Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 24.–27. október 201446 Menning Úr vegabréfi Sigmundar Ernis Íslendingur í austurvegi Eins og margar borgir Evrópu stendur Kænugarður á nokkrum hæðum á bökkum breiðrar elfar, svo þaðan sér vel yfir sviðið allt í kring. Fyrir langtaðkominn Ís­ lending getur verið nokkur upp­ lifun að horfa þaðan upp eftir ánni Nepur sem norrænir frænd­ ur hans kusu að nefna svo um það leyti sem þeir gerðu Kænu­ garð að verslunarmiðstöð sinni í austurvegi á ofanverðri 9. öld. Á því blómaskeiði víkinga sem þar með fór í hönd virtist engin sú vegalengd um gjörvalla jörðina vera þeim ofviða; í austri fóru þeir á kænum sínum allt til Serklands í austri og Vínlands í vestri – og lögðu ekki einasta grunninn að stofnun heimsvelda á borð við Rússland, heldur gerðu þeir fyrsta fríverslunarsamning sögunnar við hið býsanska ríki í Miklagarði, ásamt því að opna augu allrar Evrópu fyrir undrum Asíu – og er þá ónefndur fundur heillar meginálfu á hinum enda kringlunnar. Á söfnunum í Kænugarði er hlutur norrænna manna í sögu hins gerska ríkis hafður í háveg­ um. Þar er því haldið til haga að þessir norðanmenn, en það er eiginleg merking orðins víking­ ur, hafi í raun og sann verið höf­ undar að þeim flutningsleiðum sem síðar gátu af sér rússneska keisaraveldið með Kænugarð sem augljósar krossgötur millum skóg­ anna í norðri, steppanna í miðju og hafanna í suðri – og var þar því komin fyrsta höfuðborg hins slav­ neska heimshluta. Orðið Kænugarður vísar til smábátanna sem víkingarnir sigldu á upp eftir ánum sem falla í Eystrasalt að eiga upp­ tök sín í grennd við Álmsvatn á sömu slóðum og stórfljótin Nep­ ur og Volga byrja einnig að falla sína löngu vegu til frænkanna Svartahafs og Kaspíahafs. Lang­ skip norrænna manna voru of stór og þung í þennan nýja vík­ ing – og því voru austurtrogin timbruð í það lag að létt væri að bera þau yfir vatnaskil. Og þar með opnaðist heill heimur ofan í Jórsalaheim, Persíu og hina fornu Mesópótamíu með óþekktri angan og efnum, gulli og gersem­ um; nýja verslunarmiðstöðin í Kænugarði stækkaði Evrópu til austurs og vísaði þaðan veginn allt til Afríku og Asíu. Í Kænugarði rennur upp fyrir Íslendingi þvílíkar langferðir nor­ rænir menn lögðu á sig um það leyti sem tíminn fyllti fyrsta árþús­ undið. Nafnbótin að vera sigldur maður fær þar öllu dýpri og til­ komumeiri merkingu en venjan hefur kennt og bent. Og í því nýja ljósi hefur það fráleitt verið nokk­ ur skottuferð að halda í hvern víkinginn af öðrum út um ókunn lönd og aðrar álfur; vanalegt út­ hald hefur varað í allt að hálfan annan áratug að því er kænskar bækur sýna – og eitthvað hefur fjölskyldan þurft að þreyja þorr­ ann þess á milli, ellegar ástkonur í festum sem margar hverjar hafa væntanlega verið komnar á miðj­ an aldur þegar ástin sneri aftur. En allt tekur endi. Og hornin á hjálmunum líka. Mongólar komu að austan og felldu veldi víkinga í Garðaríki seint á 13. öld. Það var upphaf­ ið að aldalöngu undanhaldi nor­ rænna manna sem á síðustu tím­ um eru hvað sáttastir við sjálfa sig ef þeir komast upp í bústað um næstu helgi. Karitas í Þjóðleikhúsinu virkar heldur sem aðlögun að bók en sjálfstætt verk I ndriði G. Þorsteinsson komst eitt sinn svo að orði að það hefði aldrei þótt sérlega gott búsílag á Íslandi að vera lista­ maður. Um það fjallar Karitas í aðra röndina, um samnefnda konu sem segja mætti að sé svar Kristínar Mörju Baldursdóttur við Ólafi Kárasyni Ljósvíkingi, og bar­ áttu hennar fyrir listrænni köllun sinni í lífinu, sem ekki er síður innri barátta en barátta við feðraveldið. Í hina röndina fjallar Karitas um stöðu kvenna, ekki aðeins á fyrri árum heldur kannski einmitt hin seinni líka, þótt með óbeinni hætti sé. Karitas er persónugerving­ ur stöðu kvenna á ólíkum tímum í sögu tuttugustu aldar og að mörgu leyti er togstreitan sem hún upplif­ ir – þeir fjötrar sem samfélagið set­ ur henni – vel framsett. Ef Karitas er persónugervingur kvenna almennt þá er Bjarghildur systir hennar einna helst birtingarmynd feðra­ veldisins í verkinu. Karitas er hin nýja kona sem finnst hún eiga sama tilkall til frama og hver annar, en Bjarghildur er fulltrúi gamalla hug­ mynda um að konur skuli fyrst og síðast vera húsmæður. Andlegt of­ beldi er ríkjandi þáttur í samskipt­ um þeirra systra og alltaf er Karitas undirokuð, niðurlægð og höfð að engu. Raunar er persóna Bjarghild­ ar svo einvíð í illmennsku sinni að það jaðrar við fáránleika. Hún er hreint út sagt ekki sérlega trúverðug persóna, þótt Vigdís Hrefna Páls­ dóttir túlki hana eins ágætlega og efni standa til. Ofbeldið sem Kar­ itas er beitt og þau sálrænu áhrif sem það hefur á hana er óhugnan­ legt á að horfa. Þær senur eru vel útfærðar og þar skiptir metnaðar­ full leikmynd Finns Arnar Arnar­ sonar sköpum. Of stórt verk fyrir sviðið Karitas er ekki lítið verk og þar ligg­ ur kannski rótin að vanda þess að setja það upp á leiksviði. Karitas er allt í senn aldarfarslýsing, lífs­ hlaup, stjórnmálasaga og ádeila, og það er dálítið eins og stykkið sé of stórt fyrir sviðið. Þeir áhorfendur sem ekki hafa lesið bókina Karitas: án titils geta ekki vænst þess að eiga hægt um vik að fylgjast með í fyrsta fjórðungi leikritsins, einkum sakir þess að þá er flakkað á milli þriggja ólíkra tímaskeiða og lítið gert til að gefa til kynna hvenær sögusviðið er fært, sem hefði þó verið hæg­ ur leikur, til dæmis með lýsingu. Ef það var reynt þá varð rýnir altént ekki var við það. Eina vísbendingin sem áhorfandinn hefur er breyting á fasi og raddbeitingu Brynhild­ ar Guðjónsdóttur, sem hún raun­ ar gerir listavel. Sum atriði eru al­ veg óskiljanleg geti áhorfandinn ekki stuðst við bókina og vil ég sér­ staklega nefna – og tek fram að það spillir ekki verkinu sérstaklega þótt ég nefni það hér – atriðið þegar Kára gamla á næsta bæ deyr. Hún sést hníga niður með mjólkurfötur, en fyrr en varir stendur hún aftur upp og talar, leggst síðan í hjólbör­ ur og er snúið á hvolf í þeim meðan Karitas rabbar við hana og Sigmar, maðurinn hennar, tekur að útlista einhver kattardráp sem hann hef­ ur staðið í. Áhorfandinn hefur ekki hugmynd um hvort Kára er lífs eða liðin eða að hún átti fleiri stykki ketti sem hún vildi að Karitas tæki að sér eftir sinn dag, eða af hverju Sigmar skýtur þá alla. Einnig eru í verkinu óljósar senur með álf­ konum sem litlum tilgangi þjóna í verkinu þegar upp er staðið; það er einfaldlega ekki pláss fyrir þær í leikgerðinni. Áhorfandinn fær helst á tilfinninguna að Karitas sé gengin af göflunum á köflum en svo reynist þó aldrei vera. Þessum senum tekst að vísu vel til við að undirstrika einangrunina sem Karitas býr við í dimmum torfbænum á meðan maðurinn hennar er langdvölum úti á sjó, en þær eru ekki nægilega vel settar fram til að áhorfandinn átti sig á merkingu þeirra. Metnaðarfull leikgerð Að baki leikgerðinni og allri upp­ setningunni býr greinilega mikill metnaður. Sagan, óheyrilega löng sem hún er, kemst til skila að mestu leyti og helstu þemun sem unnið er með. Ég saknaði þess þó að ekki væri meira gert úr meginþema verksins sem er staða kvenna á fyrri helmingi 20. aldar. Þess í stað er mikið lagt upp úr ofhlöðnum symbólisma í fjallgöngu sem Auð­ ur, frænka Karitasar, dregur hana í þaðan sem hún bókstaflega öðlast yfirsýn í lífinu. Allt sem Auður seg­ ir er löðrandi í rassvasaspeki sæm­ andi hvaða bensínstöðvarsjálfs­ hjálparbók sem væri. Þetta var of mikið fyrir rýni og allt of mikill tími lagður undir til að koma þessu á framfæri. Búningar Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur virka vel og tónlist Matti Kallio hefur setið í mér síðan ég sá sýninguna, hún er eink­ anlega falleg. Þá vil ég sérstaklega nefna að eftirlætispersónur mínar í verkinu voru hinar kristilegu Ásta og Helga sem eru „ekki systur, held­ ur af Snæfellsnesi“ og Hallgerður. Þótt lítil væru hlutverkin þótti mér Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og Ellen Margrét Bæhrenz auka vigt þeirra með frammistöðu sinni, að öðrum leikurum ólöstuðum, en afar vel var valið í hvert hlutverk. Óljós heildarmynd en kraftmikil sýning Sá ljóður er á sýningunni að heildar­ myndin er á köflum óljós og erfitt að fylgja því eftir sem fram fer, sér í lagi fyrir hlé. Ég held þó að flestir leik­ hússunnendur eigi eftir að geta not­ ið sýningarinnar, einkum hafi þeir lesið bókina. Það finnst mér einmitt stærsti ljóðurinn á annars ágætri sýn­ ingu, að hún virkar heldur sem að­ lögun að bók en sjálfstætt verk; þótt það sé sannarlega tilfellið þá verður leikhússuppfærsla að geta staðið sem sjálfstætt verk. Rýnir fann þannig óvænta samkennd með óreiðu Karitasar. Ég held samt ekki að hægt væri að gera Karitas betur úr garði en Harpa Arnardóttir, Ólafur Egill Egils­ son og Símon Birgisson hafa hér gert. Vandinn er ekki uppfærslan, heldur að umfang verksins er of mikið. En þó að sýningin sé á köflum eins og hún sé gerð úr mörgum endum sem passa ekki saman þá er hún vel gerð og kraftmikil. Sagan er bæði göm­ ul og ný og ættu flestir að geta fund­ ið sína tengingu við hana. Rýnir get­ ur hvorki mælt með sýningunni né á móti, en hún er þess virði að sjá. Þótt þau orð eigi alltaf við í reynd eiga þau sérstaklega við hér að þessa sýningu þarf hver að sjá fyrir sig. n Óreiða á sviði „Allt sem Auður segir er löðrandi í rassvasa- speki sæmandi hvaða bensínstöðvarsjálfs- hjálparbók sem væri Staða konunnar Verkið fjallar um Karitas og baráttu hennar fyrir listrænni köllun sinni í lífinu, sem ekki er síður innri barátta en baráttan við feðraveldið. Mynd eddi@internet.iS Of stórt fyrir sviðið? Vandinn við Karítas er ekki uppfær- slan, heldur umfang sýn- ingarinnar. Karitas Höfundur: Kristín Marja Baldursdóttir Leikstjóri: Harpa Arnardóttir Aðalhlutverk: Brynhildur Guðjónsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir Sýnt í Þjóðleikhúsinu Arngrímur Vídalín ritstjorn@dv.is Dómur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.