætara í vinnunni. Kannski gætu einhverjir vina okk­ ar í Afríku gefið okkur jarðsprengj­ ur. Og einhverjir vina okkar á Arabíuskaganum gætu þá kannski gefið okkur efnavopn. En talandi um efnavopn, þá hefur mér skilist á okkar göfuga forsætisráðherra, að í raun og veru sé allt fólk­ ið í nágrannalöndum okkar með pípandi niðurgang eða pípandi munnræpu, nema hvort tveggja sé. Og ku ástæðan vera sú, að allt þetta fólk lifir á eitruðum mat. Vinir okkar og frændur Norð­ menn eru sem sagt að senda okk­ ur vopn. Og segir þetta okkur ekki nákvæmlega það eitt, að nú sé kominn tími til að við gerumst eitt af fylkjum þessa ríka lands. Já, kannski er kominn tími til að öll ríki Evrópu gangi í Noreg, jafnvel öll ríki heimsins. Eða ættum við kannski að ganga í Færeyjar; þar er löggan vopnuð. Kannski ættu öll ríki heimsins að ganga í Fær­ eyjar eða Grænland. Sko, nú ætla ég að segja ykk­ ur allan sannleikann, samkvæmt minni skilgreiningu á honum: Hvítflibbaríkisstjórnin þarf að vopnvæðast fyrir næstu bús­ áhaldabyltingu. Ekki geta þeir Knoll og Tott boðið okkur að ganga Evrópusambandið, því þá myndum við þurfa að þola jöfn­ uð. En slíkt mega framagosar og sjálfgræðismenn ekki leyfa. Ís­ land verður að byggja afkomu sína á heimskri millistétt og enn­ þá heimskari lágstétt, sem er æfð í því að troða silkipúðum undir rassa hálauna auðvaldsklíku sem öllu fær að ráða, vegna þess að hinar heimsku stéttir leyfa þeim það. Íslensk þjóð ætlar um aldur og ævi að taka fagnandi því fólki sem virkilega kann að auka á alla misskiptingu; fagna þeim stjórn­ málamönnum sem passa það betur en sjáöldur augna sinna að valdníðsla fái að grassera, að inngróin heimska verði einsog ólæknandi sjúkdómur í blessuðu þjóðarsálartetrinu. Að vopnbúast er bara einn liðurinn í hervæðingu auðvalds­ ins gegn uppivöðsluseggjum frónsku byltingarinnar; þeirra ís­ lensku afla sem heimta að þjóðar­ kökunni sé skipt af réttlæti. Ekk­ ert er auðvaldinu hvassari þyrnir í augum en hugsandi fólk sem talar um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Já, kæru vinir, það hefur eigin­ lega ekkert gerst síðan 1789. n Frónska þjóðin eflaust er afar veik á geði ef vopnaskak í veröld hér veitir henni gleði. H inn 20. október 2012 var haldin þjóðaratkvæða­ greiðsla um tillögur stjórn­ lagaráðs að nýrri stjórnar­ skrá. Tilgangur þjóðaratkvæðagreiðsl­ unnar var að fá fram vilja almenn­ ings til gagngerrar endurskoðunar á stjórnarskránni og hvort þær tillög­ ur sem stjórnlagaráð hafði lagt fram sumarið 2011 endurspegluðu vilja þjóðarinnar. Í ljós kom að tveir þriðju hlutar þeirra kjósenda sem afstöðu tóku studdu tillögurnar í heild sinni. (Það er sama hlutfall og skoðana­ könnun MMR hafði sýnt vorið 2012.) Auk þess voru 5 sértækari spurningar á kjörseðlinum um náttúruauðlindir, þjóðkirkjuna, persónu kjör, atkvæða­ vægi og þjóðaraðkvæðagreiðslur að frumkvæði kjósenda. Kjósendur fengu þannig tækifæri til að tjá vilja sinn varðandi þessi tilteknu álitamál sérstaklega, óháð því hvernig þeir svöruðu fyrstu spurningunni um til­ lögurnar í heild sinni. Nú, tveimur árum síðar, bólar enn ekkert á viðbrögðum Alþingis við afgerandi niðurstöðum þjóðar­ atkvæðagreiðslunnar. Það er líkast því að þingmenn telji nýju stjórnar­ skrána sér óviðkomandi, slík er þögnin um málið á Alþingi. Samt er það svo að samkvæmt gömlu stjórnar skránni þarf að samþykkja stjórnarskrárbreytingar á tveimur þingum með kosningum á milli til að ný stjórnarskrá taki gildi. Málið er í sjálfheldu þar sem að valdhafar telja sig hafa annað þarfara að gera en að færa aukið vald til kjósenda líkt og tillögur stjórnlagaráðs gera ráð fyrir. Því eru góð ráð dýr. Deilumálum skotið á frest En til hvers þurfum við á nýrri stjórnar skrá að halda? Hefur sú gamla ekki reynst okkur ágætlega? Í áhugaverðri samantekt, Þrjóskar staðreyndir um stjórnarskrána, rek­ ur sagnfræðingurinn Guðni Th. Jó­ hannesson nokkur atriði sem vert er að rifja upp varðandi tilurð lýðveld­ isstjórnarskrárinnar frá árinu 1944. Þar tínir hann m.a. til ummæli al­ þingismanna úr öllum flokkum á Al­ þingi sem sýna að hún var einungis hugsuð til bráðabirgða. Öll áherslan var sett á stofnun lýðveldisins og því var umræðu um erfið deilumál sem ágreiningi gætu valdið einfaldlega slegið á frest. Þingmenn Sjálfstæðis­ flokksins töluðu beinlínis um bráða­ birgðastjórnarskrá sem tekin yrði til gagngerrar endurskoðunar og sama gerðu lögspekingar þess tíma, þ.á.m. Ólafur Jóhannesson, síðar formaður Framsóknarflokksins. En fimm árum síðar bólaði enn ekkert á nýju stjórnarskránni sem þjóðinni hafði verið lofað og í nýársávarpi sínu 1949 kvartaði fyrsti forseti Íslands undan seinagangin­ um og hvatti þingheim til dáða: „Og nú, hálfu fimmta ári eftir stofn­ un lýðveldisins, rofar ekki enn fyrir þeirri nýju stjórnarskrá, sem vér þurftum að fá sem fyrst og almennur áhugi var um hjá þjóðinni og stjórn­ málaleiðtogunum, að sett yrði sem fyrst. Í því efni búum vér því ennþá við bætta flík, sem sniðin var upp­ runalega fyrir annað land, með öðr­ um viðhorfum, fyrir heilli öld. … Vonandi dregst eigi lengi úr þessu að setja nýja stjórnarskrá.“ Tíminn líður hratt Í ár eru sjötíu ár liðin síðan bráð­ birgðastjórnarskráin var samþykkt með því fororði að hún yrði fljót­ lega tekin til gagngerrar endur­ skoðunar og að ný og endurskoðuð stjórnarskrá liti dagsins ljós. Að vísu hafa smávægilegar breytingar verið gerðar, en flestar hugmyndir um gagngera endurskoðun, nýja stjórnarskrá, hafa hins vegar dagað uppi í meðförum óteljandi stjórn­ arskrárnefnda skipuðum fulltrúum stjórnmálaflokka á Alþingi. Tillögur um stjórnarskrárvarinn eignarrétt þjóðarinnar á auðlindum hafa t.d. reglulega skotið upp kollinum síð­ astliðin 50 ár en alltaf verið kæfðar í meðförum þingsins. Við þetta verð­ ur ekki lengur unað enda lifum við nú á 21. öldinni, á tímum þar sem fjársterkir og áhrifamiklir aðilar svíf­ ast einskis til að söðla undir sig auð­ lindir, spilla náttúru og umhverfi og halda mikilvægum upplýsingum frá almenningi. Stjórnvöld skipuðu enn eina stjórnarskrárnefndina árið 2013 til að fjalla um endurskoðun stjórnar­ skrárinnar og hefur sú nefnd sent frá sér áfangaskýrslu. Óskað var eft­ ir umsögnum og viðbrögðum fólks við skýrslunni og sendu um 100 að­ ilar inn athugasemdir. Langflestar athugasemdanna voru á þann veg að Alþingi bæri skýlaust að virða afgerandi niðurstöður þjóðar­ atkvæðagreiðslu sem það sjálft boðaði til. Lýðræðið verður að hafa í heiðri og ekki má leyfa að sérhags­ munir ræni völdum frá almenn­ ingi. Nýja stjórnarskráin er forsenda þess að þjóðfélagið geti orðið rétt­ látt og mannbætandi fyrir okkur öll. Við hvað eru stjórnmálaflokkarnir hræddir? Við látum aðfararorð frumvarps stjórnlagaráðs slá tóninn. „Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð. Ólíkur uppruni okkar auðgar heildina og saman berum við ábyrgð á arfi kynslóðanna, landi og sögu, náttúru, tungu og menningu. Ísland er frjálst og fullvalda ríki með frelsi, jafnrétti, lýðræði og mann­ réttindi að hornsteinum. Stjórnvöld skulu vinna að velferð íbúa lands­ ins, efla menningu þeirra og virða margbreytileika mannlífs, lands og lífríkis. Við viljum efla friðsæld, ör­ yggi, heill og hamingju á meðal okk­ ar og komandi kynslóða. Við ein­ setjum okkur að vinna með öðrum þjóðum að friði og virðingu fyrir jörðinni og öllu mannkyni. Í þessu ljósi setjum við okkur nýja stjórnar­ skrá, æðstu lög landsins, sem öllum ber að virða.“ Er ekki kominn tími til að við Ís- lendingar hristum af okkur slenið og krefjumst þess að fá nýja al-íslenska stjórnarskrá sem ákveðið var árið 1944 að þessi unga og bjartsýna þjóð fengi við fyrsta tækifæri? Stjórnarskrárfélagið Ný stjórnarskrá „Langflestar athugasemdanna voru á þann veg að Al- þingi bæri skýlaust að virða afgerandi niður- stöður þjóðaratkvæða- greiðslu sem það sjálft boðaði til. MynD SigTryggur Ari JóHAnnSSon Stjórnarskrárfélagið Ástrós Signýjardóttir, Sigurður H. Sigurðsson og Sigríður S. Ólafsdóttir. Kjallari Ótrúlega góðar fréttir Blaðakonan Erla Hlynsdóttir sigraði ríkið aftur. – DV Hann er til þess að drepa Bubbi Morthens segir tilgang vélbyssa þann að drepa fólk. – Virkir morgnar Mest lesið á DV.is 1 „Ég held að ég hafi átt ótrúlega góða ævi“ Berglind Guðmundsdóttir greindist með brjóstakrabbamein fyrir tæpum sjö árum og háði hetjulega baráttu við sjúkdóm- inn allt fram á síðasta dag, en hún lést þann 17. október. Hún hafði tjáð sig um baráttuna í einlægu viðtali við DV. 55.903 hafa lesið. 2 Hanna Birna um vopna-væðingu:„Lögreglan verður að geta gripið til slíks“ DV rifjaði upp ummæli Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, þáverandi dómsmálaráðherra, í desember í fyrra um aukna heimild lögreglunnar til vopnaburðar. Sagði hún nauðsynlegt að lögreglan gæti gripið til vopna gerðist þess þörf. Tveimur dögum áður hafði lögreglan skotið mann til bana í Hraunbæ. 38.618 hafa lesið. 3 Ástfangin í Mónakó Tískugyðjan, fatahönnuðurinn og blaðamaðurinn Marín Manda Magn- úsdóttir skellti sér til örríkisins Mónakó með kærastanum sínum, knattspyrn- umanninum Arnari Gunnlaugssyni, á dögunum. 34.564 hafa lesið. 4 Lögreglan vopnast með leynd Forsíðuafhjúpun DV um vopnavæðingu almennra lögreglu- manna á Íslandi með MP5-hríðskota- byssum og Glock-skammbyssum setti þjóðfélagið á hliðina. 34.365 hafa lesið. 5 Verslunarskólinn taki sömu afstöðu gegn mannfyrirlitningu og áfeng- isneyslu Vigdís Perla Maack skrifaði um þáttinn Rjómann sem nemendur við Verslunarskóla Íslands framleiða. Hafði hún ýmislegt við hann að athuga. 31.979 hafa lesið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.