Bændablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Endurkortlagningu náttúrulegra
birkiskóga og -kjarrs á
Íslandi er lokið. Niðurstaða
kortlagningarinnar sýnir að í fyrsta
sinn frá landnámi eru birkiskógar
landsins að stækka og þekja nú
hálft annað prósent landsins.
Mest hafa skógarnir breiðst út á
Vestfjörðum og Suðurlandi.
Á kynningarfundi Rannsókna-
stöðvar Skógræktar Íslands
að Mógilsá sagði Aðalsteinn
Sigurgeirsson forstöðumaður að
hnignun skóganna sem hófst við
upphaf byggðar í landinu sé lokið
og birkiskógarnir farnir að breiðast
út á ný.
Arnór Snorrason skógfræðingur,
sem stýrði verkefninu, rakti stuttlega
sögu birkikortlagningar á Íslandi
og hvernig hún hefði nýst við
endurkortlagninguna sem tók fimm
ár. Því næst rakti Björn Traustason
landfræðingur helstu niðurstöður
verkefnisins.
Útbreiðsla birkiskóga aukist um
10% frá 1989
Í máli Björns kom fram að í dag
þeki birki 1,5% landsins eða 1.506
ferkílómetra lands. Flatarmál þess
hefur aukist um tæp 10% frá árinu
1989 eða um130 ferkílómetra.
Til samanburðar benti Björn á
að aukin útbreiðsla skóganna væri
50% meir en núverandi flatarmál
Nornahrauns í Holuhrauni.
Misjafnt er hversu mikið
birkiskógarnir hafa breiðst út eftir
landshlutum. Mest er aukningin á
Vestfjörðum og Suðurlandi en minnst
á Norður- og Austurlandi. Skýringuna
á þessu má hugsanlega rekja til þess
að meðalhiti hefur hækkað meira á
vestanverðu landinu síðustu áratugi
en á austurhelmingi landsins.
Tré fullvaxta tveggja metra há
Á fundinum kom fram að samkvæmt
íslenskri skilgreiningu verði
trjágróður fullvaxta þegar hann nær
2 m hæð og og geti þá kallast skógur.
Annars er talað um kjarr.
Íslenska birkið skiptist þannig
að birkikjarr telst nú þekja hálft
prósent landsins, um 547 km2, en
birkiskógur þar sem fullvaxin tré eru
tveir metrar eða hærri þekur um eitt
prósent af heildarflatarmáli landsins,
um 960 km2. Ef nota ætti alþjóðlega
skilgreiningu um skóg þyrfti birkið
að ná fimm metra hæð eða meira
fullvaxið og þá teldust einungis um
115 km2 íslenska birkiskóglendisins
vera skógur.
Mikið verk óunnið úr gögnum
Þrátt fyrir að niðurstöður liggi fyrir
um flatarmál íslenskra birkiskóga
er enn mikil vinna eftir sem tengist
kortlagningunni og útbreiðslu
einstakra birkiskóga í landinu.
Kortlagningin sýnir að flatarmál
birkis á Þórsmörk hefur aukist um 10
km2 frá eldri kortlagningu sem sýndi
4 km2. Útbreiðsla birkisins þar er
því geysimikil sem má meðal annars
þakka 80 ára friðun svæðisins fyrir
beit. Borgarbyggð er það sveitarfélag
á landinu sem mældist mest af
birkiskógi og birkikjarri á landinu.
.
Umhverfisráðherra ánægð með
niðurstöðurnar
Undir lok kynningarinnar færði Jón
Loftsson skógræktarstjóri Sigrúnu
Magnúsdóttur umhverfisráðherra
prentað kort af Íslandi þar sem
birkiskóglendið hefur verið merkt
inn. Af því tilefni sagðist Sigrún
fagna gjöfinni og lýsti ánægju sinni
með þær niðurstöður sem kynntar
voru á fundinum.
Vefsjá og „app“
Í tengslum við kynningu
n i ð u r s t a ð n a n n a h e f u r
skóglendisvefsjá Skógræktar ríkisins
verið uppfærð á vef stofnunarinnar
(skogur.is). Vefsjáin sýnir allt
skóglendi sem upplýsingar eru
til um á Íslandi, bæði náttúrulegt
birkiskóglendi og ræktaða skóga.
Enn fremur hefur verið útbúið
smáforrit eða app sem nota má
til að skoða vefsjána í símum og
spjaldtölvum. /VH
Fréttir
Endurkortlagning náttúrulegra birkiskóga og -kjarrs á Íslandi:
Birki þekur 1,5% landsins
− útbreiðsla birkiskóga aukist um 10% frá 1989
prentað kort af Íslandi þar sem birkiskóglendið hefur verið merkt inn.
Myndir / VH
Arnór Snorrason skógfræðingur,
sem stýrði verkefninu, rakti stuttlega
Björn Traustason landfræðingur
kynnti niðurstöður verkefnisins.