Bændablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Bændum
landsins
þökkum við
traustið, við
styðjum ykkur
áfram að
bættum hag
Búvís ehf · Akureyri
Sími 465 1332
Íslenskir bændu
r, takk
fyrir okkur. Meg
i okkar
samstarf vaxa o
g dafna
um ókomna tíð
.
www.buvis.is
Áburðarsala hjá Búvís hefur aukist jafnt
og þétt með hverju ári og er nú orðin 10%
af heildarinnflutningi áburðar í landinu.
Búvís hefur lagt áherslu á góða vöru og hagstætt verð.
Þetta vita bændur.
Búvís, stofnað árið 2006, hefur verið leiðandi í lágu
vöruverði og er í hópi framúrskarandi fyrirtækja annað
árið í röð (1.7% af fyrirtækjum landsins). Svona árangur
hefur náðst með stuðningi íslenskra bænda.
Nokkur atriði sem hafa ætti í huga og skipta
máli til að ná hámarks uppskeru og árangri.
· Rétt samsetning áburðarefna miðað við þarfir jarðvegs
og gripa.
· Tímasetning áburðardreifingar má ekki vera of sein,
þannig að grös og áburður geti nýtt jarðraka.
· Auðuppleysanlegur áburður fer hraðar að virka en
harðkorna áburður, sem skiptir máli á okkar stutta sumri.
· Jöfn dreifing yfir allt túnið þannig að jafnt sé dreift
á miðhluta túnsins sem og jaðra.
Margir viðskiptavinir Búvís á Norður og Austurlandi
heyjuðu gífurlega vel á síðasta ári og geta leyft sér að
kaupa minni áburð í ár en í fyrra. Þrátt fyrir það hefur
Búvís aukið markaðshlutdeild sína eitt árið enn og er
komið með yfir 10% markaðshlutdeild.
sem snýst um íslenskar kindur. Það
er ekkert sambærilegt til, sem er
auðvitað mjög gott upplegg.
Ég ákvað að hanna umslagið,
setja upp innihaldið og birta þetta
á netinu sem kynningarefni um
tilvonandi bók. Svo setti ég sérstakt
forkaupsverð til 10. febrúar, markmið
mitt var að afla með því fjármagns
fyrir prentkostnaði áður en bókin
færi í prentun. Og það er magnað,
það komu strax pantanir og planið
hefur nú þegar gengið upp. Bókin
ætti að verða fáanleg í síðasta lagi
um næstu mánaðamót.“
Caroline segir að margir hafi
komið að útgáfunni. „Ég var sjálf
komin með nokkurn grunn að vissu
leyti og það hjálpaði mikið til að flestir
vinir mínir eru sauðfjárbændur, svo
sem Matthildur á Þóroddsstöðum,
Árborg og Ingvar í Víðidalstungu
II og allir nágrannar mínir hérna í
Hegranesi. Svo er það sérstaklega
Halldór á Súluvöllum sem hefur
verið óþreytandi að svara mér
öllum mögulegum og ómögulegum
spurningum í kringum sauðfé. Ég
kynntist honum upphaflega þar
sem hann er smalahundaþjálfari og
hefur þjálfað okkur Baug. Þá fór
Gunnar Guðbjartsson á Hjarðarfelli
á kaf í gamla reikninga og fann
þýska kaupandann þriggja hrúta
frá Hjarðarfelli fyrir mig. Einnig
hafa þeir Þórarinn Ingi Pétursson
og Sigurður Eyþórsson hjálpað mér,
til dæmis með ýmsa tölfræði um
litahlutföll. Þórarinn Ingi skrifar
líka formálann að bókinni. Svo
er ég mikill bókaormur og las
allar sauðfjárbækur sem til voru í
bókasafninu á Króknum, auk þess
fann ég mikið efni í bókum sem ég
á sjálf á borð við „Íslenskt þjóðlíf
í 1000 ár“ eftir Daníel Bruun,
„Samgöngur í Skaftafellssýslum“
eftir Pál Þorsteinsson og
„Sauðfjárrækt á Íslandi“, sem
Ragnhildur Sigurðardóttir gaf út.
Svo má ekki gleyma „Forystufé“
eftir Ásgeir Jónsson sem er alveg
stórkostleg bók og mig langar mikið
til að eiga. Kannski les einhver þessar
línur sem á tvö eintök og er til í að
selja annað þeirra.
Auk þess gekk vonum framar
að fá svör í Facebook-hópnum
„Sauðfjárbændur“, sem er frábær
hópur í alla staði. Ég fékk líka helling
af flottum myndum í gegnum þennan
hóp, ætla fyrst og fremst að nefna
Birgittu á Möðruvöllum, Ransý
í Ásgarði, Dagbjart á Hrísum og
Reimar á Felli sem lögðu sig mikið
fram. Það vantaði bara í kaflann
„Íslenskt sauðfé í útlöndum“. Það
var fyrst svolítið flókið en ég náði
sambandi við Jill Tyrer í Wales,
Helen Whybrow í Bandaríkjunum
og Eirin Rauö í Noregi, sem sendu
mér ekki bara frábærar myndir
heldur líka dýrmætar upplýsingar.
Það var dálítið skrítið en það var
hins vegar mjög erfitt að finna
upplýsingar um íslenskt sauðfé í
Þýskalandi.“
Fyrst kemur bókin aðeins út á
þýsku en Caroline segir að ef hún
seljist vel – og ef það er hægt að
fá styrk – væri örugglega gott að
gefa hana út á ensku líka og einnig á
dönsku. „Það er spurning hvort það
borgi sig að gefa hana út á íslensku,
þar sem hérna er svo margt til um
sauðfé. Það kemur í ljós hvernig
viðbrögðin verða.“
Verður vonandi víða til sölu
„Bókin verður vonandi bráðum til
sölu á mörgum stöðum sem eru
einhvern veginn tengdir sauðfé
og/eða ferðaþjónustu – svo sem á
söfnum, ferðaþjónustumiðstöðvum
og á sauðfjárbúum sem bjóða upp
á gistingu eða selja sauðfjárafurðir.
Hún kostar ekki mikið miðað við
umfangið, 1.500 krónur. Ég ætla að
fara í smá kynningartúr á Norðurlandi
væntanlega í mars. Svo er líka hægt
að panta hana beint hjá forlaginu, það
er hjá mér: info@verlag-alpha-umi.
de eða í símanum 865 8107. Þeir sem
ætla að selja hana geta fengið hana
hjá mér á góðu verði þannig að þeir
fá milli 20% og 40% af söluverðinu
fyrir sig.
Markmið mitt er að allir græði
á því; ferðamenn vita meira og
uppgötva nýtt, bændur selja meira
af afurðum sínum og forlagið fær
vonandi nógu mikla peninga til að
gefa út næsta bók – væntanlega um
forystufé.“ /smh
Dekkjainnflutningur
15% afsláttur af öllum dekkjum
til 28. febrúar 2015
Eigum á lager flestar stærðir
traktora-, vagna-, vinnuvéla-
og vörubíladekkja.
Einnig mikið úrval fólksbíla-
og jeppadekkja.
Jason ehf.
Hafnarstræti 88
Akureyri
Vinsamlegast hafið samband við
Ármann Sverrisson 896-8462 e-mail jasondekk@simnet.is
Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124