Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Síða 37
Skrýtið Sakamál 37Helgarblað 24.–27. október 2014
Ý
mislegt er enn á huldu varð-
andi berserksgang sem
rann á Sabinu Radmacher,
41 árs þýska konu, sunnu-
daginn 19. september 2010,
en daginn eftir reyndi lögreglan
að henda reiður á blóði drifna at-
burðarás dagsins áður. Það fyrsta
sem lögreglu datt í hug var að um
hefði verið að ræða afleiðingar for-
sjárdeilu en aðalpersónan í harm-
leiknum, sem átti sér stað í bæn-
um Lörrach, var lögfræðingurinn
Sabina Radmacher. Lörrach er í Ba-
den-Württemberg, í suðvesturhluta
Þýskalands, skammt frá landamær-
um Þýskalands og Sviss.
Faðir og sonur
Sabina hófst handa þegar langt var
liðið á sunnudaginn. Fyrstu fórnar-
lömbin voru fimm ára sonur henn-
ar og fyrrverandi sambýlismaður
hennar og barnsfaðir. Ekki lá ljóst
fyrir hvernig hún varð syni sínum
að aldurtila, en talið er að hún hafi
kæft hann. Barnsföður sinn hafði
Sabina hvort tveggja stungið og
skotið, en hún lét ekki þar við sitja.
Eftir að hafa banað syni sínum og
barnsföður bar Sabina eld að íbúð-
inni. Skömmu síðar orsakaði eldur-
inn sprengingu með tilheyrandi
tjóni. 15 manns slösuðust, en þeim
var bjargað, sumum við illan leik,
úr húsinu og samliggjandi húsi.
En Sabina taldi sig greinilega eiga
eftir að gera upp sakir við fleira fólk
því hún lagði því næst leið sína yfir
götuna – að kaþólska St. Elizabeth-
sjúkrahúsinu.
Með byssu og hníf að vopni
Þegar þarna var komið sögu var
klukkan um 18.00. Þá fór Sabina
með .22 kalíbera Walther-skamm-
byssu og hníf að vopni inn á kven-
sjúkdómadeild sjúkrahússins.
Þangað komin beið hún ekki boð-
anna og skaut og stakk hjúkr-
unarliða til bana. Einnig náði hún
að særa lögregluþjón, sem stadd-
ur var á sjúkrahúsinu í einkaerind-
um, og eina manneskju að auki.
Þegar lögreglu bar að skömmu síð-
ar og hafði girt af svæðið í kring-
um sjúkrahúsið varð ljóst að Sabina
hugðist ekki leggja árar í bát. Hún
beindi skothríð sinni hiklaust að
lögreglunni er hún freistaði inn-
göngu í sjúkrahúsið, en enginn
má við margnum og þegar upp var
staðið lá Sabina örend á vettvangi.
Sennilega
sambandsörðugleikar
Að sögn yfirvalda í kjölfar harm-
leiksins var hvergi að finna þess
merki að Sabina og barnsfað-
ir hennar ættu í forsjárdeilu vegna
sonar þeirra, en leiddar voru líkur
að því að hugsanlega hefðu þau átt
í annars konar erfiðleikum. Ekk-
ert fannst sem tengdi látna hjúkr-
unarliðann við Sabinu og því álitið
að um einbera tilviljun hefði verið
að ræða. Sabina hafði stundað
skotfimi í tómstundum og var því
enginn nýgræðingur í meðferð
skotvopna og fann lögreglan meira
en 100 skot í sjúkrahúsinu að lokn-
um hildarleiknum, sem tók 40 mín-
útur frá upphafi til enda. Árið 2004
hafði Sabina misst fóstur á þessu
sama sjúkrahúsi, en hvort það skipti
atburði þessa dags nokkru máli skal
ósagt látið. n
n Sabina Radmacher banaði syni sínum og barnsföður n Um ástæður þess er ekkert vitað
Móðir í vígahug
Á vettvangi Lögreglan
við sjúkrahúsið daginn eftir
að Sabina Radmacher var
þar vopnuð á ferð.
Sabina Radmacher
Ekkert er vitað um
tildrög þess að Sabina
banaði syni sínum og
barnsföður.
Feðgar Sonur
Sabinu og faðir
hans á góðri
stundu.
„Sabina beindi
skothríð sinni að
lögreglunni er hún freist-
aði inngöngu í sjúkra-
húsið.
Þóttist vera í dái til að sleppa við refsingu
n Eiginkonan tók þátt í blekkingunni n Gerði sér upp mænuskaða
S
vikahrappur frá Swansea í
Wales þóttist til margra ára
vera lamaður á höndum og
fótum til þess sleppa við fang-
elsisdóm. Þar af þóttist hann vera í
dauðadái í tvö ár. Eiginkona manns-
ins aðstoðaði hann við glæpinn og tók
meðal annars myndir af sér að ann-
ast eiginmann sinn á meðan hann var
í meintu dái. Þess má geta að hjónin
eiga saman þrjú börn.
Hinn 47 ára Alan Knight hafði, auk
þess að hafa bætur frá ríkinu, narrað
um fjörtíu þúsund bresk pund, eða
tæplega átta milljónir króna, út úr
öldruðum, Alzheimersjúkum ná-
granna sínum. Þegar málið komst upp
þóttist hann vera lamaður frá hálsi til
þess að sleppa við refsingu. Lögregla
reyndi í tvígang, árin 2012 og 2013, að
færa Knight fyrir dómara en í hvert
sinn sagði hann heilsu sína
hafa versnað og lagðist
inn á spítala. Í fyrstu náði
hann að blekkja lækna en
þeir gripu hann hins vegar
góðvolgan þegar þeir sáu
hann borða, þurrka sér í
framan og jafnvel skrifa
á sjúkrastofu sinni. Þá
komst lögregla einnig yfir
myndir úr öryggismynda-
vélum þar sem hann
sést ýta á undan sér inn-
kaupakerru í versluninni
Tesco og í ferðalögum
með fjölskyldu sinni.
Harry Paul, yfirlögregluþjónn í
rannsóknardeildinni sem sá um mál-
ið, hefur látið hafa eftir sér að þetta sé
úthugsaðasta, langlífasta svikabragð
sem hann hefði nokkru sinni orðið
vitni að. Knight hefur nú játað glæpi
sína og gengist við fölsun, svikum og
þjófnaði sem stóð yfir árin 2008 og
2009. Dómur verður kveðinn upp yfir
honum í næsta mánuði. n
aslaug@dv.is
Þóttist vera í dái Svikahrappurinn Alan Knight lagði mikið á sig til að sleppa við refsingu.
Eiginkonan tók þátt
Eiginkona mannsins tók
þátt í blekkingarleiknum
og lét taka myndir af sér að
annast eiginmann sinn sem
þá átti að vera í dauðadái.