Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 52
Helgarblað 24.–27. október 201452 Fólk Stökk út úr limmósínu á ferð Breska söngkonan og forsprakki sveitarinnar Pussycat Dolls, Nicole Scherzinger, olli umferðar slysi á dögunum er hún stökk úr limmósínu á ferð. Söngkonan, sem stödd er í London við tökur á nýju mynd­ bandi, var farþegi í limmósínu á þriðjudagskvöld. Sagt er að henni hafi skyndilega orðið afar óglatt og því beðið bílstjór­ ann að stöðva bíl­ inn. Hann brást ekki nógu hratt við að mati Scherzinger, sem ku hafa verið á mörk­ um þess að kasta upp, svo hún tók til sinna ráða, opn­ aði dyrn­ ar og hugðist stökkva úr bílnum á ferð. Bílstjór­ inn náði til allrar ham­ ingju að stöðva bílinn í tæka tíð en gleymdi að taka hann úr gír svo hann rann viðstöðu laust, með söngkon­ una. Hann lenti að endingu aftan á annarri bifreið. Samkvæmt heim­ ildum bresku slúður­ pressunar slasaðist söngkonan þó ekki alvarlega. Ákærð fyrir að stunda kynlíf í bíl Leikkonan Danielle Watts, sem lék Coco í kvikmyndinni Django Unchained, á yfir höfði sér háa fjársekt og jafnvel fangelsisvist verði hún fundin sek fyrir blygð­ unarbrot. Leikkonan var handtekin í september ásamt eiginmanni sínum fyrir meint brot. Vitni sagðist hafa séð til hjónanna stunda kynlíf á almannafæri inni í bíl. Watts hefur alla tíð neitað þeim sökum og segir þau ein­ faldlega hafa verið að kyssast og láta vel að hvort öðru, eins og elskendur jafnan geri. Watts hefur jafnframt sakað lögregluna um kynþáttahatur en hún segir lögreglumanninn hafa talið parið, sem hefur ekki sama litarhaft, hafa átt í vændisvið­ skiptum. Verði þau fundin sek fyrir blyðunarbrot eiga þau yfir höfði sér um sex mánaða fangelsi og sekt sem samsvarar um einni milljón króna. Frumkvöðull sem kom víða við Mark Bell lést fyrir nokkru en hann er á meðal áhrifamestu raftónlistarmanna Evrópu F rumkvöðullinn og raftónlistar­ mógúllinn Mark Bell lést fyrr í mánuðinum. Dánarorsök hans hefur ekki verið gerð opinber en í tilkynningu frá Warp­útgáfunni, sem send var út í byrjun síðustu viku, bar lát hans að vegna einhvers konar fylgikvilla skurðaðgerðar. Ekki hefur verið gefið út hvers kyns aðgerð Bell var í þegar hann lést. Mark Bell var fæddur í Leeds árið 1971 og skaut honum upp á stjörnuhimininn í Bretlandi við upphaf tíunda áratugarins um það bil sem hann, ásamt fé­ laga sínum Gez Varley, stofnaði hljómsveitina LFO árið 1988. Áhrifa Bells á raftónlistarsenuna gætir víða. Hann starfaði sem upptökustjóri fyrir marga af þekktustu listamönnum sam­ tímans en auk þess að vera álit­ inn frumkvöðull innan bresku raftónlistarsenunnar á tíunda áratugnum. Komu Warp á kortið LFO er sögð hafa sett viðmiðið fyrir það sem koma skyldi innan reif­ og rafsenunnar. Sveitin varð fljótlega mjög eftirsótt og keppt­ ust önnur bönd við að vinna með henni efni. Þá óx hróður Bells sem upptökustjóra jafnframt víða en hann sinnti uppptökustjórn fyrir mörg jaðarbönd. LFO var einnig á meðal frumbyggja breska Warp­tónlistar­ veldisins og er af mörgum talin hafa hjálpað til við að koma útgáfunni á kortið. Á meðal þeirra sem fylgdu LFO til Warp má nefna Apex Twin, Autechre og Boards of Canada, auk fjölda annarra. Þekktasta lag LFO er samnefnt sveitinni og heitir því einfaldlega LFO. Það naut mikilla vinsælda og varð jafnframt fyrsta lag Warp til þess að ná inn á breska topp 20 listann. Myndbandið við lagið vakti þá einnig mikla athygli en þess ber að geta að leikstjóri þess var enginn annar en Jarvis Cocker, söngvari Pulp. Árið 1996 varð dúóið svo að sóló þegar Varley sagði skilið við sveitina. Bell gaf út eina plötu í viðbót undir for­ merkjum LFO svo alls urðu þær þrjár. Hliðarútgáfur og analógteknó Um miðjan áratuginn gaf Bell út nokkur lög ásamt EP­plötum undir hatti mismunandi, lítt þekktra útgáfa. Í mörgum þessara hliðarsjálfa ein­ blíndi hann á ívið harðari hljóðheim sem oft mætti kalla einhvers konar samsuðu af tilraunakenndu Detroit­ analóg teknói. Þegar hér var komið sögu dró aftur til tíðinda hjá Bell, en árið 1997 hófst farsælt samstarf hans með Björk Guðmundsdóttur. Bell endurhljóð­ blandaði Homogenic og fylgdi Björk í kjölfarið eftir á tónleikaferðalagi hennar um heiminn. Bell og Björk unnu saman að útgáfu fjölda platna Bjarkar og voru þau afar nánir vinir. Um aldamótin reri Bell á önn­ ur mið og „re­mixaði“ hip hop­lagið Turbulence með Deltron 3030. Lag­ ið kom út á samnefndri „concept“­ plötu sveitarinnar. Platan er fram­ úrstefnuleg „hip­hopera“ og segir framtíðarsögu Dels nokkurs, eins og titillinn gefur til kynna, sem er uppi árið 3030. Sveitina skipuðu Dan the Automator, rapparinn Del the Funky Homo sapien og Kid Koala. Á meðal annara gesta á plötunni voru þau Hafdís Huld, Sean Lennon og Damon Albarn. Þess má einnig geta að platan er af mörgum sögð kveikjan að hljóm­ sveit Damons Albarn, Gorillaz. Árið 2001kom út plaran Exciter með Depeche Mode. Þar fór Bell með hljóðblöndun og upptökustjórn. Á plötunni örlar því fyrir nokkuð „Bell­ legum“ hljómi en hún er undir djúp­ um áhrifum „glits“ og IDM­rafs, tí­ unda áratugarins. n Bestu lög Bells Líkt og rakið hefur verið að framan var ferill Bells litríkur og ljóst þykir að með fráfalli hans er stórt skarð hoggið í raftónlistarsenuna. Fyrir þau sem þekkja ekki til verka Bells tókum við saman lagalista með tíu mikilvægum lögum af ferli hans, í engri sérstakri röð. n LFO - LFO n Depeche Mode - I Feel Loved n Deltron 3030 – Turbulence n Radiohead – Planet Telex (LFO Remix) n LFO – Freak (Úr kvikmyndinni Enter the Void) n Björk - Pluto n Counterpoint - Jigsaw n Mark Bell - A Salute to Those People Who Say Fuck You n Björk - Declare Independence n Björk/Thom Yorke - I've Seen It All (Úr myndinni Dancer in the Dark) María Lilja Þrastardóttir maria@dv.is Samstarf Bells og Bjarkar var gjöfult Plötur Bjarkar sem Bell kom að með einhverjum hætti n 1997 - Homogenic n 2000 - Selmasongs n 2001 - Vespertine n 2004 - Medúlla n 2005 - Drawing Restraint 9 n 2007 - Volta n 2011 - Biophilia Minningarorð Bjarkar til Bell Tók andlát vinar síns nærri sér Ég elska þig og þykir það blessun að hafa unnið svo mikið af tónlist með þér. Megi ofurnæmni þín blómstra gjöfult og hvar sem þú ert vona ég þú hafir góða hátalara. Guðfaðir Blíbbsins Einkennishljóð LFO var „Blíbbið“ (bleep) sem síðar varð samheiti margra þekkt- ustu teknólistamanna þessa tíma. Þess ber einnig að geta að vefsíðan bleep. com, sem sprottin er upp úr rafsenunni og er í eigu Warp, er ein af fyrstu vefsíð- um heims til þess að bjóða upp á löglegt niðurhal á tónlist. Hin mörgu hliðarsjálf Bell Á tveggja ára tímabili gaf Bell út nokkur lög undir mismunandi nöfnum og hatti ólíkra útgáfa. Speed Jack 1994 Storm 1994 C.T.C. 1996 Blue Bossa Clark 1995 Lofthouse Fawn 1995 Klip EP Counterpoint 1996 Jigsaw Sviplegt fráfall Mark Bell lést vegna óhapps við aðgerð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.