Bændablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
nýlendum sínum í Afríku á 16. öld.
Þaðan hefur maís breiðst út víða um
álfuna og er mikilvæg fæða þar í dag.
Í Afríku er útplöntun, umhirða og
uppskera maís að mestu unnin með
höndunum og aðallega konur sem
sjá um ræktunina eins og reyndar á
öðrum nytjaplöntum.
Allt að 600 maískorn á kólfi
Maís, Zea mayz, er af grasaætt og
því einkímblöðungur. Plantan getur
hæglega náð 2,5 metrum á hæð og
til eru mælingar á plöntum sem hafa
náð 8 metra hæð. Rótarkerfið er
lítið. Stöngullinn er þykkur og líkist
bambus í útliti, blöðin mörg, löng
og mjó, um 9 sentímetra breið og
120 sentímetrar á lengd. Karlblómin
mynda punt ofan við efstu blaðöxl
og berast frjó þeirra með vindi til
kvenblóma sem þroskast við neðri
blaðaxlir. Fræin þroskast í löngum
kólfi og þar myndast hin eiginlegu
maískorn sem þroskast í nokkuð
beinum röðum. Í hverjum kólfi geta
verið allt að 600 korn og myndar
hver planta yfirleitt tvo kólfa.
Maískorn eru stundum kölluð
gular baunir vegna litarins en
baunir á mismunandi afbrigðum eru
í fjölda lita, bleikar, rauðar, hvítar
og nánast svartar og geta kólfarnir
verið marglita.
Í tæknivæddum
landbúnaði er maís
sáð beint eða hann
forræktaður í um 15
sentímetra hæð og
plantað út. Hæfilegt
bil á milli plantna er
fet og það tekur þrjá til
fimm mánuði fyrir hana
að ná fullum þroska.
Rótarkerfið er lítið og
leitar grunnt en plantan er
frek á áburð og kýs
helst jarðveg sem er
ríkur af lífrænum
næringarefnum
og nitri. Hún
þolir illa þurrk og
fellur auðveldlega
blási eitthvað að
ráði. Kjörhitastig í vexti
er 20 °C en maís blómstrar við 10
°C. Verulega dregur úr vexti fari
hitinn undir 8 °C og plantan drepst
við frostmark.
Barbara McClintock fékk
Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og
læknisfræði árið 1983 fyrir
rannsóknir sínar á erfðafræði
maísplantna og að greina það sem
er kallað stökkgen. Árið 2008 var
lokið við að kortleggja erfðamengi
maís sem samanstendur af 32.540
genum.
Rannsóknir á
erfðamengi maís hefur leitt til mikilla
tilrauna með að breyta eiginleikum
plöntunnar með erfðatækni, bæði til
að gefa meira af sér og þola ólíkar
aðstæður. Stærstur hluti maísplantna
í ræktun eru erfðabreyttar annaðhvort
með kynbótum eða genasplæsingu.
Kynbætur gegnum aldirnar hafa
leitt til þess að kólfur plöntunnar
hefur vaxið úr þumlungi að lengd
með nokkrum kornum í plöntur sem
gefa af sér hátt í hálfs metra langa
kólfa sem bera nokkur hundruð korn.
Maís var kvenkynsguð Maya
Flestir sem láta sig málið varða eru
sammála um að maís sé upprunninn
í Mið- og Suður-Ameríku en að
ræktun þess hefjist í fjallshlíðum í
Mexíkó fyrir 7.500 til 12.000 árum.
5.500 ára maísfrjókorn fundust í
borkjarna sem kom upp af 60 metra
dýpi undir Mexíkóborg.
Plantan var í miklu uppáhaldi
og lék stórt hlutverk í menningu
þjóða eins og Maya, Inka, Olmeka,
Tolteka og Azteka. Maísrækt var
undirstaða efnahagslífs Maya og
plantan tilbeðin sem kvenkynsguð.
Frjókornagreiningar sýna
að útbreiðsla maís er talsverð í
suðurríkjum Norður-Ameríku 2.500
árum fyrir Kr. Meðal sumra ættbálka
indíána Norður-Ameríku var sagt
að maís væri gjöf guðs til þeirra og
ræktun þess talsverð meðal þeirra.
Indíánarnir þekktu til samplöntunar
og samhliða maís ræktuðu þeir baunir
sem klifruðu upp eftir stofni maísins
og voru niturbindandi um leið.
Kristófer Kólumbus og hans
menn fluttu með sér maís til Evrópu
eftir að hafa rambað á Ameríku árið
1492. Í fyrstu var plantan ræktuð
fyrir forvitnissakir en ekki leið á
löngu þar til hún var flutt til annarra
heimshluta og ræktun hennar hafin
þar. Evrópskir landnemar í Norður-
Ameríku fluttu plöntuna með sér frá
Evrópu og hófu ræktun þar.
Ræktun
Í Bandaríkjunum þar sem
maísframleiðsla er mest eru
plönturnar yfirleitt ræktaðar á
risastórum ökrum þar sem uppskera
færst tvisvar á ári. Líkt og indíánar
forðum er beitt samplöntun við
ræktunina og annaðhvort rækta alfa
alfa eða sojabaunir sem niturgjafa.
Ræktunin er talsvert bitbein
þeirra sem vilja láta banna ræktun
á maís sem hefur verið erfðabreytt
með genasplæsingu og þeirra sem
styðja ræktun þeirra. Talið er að
um 90% af maís sem ræktaður er í
Bandaríkjunum og 40% í heiminum
öllum sé erfðabreyttur.
Sérstaklega hefur staðið styr um
erfðabreytt afbrigði sem er það sem
er kallað Roundup Ready og ónæmt
fyrir illgresislyfinu Roundup.
Uppskera kólfa í stórræktun var
ekki vélvædd fyrr en vel var liðið á
20. öldina.
Fyrir þann tíma voru kólfarnir
tíndir af með höndunum. Yfirleitt
er maísinn geymdur í sílóum eða
skemmum. Rakastig við geymslu má
ekki fara upp fyrir 14%. Til að koma í
veg fyrir að hitni í uppskerunni vegna
raka og að hún skemmist er heitu lofti
blásið upp í gegnum geymslurnar
svipað og um súgþurrkun sé að ræða.
Líkt og með aðrar nytjaplöntur
herja margs konar bakteríur, vírusar
og sveppir á maís, ryð, kólf- og
rótarfúi og mósaíkvírus svo dæmi
séu nefnd.
Næringargildi maís
Maís er góð uppspretta kolvetna og
í hundrað grömmum af maískorni er
að finna um 86 kaloríur, 6,3 grömm
af sykri og um 4 grömm af fitu. Auk
A-, B- og C-vítamína.
Maís í mörgum litum
A
fbrigði maís eru fjölmörg en í grófum dráttum er þeim
skipt þannig:
Hveitimaís: Zea mays var. amylacea
Poppmaís: Zea mays var. everta
Gulur smár maís: Zea mays var. indentata
Marglitur maís: Zea mays var. indurata
Sætur maís: Zea mays var. saccharata and Zea mays var.
rugosa
Vaxkenndur maís: (upprunninn í Kína) Zea mays var. ceratina
Margar tegundir: Zea mays
Villtur maís: Zea mays var. tunicata Larrañaga ex A. St. Hil.
Maís með röndóttum blöðum og rauðum kólf: Zea mays
var. japonica.
Hvers vegna poppar maís?
E
infaldasta skýringin á því hvers vegna poppmaís popp-
ar er að inni í korninu er örlítið af vatni, tæp 15%, sem
breytist í gufu þegar það hitnar. Gufan leitar inn í sterkj-
una í korninu og þegar hún þenst út sprengir hún utan af
sér harða skelina sem umlykur kornið.
Aðrar tegundir af maís hafa ekki eins harða skel utan
um sterkjuna og poppa því ekki þrátt fyrir að inni-
halda vatn. Kornið poppar þegar þrýstingurinn
inni í korninu nær hámarki við um 180 °C.
Ekki er vitað hver „fann“ upp poppkorn en neysla þess
er þekkt langt aftur í aldir í Mexíkó og Mið-Ameríku.
Í Nýju-Mexíkó í Norður-Ameríku hafa fundist
áhöld sem hugsanlega
hafa verið notuð
til að poppa í
og ríf lega 4.000
gam all poppmaís
sem reyndist auðvelt að
poppa þrátt fyrir háan aldur.
Í dag er vinsælt að fá sér popp í bíó eða fyrir framan
sjónvarpið á kvöldin. Frásagnir um fyrsta landnám Evrópu-
búa þar sem popp stóð til boða segja að þeir hafi borðað
það í morgunmat með ávöxtum, sykri og rjóma.
Áætluð heimsframleiðsla á maís fyrir 2014 til 2015
er 992 milljón tonn eða 992.000.000.000 kíló.
Í Afríku er útplöntun, umhirða og uppskera maís að mestu unnin með hönd-
unum og aðallega konur sem sjá um ræktunina, eins og reyndar á öðrum
nytjaplöntum.
Kynbætur gegnum aldirnar hafa leitt
til þess að kólfur plöntunnar hefur
vaxið úr þumlungi að lengd með
nokkrum kornum í plöntur sem gefa
af sér hátt í hálfs metra langa kólfa
sem bera nokkur hundruð korn.