Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Page 38
38 Lífsstíll Helgarblað 24.–27. október 2014
Kyrrsetumanneskja
sem varð íþróttafrík
n Fékk hjólabakteríuna í vor n Hefur hjólað á þriðja þúsund kílómetra n Vinnur í reiðhjólaverslun
É
g geng í barndóm þegar ég
sest á hjólið mitt. Ég brosi
allan hringinn og það er oft
svolítið vandræðalegt, enda
gleypti ég allmargar flugur
í sumar. Þetta er svo ofboðslega
gaman,“ segir fjölmiðlakonan Kol-
brún Björnsdóttir, betur þekkt sem
Kolla, sem nú hefur söðlað um og
hafið störf í hjólaversluninni Kria
Cycles sem er úti á Granda.
Hún fékk hjólreiðabakteríuna í
vor eftir að hafa tekið þátt í WOW
cyclathon, en þátttaka í þeirri
keppni var afrek út af fyrir sig á
þeim tíma.
Fann sig ekki í neinu sporti
„Það var Rikka á Stöð 2 sem stakk
upp á því að við byggjum til lið
fyrir WOW cyclathon, sem mér
fannst alveg klikkuð hugmynd
þegar hún nefndi hana fyrst,“ segir
Kolla og hlær. „Þá hafði ég í raun
ekki stundað neina líkamsrækt frá
því að ég var í menntaskóla,“ bætir
hún við.
Hún hafði lengi leitað að ein-
hverju sporti sem henni þætti
skemmtilegt en hafði ekki fund-
ið sig í neinu. Það var ekki fyrr en
hún kynntist hjólreiðunum að hún
fann að hún var á réttri hillu. „Mér
þótti öll almenn líkamsrækt sjúk-
lega leiðinleg en þetta var ein-
hvern veginn nógu klikkað til að
vera spennandi, þannig að ég sló
til og tók þátt. Fór og keypti mér
hjól og fannst þetta brjálæðis-
lega gaman,“ segir Kolla um WOW
cycla thon í vor.
Fyrsti túrinn sex kílómetrar
Þrátt fyrir að Kolla hefði æft sig
töluvert fyrir WOW cyclathon þá
fór hún ekki að hjóla að ráði fyrr en
eftir keppnina. „Þá byrjaði ég fyrir
alvöru að hjóla og er búin að hjóla
mjög mikið. Ég er búin að hjóla á
þriðja þúsund kílómetra í sumar.
Fyrir byrjanda er það alveg slatti,“
segir hún alveg án þess að gorta.
Kolla segir fyrsta hjólatúrinn
sinn í vor þó ekki hafa lofað góðu,
en hann var aðeins um sex eða sjö
kílómetrar. „Ég var alveg búin eftir
hann og var eiginlega frekar fúl út
í manninn minn fyrir að hafa val-
ið leið með brekku sem eftir á að
hyggja var í raun bara smá halli.
Ég þurfti alveg að setjast niður og
hvíla mig,“ segir Kolla hlæjandi
þegar hún rifjar þetta upp.
„Það er samt svo frábært við
hjólreiðarnar hvað þetta er ótrú-
lega fljótt að koma. Maður er svo
ofboðslega fljótur að vinna upp
þol og styrk.“
Gott að hjóla í hóp
Kolla skráði sig fljótlega í hjólreiða-
félag og hefur kynnst fjölda frá-
bærs fólks í gegnum hjólreiðar nar.
Hún segir leitun að leiðinlegum
hjólreiðamanni og gerir ekki ráð
fyrir að finna einn slíkan. Hún
hafi bara kynnst snillingum á síð-
ustu mánuðum. „Þetta er mjög
félagslegt sport og það er auð-
velt að finna hóp til þess að hjóla
með. Ég mæli með því að þeir sem
hjóla einir og eru að æfa sig finni
sér einhvern hóp til þess að hjóla
með. Bæði vegna félagsskaparins
og þess að maður lærir svo mikið
af því að hjóla í hóp.“
Gott að láta loftið
leika um andlitið
Kolla segir að allir geti hjólað,
enda hafi flestir, ef ekki allir, lært
að hjóla þegar þeir voru börn.
„Við getum þetta öll og það þurfa
ekkert allir að hjóla neitt rosalega
hratt. Fólk bara hjólar á sínum
hraða og nýtur þess. Lætur loftið
leika um andlitið og fær súrefni í
lungun.“
Hún segir að fólk megi ekki
verða hrætt þegar það sjái hjól-
reiðamenn á svokölluðum racer-
hjólum þeysa um göturnar. Það
þurfi ekki allir að fara í þann
pakka. „Ég er ekkert að fara jafn
sjúklega hratt og þeir sem eru að
keppa. Ég bara
hjóla á mín-
um hraða
og keppi við
sjálfa mig.
Svo tek ég
kósí rúnta
með stelp-
unum og
við förum
á kaffihús
eða eitthvað
slíkt.“
Kolla
segir hjól-
reiðarnar
vera frá-
bæra útivist
og hreyf-
ingu og
hún hafi
ekki verið í
betra formi
síðan hún
var ung-
lingur. „Ég
get varla
lýst því
hvað það hefur orðið
mikil breyting á minni líðan eft-
ir að ég byrjaði að hjóla. Ef ég gat
þetta þá geta þetta allir.“
Hlakkar til að mæta í vinnuna
Á aðeins nokkrum mánuðum hef-
ur Kolla þróast úr því að vera al-
gjör kyrrsetumanneskja í að lifa og
hrærast í íþróttum, bæði í leik og
starfi. Hún hlær þegar blaðamaður
spyr út í þessa algjöru kúvendingu
og hvernig nýja lífið leiki hana.
„Til að toppa þetta alveg og til að
geta gert nákvæmlega það sem ég
elska og elskað það sem ég geri, þá
fór ég að vinna í hjólabúð.“
Aðspurð segist Kolla ekki beint
hafa sótt um starf í versluninni,
heldur hafi málin einhvern veginn
bara þróast svona. „Þetta var upp-
áhaldshjólabúðin mín sem ég kom
reglulega í og svo æxlaðist það
þannig að það varð samkomulag
um að ég færi að vinna hjá þeim,“
útskýrir hún.
Kolla nýtur sín vel í versluninni
og segir starfið mjög skemmtilegt.
„Það eru algjör forréttindi að fá að
starfa við áhugamálið mitt. Ég er
allan daginn í þessu og að hlakka
til að mæta í vinnuna er dásam-
legt,“ segir Kolla og ljómar öll þegar
hún ræðir nýja starfið. n
Auðvelt að hjóla á veturna
Gættu þess að þér verði ekki kalt á höndum, fótum og höfði
Í hugum margra eru hjólreiðar eflaust
frekar sumaríþrótt en Kolla segir ekkert því
til fyrirstöðu að hjóla líka á veturna. Hún er
sjálf búin að koma sér upp búnaði sem gerir
henni kleift að þjóta um göturnar í kulda
og snjó á næstu mánuðum.
„Maður þarf kannski að hafa pínulítið
meira fyrir þessu á veturna. Veðrið getur
auðvitað verið misjafnt, en það er yfirleitt
betra en maður hélt þegar maður er
kominn út og sestur á hjólið,“ segir hún
sannfærandi.
Kolla segir þó nauðsynlegt að huga
að ýmsu þegar hjólað er á veturna, bæði
hvað hjólið varðar og hjólreiðamanninn
sjálfan.
„Þegar kemur að hjólinu eru góð ljós
númer eitt, tvo og þrjú, bæði svo þú sjáir
hvert þú ert að hjóla og svo aðrir sjái þig.
Góð dekk eru líka mikilvæg og langflestir
fara á nagladekk á veturna. Við erum
nefnilega oft að hjóla á göngustígum og
þar er ekki saltað og oft töluverður snjór.
Svo þarf hjólreiðamaðurinn að huga
að því að klæða sig vel. Auðvitað klæðir
maður sig í vetrarföt, góðan jakka og
buxur, en erfiðast er að ná að halda
almennilegum hita á fótum og höndum.“
Hún segir því mikilvægt að verða sér úti
um hlýja hanska og góða skó og gæta
þess einnig að verða ekki kalt á höfðinu.
„Maður þarf þó minna af fötum en maður
heldur því manni hitnar svo fljótt af því að
hjóla,“ bendir Kolla á.
„Það er samt svo
frábært við hjól-
reiðarnar hvað þetta er
ótrúlega fljótt að koma.
Úti að hjóla Kolla er
búin að hjóla um 3.000
kílómetra síðan í vor.
Kúventi lífsstílnum Kolla
var algjör kyrrsetumanneskja
og hafði í raun ekki stundað
líkamsrækt frá því að hún var í
menntaskóla. Mynd SiGtryGGur Ari
WOW cyclothon Kollu
fannst það klikkuð hugmynd
þegar Rikka vinkona hennar
stakk upp á því við hana að þær
skelltu í lið í WOW cyclothon.
Sólrún Lilja ragnarsdóttir
solrun@dv.is