Bændablaðið - 12.02.2015, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Dráttarvélaframleiðandinn
Minneapolis-Moline varð
til árið 1929 við samruna
þriggja fyrirtækja; stál-
og vélaframleiðandann
Minneapolis Steel & Machinery
(MSM), Minneapolis Threshing
Machine, sem framleiddi
þreskivélar og
Moline Plow
sem framleiddi
plóga og önnur
jarðvinnslutæki.
Minneapol is
Steel & Machinery
sem var stærst
þessara fyrirtækja
var alræmt fyrir
harða afstöðu
s í n a g e g n
verkalýðsfélögum
og viljaleysi til samninga.
MS&M tókst til dæmis að halda
verkalýðsfélögum frá þátttöku
í samningagerð við starfsmenn
sína í 20 ár. Það var ekki fyrri
en í fyrri heimsstyrjöldinni að
samningar um laun og réttindi
tókust eftir að starfsmenn höfðu
hótað verkfalli en fyrirtækið
var stórframleiðandi stríðstóla
á þeim árum. Eftir samruna
fyrirtækjanna erfði Minneapolis-
Moline afstöðu MS&M í
réttindamálum starfsmanna og
stóðu málaferli um eftirlaunarétt
starfmanna fram að upphafi seinni
heimsstyrjaldarinnar.
Tækninýjungar en léleg sala
Fyrir samruna fyrrnefndra
fyrirtækja hafði MS&S framleitt
dráttarvélar í rúman átatug. Fyrstu
traktorarnir þóttu
stórir, klunnalegir
og ómeðfærilegir.
Árið 1917 setti
fyrirtækið á
markað nettari
dráttarvél sem
kallaðist Twin
City 16/30 og
var með stálhlíf
yfir mótornum
og hús fyrir
ökumanninn. Twin
City var jafnframt
fyrsta rafræsta dráttarvélin
og með framljósum. Vélarnar
þóttu nýstárlegar og ekki voru
framleiddar af þeim nema 700
eintök.
Tveimur árum seinna sendi
MS&S frá sér vél sem líktist
Fordson en var fullkomnari og
talsvert dýrari. Þrátt fyrir verðið
var sá traktor vinsæll og seldist
að meðaltali í 3.000 eintökum á
ári næstu 15 árin.
UDLX öll heimsins þægindi
Best heppnaða dráttarvél
Minneapolis-Moline var
framleiðslulína sem kallaðist
UDLX og stendur fyrir U
Delux og kom á markað árið
1938. Traktorar sem tilheyrðu
UDLX-línunni þóttu einstaklega
þægilegir og tæknivæddir. Hægt
var að hita húsið, það var þurrka á
framrúðunni og bílstjórasætið var
bólstrað. Startarinn var rafvæddur
og í mælaborðinu var hraðamælir,
útvarp og sígarettukveikjari.
Vegna allra tækninýjunganna
þóttu UDLX-dráttarvélar dýrar
en seldust þokkalega.
Samruni og dauði
Næsta útspil voru
svokallaðar G
línur og M línur
sem báðar fóru
í framleiðslu
um 1960 .
Fram leiðslu M
línunnar var
hætt eftir 10 ár.
Innan G línunnar
voru stærstu
og öflugustu
drátta rvélarnar
sem Minneapolis-Moline hafði
nokkurn tíma framleitt og voru
þær í framleiðslu til ársins 1974.
White Motor Company tók yfir
Minneapolis-Moline árið 1963
og kastaði nafni þess árið 1973.
Í dag er Minneapolis-Moline
hluti af AGCO sem er stærsti
framleiðandi landbúnaðartækja í
Bandaríkjunum en AGCO keypti
White árið 1991.
Gult var einkennislitur
Minneapolis-Moline frá upphafi
og ekki er vitað til að eintak af
einum slíkum hafi ratað til Íslands.
Minneapolis Moline – fyrsti traktorinn
með sígarettukveikjara í mælaborðinu
Utan úr heimi
Bloomberg:
Samdrætti spáð í sölu tækja
til landbúnaðar á árinu 2015
− móðurfélag John Deere í Bandaríkjunum dregur saman seglin
Case IH Magnum 380 CVX:
Valinn traktor ársins 2015 á EIMA
Case IH Magnum 380 CVX
var útnefndur „Tractor of
the Year 2015“ á alþjóðlegu
EIMA landbúnaðar- og
garðyrkjusýningunni sem haldin
var í Bologna í Frakklandi í
október 2014.
Val á dráttarvél eða traktor
ársins fór í fyrsta sinn fram á
EIMA árið 1998. Eru verðlaunin
viðurkenning á tækniframförum
í landbúnaðartækjaframleiðslu.
Í dómnefndinni voru 23 óháðir
landbúnaðarblaðamenn frá
landbúnaðartímaritum í 23 löndum
og kusu þeir Case IH Magnum 380
CVX sem dráttarvél ársins 2015.
Í úrskurði dómnefndar sagði m.a.
að Case IH Magnum hefði allt sem
þyrfti til að vera útnefnd dráttarvél
ársins, ekki aðeins fyrir bændur í
Evrópu heldur um allan heim. Vakti
stiglausa CVX skiptingin ekki
síst hrifningu dómnefndarmanna.
Einnig Rowtrack beltakerfi sem
hægt er að fá með vélinni og dreifir
þunganum. Veldur það mun minna
raski en þekkist þegar dráttarvélar
eru á venjulegum hjólabúnaði. /HKr.
Móðurfélagið Deere & Co í
Bandaríkjunum, sem er stærsti
framleiðandi landbúnaðartækja
í heiminum og framleiðir m.a.
John Deere-dráttarvélarnar, spáir
samdrætti í tækjasölu á árinu
2015.
Er samdráttarspáin byggð á
lækkandi verði á korni sem hefur
fallið um 50% og sojabaunum
sem fallið hafa í verði um 40%. Er
því spáð að meðaltekjur bænda í
Bandaríkjunum dragist saman um
14% á milli ára.
Samkvæmt frétt Bloomberg
Business spáir samsteypan nú að
nettó tekjur verði 1,19 milljarðar
dollara sem er talsvert undir þeim
2,19 milljörðum dollara sem er
meðaltal í spám 20 sérfræðinga fyrir
Bloomberg. Leiddi nýja spáin strax
til 3,9% verðfalls hlutabréfa í Deer
& Co.
Mestum samdrætti spáð í sölu
stórra dráttavéla
Er þar einkum tekið til sölu á stórum
og fullkomnum landbúnaðartækjum,
eins og 300 hestafla Deere 8R sem
er m.a. með sjálfstýringu sem
byggir á gervihnattaleiðsögukerfi.
Hefur Deere & Co þegar dregið
úr afkastagetu sinni og sagt upp
hundruðum starfsmanna. Reiknar
fyrirtækið með að salan dragist
saman um 15% á yfirstandandi ári.
John Deere söluhæsta tegundin í
Bretlandi á annan áratug
Þess má geta að John Deere hefur
um 15 ára skeið verið söluhæsta
dráttarvélartegundin í Bretlandi
og lengst af með um og yfir 30%
markaðshlutdeild. Á hæla John Deer
hefur komið New Holland og Massey
Fergusson hefur verið að fikra sig
upp í þriðja sætið þar sem Case IH
hefur líka verið mjög öflugt merki.
Er þetta gjörólíkt því sem verið
hefur á íslenska markaðnum þar
sem John Deere-nafnið er sjaldséð
í sölutölum en Massey Fergusson
söluhæsta tegundin. Á eftir þessum
risum á breska markaðnum koma
Claas, Kubota, Valtra, Deutz-Fahr,
McCormick, Landini og JCB.
Þótt landbúnaðartækjaframleiðsla
Deere & Co sé að dragast saman,
þá er staðan ekki alvond fyrir
samstæðuna á öðrum sviðum.
Þannig fer salan á tækjum fyrir
byggingageirann vaxandi í takt
við batnandi efnahagsástand í
Bandaríkjunum. /HKr.
Hér er Case IH Magnum á beltum sem vöktu hrifningu dómnefndar.
Það er einkum spáð samdrætti í sölu á allra stærstu dráttarvélunum frá John
Mynd / Deere & Co.