Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2014, Side 56
Helgarblað 24.–27. október 2014 83. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Þingmenn hafa fengið félags- skap við hæfi þennan dag. Langir, steiktir dagar n „Tökur til miðnættis, en sleppur í þessum félagsskap!!“ skrifar skemmtikrafturinn Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., við skrautlega mynd sem hann birtir á Instagram. Þar má sjá Steinda, með furðulegan hjálm á höfð- inu, umkringdan Sögu Garðar- dóttur, Pétri Jóhanni Sigfússyni og Auðuni Blöndal sem leika í þáttunum Hreinn Skjöldur sem sýndir verða í vetur á Stöð 2. Auðunn birti svipaða mynd á dögunum, af sér með athyglis- verða hárkollu á höfðinu, þar sem hann skrifar og lofar: „Þetta verður ekkert steikt!“ Hörður snýr aftur n Íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon komst í fréttir net- miðla á dögunum þegar hann hætti með látum á samskipta- síðunni Twitter. Hörður hafði farið hörðum orðum um leik- skipulag U-21 árs landsliðs karla í knattspyrnu svo mörgum þótti nóg um. Í kjölfarið lokaði hann aðgangi sínum en nú á miðviku- dag sneri hann aftur. „Eftir umhugsun sný ég aftur. Friður og jákvæðni ofarlega í huga,“ skrifaði Hörður sem síð- an þakkar fyrir sterk viðbrögð við brotthvarfinu. Hann samþykkir að hafa farið yfir strikið. „Er mannlegur og ég fór framúr sjálfum mér. Mun ekki gerast aftur. Er stundum einmana- legt að vera á mínu svæði.“ Ekki bandið hennar Sölku n „Ég get verið stundum gleym- inn og er með athyglisbrest á háu stigi. Salka Sól skammaði mig réttilega fyrir að tala um hana sem „Salka sól og bandið henn- ar.“ Bandið sem hún er partur af af heitir AmabAdamA,“ seg- ir Bubbi Morthens í athugasemd á Facebook. Hann hefur boðað til tónleika til styrktar níumenn- ingunum sem ákærðir voru fyrir mótmæli í Gálgahrauni og dæmd- ir til sektargreiðslu. Í auglýsingu fyrir tónleikana kallaði Bubbi fyrir slysni AmabAdamA bandið hennar Sölku. Á tónleikun- um, sem fara fram þann 29. október, koma þau fram auk Unnsteins Manúels, Ojba Rasta og fleiri tónlistarmanna. Nánari upplýsingar veitir Arna í síma 568 7733 eða: arna@epal.is Við hjá Epal hjálpum þér að velja réttu gjöfina fyrir þig og þitt starfsfólk. - Mikið úrval - Góð verð - Fagleg ráðgjöf - Frí innpökkun Epal hefur boðið upp á faglega þjónustu og gæða vörur í 39 ár Gefðu gjöf frá frægustu hönnuðum heims Harpa / Skeifan 6 / Keflavíkurflugvöllur / 5687733 / epal@epal.is / www.epal.is Hönnun: Sigurjón Pálsson Hönnun: Stella Design Þ eir hafa mikinn áhuga á þingstörfunum og finnst ekkert leiðinlegt að heilsa fólki sem þeim þykir afar merkilegt, þvert á flokka. Þeir hafa verið að teikna og finnst gaman að spóka sig hér. Þeim finnst þó svo- lítið skrítið að við þingmennirnir séum ekki alltaf sammála,“ segir Katrín Jakobsdóttir, þingmaður og formaður Vinstri grænna, sem tók syni sína þrjá með í vinnuna á Al- þingi á þriðjudag því vetrarfrí var í skólum þeirra. Fleiri þingmenn voru í sömu stöðu og því voru nokkur börn sem tóku sæti á Al- þingi á þriðjudag. Í vikunni voru víða vetrarfrí í skólum og því eflaust mörg börn sem fóru með foreldrum sínum til vinnu. „Ég hafði lítið getað sinnt þeim í vetrarfríinu vegna anna við þingstörfin svo pabbi þeirra hafði tekið það að sér hina dagana. Hjá okkur er þetta svolítið púsluspil eins og hjá öðrum fjölskyldum.“ Katrín segir að gaman væri ef foreldrar gætu nýtt vetrarfríin bet- ur með börnum sínum. „Þang- að til eru börnin bara höfð með í vinnuna. Eitt af því sem ég skoð- aði þegar ég var menntamálaráð- herra var hvort ekki væri hægt að samræma þetta en það var ekki nægur vilji til þess. Það er stund- um flókið fyrir foreldra að koma þessu heim og saman. Úr því við erum komin með vetrarfrí í skól- um væri mjög æskilegt að vinnu- markaðurinn myndi fylgja með. Í öðrum löndum er gert ráð fyrir því að einhverju leyti að fólk geti feng- ið frí þegar vetrarfrí eru í skólum,“ segir hún. n dagny@dv.is Börnin með á Alþingi Æskilegt að foreldrar geti nýtt vetrarfríin með börnum sínum Vetrarfrí Katrín Jakobsdóttir tók syni sína þrjá með á Alþingi í vikunni. Á myndinni er hún með tveimur þeirra, Ármanni Áka, 3 ára, og Jakobi, 8 ára. Mynd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.