Bændablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Maís – ein af meginstoðum
matvælaframleiðslu í heiminum
Fornleifarannsóknir benda til að
ræktun á maís sé allt að 12.000
ára gömul iðja. Í dag er maís ein
af meginstoðum matvælaræktar
í heiminum og framleiðslan í
kringum milljarður tonna á
ári. Mest er ræktað af maís í
Bandaríkjunum og Kína og mest
af framleiðslunni fer í dýrafóður.
Áætluð heimsframleiðsla á maís
fyrir 2014 til 2015 er 988 milljón
tonn eða 988.000.000.000 kíló sem
er minna en á næsta ræktunartímabili
þar á undan þegar framleiðslan
var 1,016 milljón tonn. Maís er
jafnframt sú planta sem næstmest
er ræktuð í heiminum um þessar
mundir. Spá á heimasíðu Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO) benda til að maís
verði mest ræktaða planta í heimi
eftir fimm ár og að ræktun hennar
muni tvöfaldast, í tvo milljarða tonna,
fyrir 2050.
Bandaríkin eru langstærsti
framleiðandinn, en þar kallast maís
korn, með áætlaða landsframleiðslu
á um 360 milljónum tonna. Kínverjar
rækta 215 milljón tonn, Brasilía er í
þriðja sæti með 75 og Úkraína í því
fjórða með 27 milljón tonn.
Í Bandaríkjunum er maís ræktaður
á rúmlega 40 milljón hekturum lands,
aðallega í norðaustur-ríkjunum eins
Iowa, Nebraska, Illinois, Indiana og
reyndar víðar. Maísrækt í Kína hefur
aukist mikið síðustu þrjá áratugi og
land undir maís aukist úr rúmum 20
milljón hekturum í tæpa 35 milljón.
Er svo komið að land sem fer undir
maís í Kína er meira en fer undir
hrísgrjónarækt og teygir maísbelti
Kína sig frá norðausturhéruðum
landsins í þau suðvestri eða frá
Heilongjiang í norðri suður til
Yunnan.
Maís er nánast í öllu
Stærstur hluti maísframleiðslu
heimsins fer í dýrafóður. Í
Bandaríkjunum er áætlað að um
80% maísframleiðslunnar sé notað
innanlands og í útflutning sem
fóður fyrir búfé, aðallega nautgripi,
í alifuglarækt og fiskeldi. Hluti
þess fer í orkugjafa fyrir farartæki,
í málningu, kerti, snyrtivörur,
tannkrem, bleiur, flugelda, liti, lím,
sandpappír, bíldekk, plastpoka,
skósvertu, bóluefni og pípur sem
voru vinsælar hér á landi í eina tíð,
svo dæmi séu tekin.
Beint til manneldis fara um
12% og er maís notaður beint
eða sem íblöndunarefni í ýmis
matvæli eins og matarolíu, matarlit
og sætuefni. Maís er að finna í
barnamat, ís, hnetusmjöri, snakki,
ediki, tómatsósu, morgunkorni,
salatsósu og fjölda annarra matvæla.
Í drykkjarvörum er maís notaður við
framleiðslu á sumum ávaxtasöfum
og gosdrykkjum eins og kóka kóla,
bjór og viskí.
Portúgalar hófu ræktun á maís í
Helstu nytjaplöntur heimsins
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Í Bandaríkjunum er maís ræktaður á rúmlega 40 milljón hekturum lands.
Stærstur hluti maísframleiðslu heimsins fer í dýrafóður. Í Bandaríkjunum er áætlað að um 80% maísframleiðslunnar