Bændablaðið - 12.02.2015, Side 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Fréttaskýring
Kólguský hrannast nú upp yfir
Evrópusambandinu og löndunum
innan evrusvæðisins. Ætlun nýrra
stjórnvalda Grikkja undir forystu
Syriza-flokksins og Podémos að
borga ekki brúsa einkabanka sem
Evrópusambandið neyddi upp á
þá hefur valdið miklum titringi
í stjórnkerfi ESB. Vandséð er
hvernig evrusvæðið kemst út úr
þeim hremmingum sem við blasa,
en neyðarfundur var haldinn um
málið í gær.
Alexis Tsipras, leiðtogi Syriza,
lofaði Grikkjum að hætta að borga
af þessum lánum ef hann kæmist
til valda í kosningunum í janúar og
það er nú að verða að veruleika. Svar
Þjóðverja og annarra forysturíkja
innan ESB er að gefa ekkert eftir
gagnvart Grikkjum.
Klofningur í afstöðunni
til vanda Grikkja
Kominn er upp klofningur meðal
forysturíkja evrusvæðisins um
stefnu gagnvart Grikkjum að því
er fram kom í Finacial Times um
síðustu helgi. Þjóðverjar vilja keyra
skuldainnheimtu gagnvart Grikkjum
áfram af fullri hörku en Frakkar vilja
fara mildari leið. FT telur þó vafa
leika á hvort hugur fylgi máli hjá
Francois Hollande Frakklandsforseta
um að liðsinna Grikkjum.
Þjóðverjar krefjast þess að
Grikkir leggi fram nýtt greiðsluplan
á sínum skuldum en Grikkir segjast
ekki taka í mál að byggja slíkt plan
á fyrri forsendum. Óttast ráðamenn
ESB nú að sú afstaða Grikkja að
neyta að borga skuldirnar fyrir
gjaldþrota banka kunni að magna
upp ágreiningsbylgju milli Suður-
Evrópuríkja og ríkjanna í Norður-
Evrópu. Þegar er t.d. farið að bera á
óróa á Spáni.
Það kom fram í Wall Street
Journal og eins í Financial Times í
síðustu viku að Grikkland kæmist
í þrot á næstu vikum. Ef Grikkjum
takist ekki að tryggja sér lánsfé muni
ríkið einfaldlega fara á hausinn.
Á fréttavef BBC er vitnað í
Alan Greenspan, fyrrverandi
seðlabankastjóra Bandaríkjanna.
Hann spáir því að Grikkland muni
hætta í evrusamstarfinu.
Í athugasemdadálkum bresku
blaðanna eru ekki allir sem telja
stöðuna vonlausa fyrir Grikki. Þar
er m.a. bent á að Grikkir geti hæglega
farið sömu leið og ESB og sett í gang
prentvélar til að prenta nýjan eigin
gjaldmiðil, allavega til heimabrúks.
Nota hann síðan til að skipta út við
landsmenn þeim evrum sem eru í
umferð og ná þannig inn talsverðum
galdeyri í ríkiskassann.
Wall Street Journal telur
hættu á glundroða
The Wall Street Journal brýnir
menn nú til að upphugsa leiðir til
að bjarga sér undan evrukreppunni.
Það varði t.d. fjármagnsflutninga
yfir landamæri hjá fyrirtækjum
sem eru með starfsemi í mörgum
löndum. Brotthvarf einhvers ríkis úr
myntsamstarfi evruríkjanna geti haft
ófyrirséðar keðjuverkanir. Vandinn
sem nú blasi við geti hæglega skrúfast
upp yfir eina helgi. „Þá verður algjör
glundroði,” segir blaðið.
Möguleg keðjuverkun ef Grikkir
hverfa úr evrusamstarfinu
Dálkahöfundurinn Tim Worshall
sagði í fjármálatímaritinu Forbes
á dögunum að það væri rangur
skilningur hjá Þjóðverjum að halda
að evran geti lifað af brottför Grikkja
úr evrusamstarfinu. Hann spáir því
að eftir að rykið fari að setjast við
brottför Grikkja úr evrusamstarfinu
með tilheyrandi falli banka, muni
efnahagslífið í landinu taka hratt
við sér. Eftir um 12 mánaða strögl
muni hagvöxtur í landinu aukast
hratt næstu ár á eftir. Sú staða muni
síðan hafa mikil áhrif á Ítali sem eru
þegar komnir inn í skuldahringiðu.
Hugsanlega muni þeir þá íhuga að
fara sömu leið og Grikkir, kasta
evrunni og taka upp gömlu líruna á
ný. Þá setur hann spurningarmerki
um Frakkland sem sé að nálgast
svipaða stöðu og Ítalir. Eins sé Belgía
þegar komin fram af hengifluginu.
Svissneskur gullkaupmaður spáir
gjaldeyrisstríði
Það eru fleiri sem hafa ekki spáð
vel fyrir evrunni. Á vefsíðunni
King World News má lesa spá
svissneska stóreignamannsins og
gullkaupmannsins Egon von Greyerz
sem á m.a. Gold Switzerland og
Matterhorn Asset Management AG.
Hann spáði því þann 1. desember sl.
að evran myndi falla mikið á næstu
vikum og allt gekk það eftir. Nú
spáir hann hreinlega gjaldeyrisstríði
á komandi mánuðum, þar sem
eigendur peninga muni reyna allt til
að tryggja þá með einhverjum hætti
t.d. í gulli eða silfri.
Spáir hann því gríðarlegum
verðhækkunum á þessum
eðalmálmum á næstu mánuðum
og að sama skapi falli gjaldmiðla.
Egon von Greyerz segir líka að
staðan hjá Swiss National Bank sé
nú mjög alvarleg sökum gríðarlegra
innistæðna í ótryggum gjaldeyri. Nær
útilokað sé annað en að bankinn tapi
stórt.
The Economist – Vandinn liggur
í vaxtainnheimtunni
Í grein Button Wood í The Economist
síðastliðinn
laugar dag segir hann að baráttan um
skulda málin á milli Grikkja og ESB
snúist um siðferði í skulda málum
og hagstjórn þar sem innheimtir séu
vextir af skuldum. Þetta sé málefni
sem tekist hafi verið á um í þúsundir
ára. Um þetta hefur reyndar verið
talsvert fjallað í Bændablaðinu
undanfarin ár.
„Hugmyndin um að innheimta
vexti af skuldum kom upp þegar
Hammurabi réði yfir Babylon um
1800 árum fyrir Krist. Hann setti
reglur um að mest mætti innheimta
33,3% vexti fyrir lán á korni og 20%
vexti fyrir lán á silfri,“ segir Button
Wood.
„Það var talsverð áhersla á hvað
væri sanngjarnt. Sá sem lánaði
nágranna sínum nautgrip átti rétt á
að fá alla kálfa sem kæmu undir í
framhaldi af því láni. Sumerska orðið
fyrir vexti er einmitt mas sem þýðir
kálfur. Aristole færði þá rök fyrir
því að ekki ætti að heimta vexti af
hráefni sem ekki bæri ávöxt, eins
og af silfri.“
„Hættið að þvinga Syriza“
Staðan á evrusvæðinu er tvísýn.
Gripið var til þess ráðs af hálfu
stjórnvalda í Brussel og Seðlabanka
Evrópu að beita Grikki þvingunum,
skrúfa fyrir samvinnu og niðurlægja
þá eins og hægt er. Í breskum
fjölmiðlum var varpað upp þeirri
spurningu um síðustu helgi hvort
þessi aðferðafræði myndi ekki
springa í andlitið á evruríkjunum.
The Guardian sagði í fyrirsögn;
„Hættið að þvinga Syriza. Við höfum
ekki efni á öðrum röngum snúningi
í Evrópu.“
Hefur evrusvæðið brugðist
almenningi í Grikklandi?
Blaðið segir að flestir viðurkenni
að Grikkir hafi gert mistök í
efnahagsmálum, forystumenn Syriza
viðurkenni það líka.
„Það er kominn tími til að íhuga
hvort evrusvæðið hafi ekki líka
brugðist almenningi í Grikklandi.“
Allt snýst þetta um svokallað
„Troika-imposed bailout“ þar
sem evrulöndin veittu Grikkjum
risalán til að greiða skuldir vegna
áhættufjárfestinga við evrópska
banka, einkum þýskra og franskra. Í
stað þess að bankarnir væru hreinlega
settir á hausinn fyrir eigin glappaskot
var gríska ríkið látið ábyrgjast
lántökurnar með skelfilegum
afleiðingum fyrir almenning í
Grikklandi.
„Grikkir eiga skilið að þeim verði
sagður sannleikurinn í málinu,“
segir Guardian. „Syriza, frekar en
nokkur annar, hefur þó allavega
komið heiðarlega fram og sagt fólki
hvað hafi farið úrskeiðis. Tilraunir
til að kæfa rödd Syriza mun aðeins
magna upp and-evrópsk öfl sem
mun hafa skelfilegar afleiðingar
fyrir evrusvæðið.“ Segir Guardian
að eina skynsamlega lausnin í málinu
nú sé að gera málamiðlun og semja
við Grikki.
Reynt að draga Íslendinga
út í evrufenið
Út í þetta botnlausa fen hafa
forystumenn ákveðins stjórnmálaafls
á Íslandi verið að reyna að draga
íslensku þjóðina forspurða og af
fullkomnu ábyrgðarleysi. Það er því
kaldhæðnislegt að á sama tíma vex
andstaðan við ESB víða í Evrópu og
ekki síst í Bretlandi sem býr nú að því
að hafa ekki álpast inn í myntsamstarf
evruríkjanna með upptöku evru.
Hefur hörðum áróðri fyrir inngöngi
í ESB verið óspart beitt og reynt að
skrúfa upp múgsefjun hér á landi um
málið. Ýmsum miður geðslegum
meðulum hefur þar verið beitt. Varla
hefur t.d. farið fram hjá nokkrum
manni sú aðför sem gerð hefur verið
að íslenskum landbúnaði og forystu
Bændasamtaka Íslands. Það hefur
verið fyrir það eitt að BÍ reynir
að standa í lappirnar við að verja
íslenskan landbúnað og fjölda starfa
í greininni gagnvart ESB. Sömuleiðis
hafa íslenskir útgerðarmenn fengið að
finna til tevatnsins, en þar á bæ hafa
menn einmitt óttast að Íslendingar
geti við aðild að ESB misst yfirstjórn
eigin fiskimiða í hendur ESB.
Mun hugsanlega brjóta
evrusvæðið á bak aftur
Í grein Guardian síðastliðinn föstudag
segir að sú stefna forysturíkja ESB
að beita Grikki hörðum þvingunum
kunni að vera kornið sem fylli mælinn
og brjóti evrusvæðið á bak aftur.
Pólitískt svigrúm innan evrusvæðisins
hafi minnkað svo mikið að líklega
sé orðið ómögulegt að koma þar
á skynsamlegri fjármálastefnu.
„Hvaða mistök gerðum við?“ spyr
blaðið. „Hvernig eigum við að
taka skynsamlega ákvörðun í þetta
skiptið?“
Vandinn er að forystumenn
innan ESB neyddu seðlabanka sína
í aðgerðir til að bjarga bönkum á
kostnað evrópskra skattgreiðenda.
Hafa þeir reyndar verið harðlega
gagnrýndir fyrir þetta, en á móti hafa
þeir reynt að þvo hendur sínar með
því að gera lítið úr Grikkjum og segja
þá bæði lata og eyðslusama.
Bendir blaðið á Íra sem eitt af
þessum mjög vafasömu dæmum.
„Írland hefur af heimsku tryggt
sína gjaldþrota banka og var svo
bannað af Seðlabanka Evrópu
að afskrifa eina einustu evru af
inneignum skuldabréfaeigenda.
Skuldir einkabanka og fjármálamanna
voru fluttar yfir á almenning sem nú
er látinn borga brúsann.“
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Óveðurskýin hrannast upp
yfir evruríkjunum
− fjölmiðlar í Evrópu telja framtíð evrunnar og samstarf evruríkjanna mjög óstöðugt
Afstaða Grikkja til skulda
fjármálamanna og banka,
sem þeir sætta sig ekki við að
borga, skekur nú myntsamstarf
evruríkjanna.
Alexis Tsipras, leiðtogi Syriza, hefur
heldur betur hrist upp í evrópskri
lofaði Grikkjum að hætta að borga
af lánum ríkisins ef hann kæmist til
valda í kosningunum í janúar.
Svissneskur gullkaupmaður, Egon von Greyerz, spáir gjaldeyrisstríði
og að fjármagnseigendur muni á komandi mánuðum í stórum stíl
reyna að tryggja sín verðmæti með kaupum á gulli og silfri í stað
óstöðugra peninga.
Egon von Greyerz.