Bændablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
inn í gilið sjálft. Í líparítinu má sjá
fjölbreyttar bergmyndanir og einnig
sérkennilega basalt-bergganga sem
kljúfa líparítskriðurnar bæði á þvers
og kruss.
Nadda-krossinn í Skriðunum
Úti í Skriðum, þar sem vegurinn
til Borgarfjarðar liggur, má finna
Nadda-krossinn. Gamlar sögur herma
að þarna hafi verið á ferð óvættur,
hálfur hestur og hálfur maður, sem
kallaður var Naddi. Bjó hann í helli
í skriðunum, er kallast Naddahellir,
rændi þá sem um skriðurnar fóru og
varð nokkrum mönnum að bana. Á
hann að hafa verið veginn af Jóni
frá Gilsárvöllum og krossinn settur
þarna niður til að halda honum frá.
Árni Á. Bóasson smíðaði krossinn
árið 1954, en sá sem stóð þar á
undan gerði faðir hans, Bóas Eydal.
Krossinn stóð áður í grasjaðri ofan
götu, en var síðan færður niður
fyrir vegbrún, þegar akvegurinn var
gerður um skriðurnar. Árið 2013
endurnýjaði svo Árni Á.
Bóasson krossinn.
Friðlýstar fornminjar
Þor raga rðu r inn e r
vörslugarður sem sagður er
hafa verið hlaðinn af Ásbirni
vegghamar skv. frásögn
Fljótsdælu. Hann nær ofan úr
Kerlingarfjalli og fram milli
Borgar og Njarðvíkurbæja
og var allt að 1,4 km að
lengd og 1,5 m á hæð. Ekki
sést hann þó allur nema rétt
innan við Hlíðartún, en þar
standa sýnilegustu leifarnar
af garðinum. Þorragarðurinn
og Þiðrandaþúfan eru bæði
friðlýstar fornminjar.
Þiðrandaþúfan er þúfa
sem stendur á bæjartúnunum
í Njarðvík, þar á Þiðrandi
Geitisson að hafa verið
veginn, sagt er frá því í Fljótsdælu.
Inn fyrir miðri vík standa
Gunnarssker, þrjú talsins. Tvö af
þeim sjást oftast, en það þriðja sést
nær eingöngu á stórstreymisfjöru.
Samkvæmt Fljótsdælu á Gunnar
Þiðrandabani að hafa hvílst á innra
skerinu á flótta undan óvinum yfir
víkina. /MÞÞ
Lífið er ekki alltaf dans á rósum í Njarðvík - Rafmagnslaust í hátt í tvo sólarhringa eystra í haust:
Spiluðu í lopapeysum við kertaljós
− „Það væsti ekki um okkur,“ segir Jakob Sigurðsson í Hlíðartúni
„Það brunnu nú upp ansi mörg
kerti hjá okkur, en það var í
lagi því nóg var til,“ segir Jakob
Sigurðsson sem býr ásamt konu
sinni, Margréti B. Hjarðar,
og Bóasi, syni þeirra, að
Hlíðartúni í Njarðvík.
Þar reka þau sauðfjárbú, eru
með nautaeldi og starfrækja
ferðaþjónustu. Rafmagnslaust
varð í 10 húsum í tæpa tvo
sólarhringa á leggnum frá
Borgarfirði eystra og að
Njarðvík í haust, en einungis
er búið í fjórum þeirra. Spennir
í jarðstreng sem liggur frá
Borgarfirði og yfir í Njarðvík
gaf sig af einhverjum ástæðum.
Dúða sig vel undir sængina
„Það væsti ekki um okkur,
íbúðarhúsið er vel einangrað og
við fundum ekki fyrir miklum
kulda, vorum bara vel klædd,
lopapeysur komu að góðum
notum og svo var bara að dúða
sig vel undir sængina,“ segir
Jakob. Þá höfðu þau gaseldavél innan
seilingar og frá henni barst ágætis
hiti þegar kvöldmaturinn var eldaður.
„Bóas fékk okkur til að spila, við
sátum við það í kertaljósinu svo það
má segja að við höfum fengið forskot
á jólastemninguna og það var alveg
ljómandi gott,“ segir hann.
Sat yfir fjárbókinni
Margrét sat yfir fjárbókinni í
tölvunni þegar rafmagnið fór af um
kl. 21 á sunnudagskvöld. Tölvan
fór í gang að nýju og hafði ekki
orðið fyrir skemmdum. Mestar
áhyggjur segir Jakob að þau hafi
haft af rafmagnstækjum, ísskáp og
frystikistu og matvælum sem þar
voru geymd, en svo virðist sem allt
hafi sloppið nokkuð vel. „Við gáfum
skepnum bara einu sinn á dag og þá
vel, það var svo mikið myrkur og
erfitt að paufast niður í hús. Þeim
virðist ekki hafa orðið meint af og eru
vel haldnar,“ segir Jakob. Engir gestir
voru á vegum ferðaþjónustunnar á
þeim tíma sem rafmagnsleysið varði.
Þakplötur fuku af hlöðu
Í óveðrinu sem geisaði fyrr í
mánuðinum fuku þakplötur af
hlöðunni við bæinn og voru félagar
í björgunarsveitinni Sveinungum
kallaðir til aðstoðar.
„Það fuku þarna nokkrar plötur út
í veður og vind og til allrar hamingju
ollu þeir ekki neinu tjóni, en slíkt
hefði vel getað orðið. Þannig að það
má segja að við höfum sloppið vel frá
þessu öllu saman,“ segir Jakob.
/MÞÞ
Það er nóg fyrir ferðafólk að skoða sem
heimsækir bændagistinguna Borg hjá
hjónunum í Hlíðartúni í Njarðvík.
Heimilisfólk í Hlíðartúni í Njarðvík, Margrét B. Hjarðar, Bóas Jakobsson og Jakob Sigurðsson. Myndin var tekin í haust þegar blaðamaður Bændablaðsins
var þar í heimsókn. Á innfelldu myndinni er verið að gera við þakið á hlöðunni, en nokkrar plötur fuku af því í óveðrinu. Myndir / MÞÞ / Hlíðartún