Bændablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Lambhúshetta
PRJÓNAHORNIÐ garn@garn.is
Sá íslenski siður að láta börn sofa
úti nánast frá fæðingu kemur
útlendingum oft spánskt fyrir
sjónir.
Hins vegar eru börnin vel og
hlýlega klædd og þetta herðir þau
og styrkir.
Lambhúshettan góða er ein af
þeim flíkum sem gera þetta mögulegt
og ættu öll börn að eiga eina svona.
Þessi uppskrift er góð hvað það
varðar að loka vel yfir eyrun og hún
vex með barninu.
Efni:
Baby star frá Kartopu 1 dokka ( til í 5 litum á www.
garn.is) þar getið þið líka séð útsölustaðina víða um
land.) Við notuðum bleika litinn fyrir þessa dömu.
Stærð: 6 mánaða, 1 árs, eins og hálfs árs og 2ja ára.
Prjónið gefur vel eftir, þess vegna endist húfan lengur.
Hringprjónn nr 3,5 – 4 eftir því hver fast er prjónað.
Sl = slétt prjón.
Br = brugðið prjón.
Sm= sentimetrar.
Lambhúshettan:
Fitjið laust upp með hringprjóninum 192-200-208-
216 L og tengið í hring.
Prjónið 4 sl 4 br L 5- (5,5) -6 -(6,5) sm.
Þá kemur úrtaka: 2 sléttar saman tvisvar yfir
sléttu lykkjurnar 4 brugðnar. (fallegra er að taka L
óprjónaða, prjóna næstu slétt og steypa óprjónuðu
lykkjunni yfir og taka síðan næstu 2 saman)
Næsta umferð er prjónuð slétt yfir slétt og brugðið
yfir brugðið. þ.e. 2 sl 4 br.
Því næst eru prjónaðar 2 sl yfir sléttu lykkjurnar og 2
brugðnar saman tvisvar .
Þá eiga að vera á prjóninum 2 sl og 2 br. alls 96-100-
104-108 l.
Prjónið nú 4-4,5-5-5,5 sm 2sl og 2 br.
Nú eru felldar af miðjulykkjurnar undir hökunni
16-18-18-20 L og haldið áfram að prjóna 2 sl 2 br
fram og til baka.
Takið úr í byrjun umferðar 2,1,1 L sitt hvorum megin,
þá eiga að vera 72-74-78-80 L á prjóninum.
Prjónið nú 2 sl og 2 br fram og til baka 11-12-13-14
sm. frá affellingunni undir hökunni.
Nú eru fitjaðar upp 16-18-18-20 L á móti þar sem
áður voru felldar af jafn margar lykkjur og prjónað
í hring 2 sl og 2 br.
Prjónað þannig í hring 2-3-3,5-4 sm.
Þá eru brugðnu lykkjurnar teknar tvær saman og
sléttu lykkjurnar prjónaðar eins og áður.
Prjónað áfram í hring 2 sl og 1 br 2-3-3,5-4 sm.
Þá eru 2 sléttu lykkjurnar prjónaðar saman og prjónað
áfram 1 sl og 1 br 2-3-3,5-4 sm.
Þessu næst eru prjónaðar saman 2 l allan hringinn.
Prjónuð 1 umferð slétt slitið frá og endinn dreginn
gegnum lykkjurnar sem eftir eru og saumaður fastur.
Nú eru teknar upp lykkjurnar kringum andlitið og
prjónað 2 sl og 2 br 6-7-7,5-8 umferðir.
Fellt laust af og gengið frá öllum endum.
Búinn til dúskur og settur á ef vill.
Inga Þyri Kjartansdóttir
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 2
4 1 8
7 4
5 6 1
8 2
3 9
6 5
7 8 1 2
5 4 9
Þyngst
8 6 7
7 9
2
5 3 1
3 8 2 9
1 4
5 7 1 6
4 5 3
1 6 3 5
9 5 4
3
3 2 5
7 4 2
1 5 6 4 8
9 7 6
3 5 8
4
2 4 6
2 9
8 7 2
6 7 4 5
8 3
9 4
5 2
5 6 7 2
7 2 9
4 1
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Meira eða minna í heyskap í allt sumar
Fyrsta minning Björgvins Daða
er frá því að hann var að læra að
hjóla og klessti á tré. Uppáhalds
dýrið hans eru holdanaut enda
getur hann vel hugsað sér að
verða bóndi þegar hann verður
stór.
Nafn: Björgvin Daði Harðarson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Efri-Ey 1.
Skóli: Kirkjubæjarskóli á Síðu.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Holdanaut.
Uppáhaldsmatur: Kjötsúpa.
Uppáhaldshljómsveit: Avanged
Sevenfold.
Uppáhaldskvikmynd: Fast and the
furious.
Fyrsta minning þín? Ég var að læra
að hjóla og klessti á tré.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Nei.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Bóndi, bifvélavirki eða
bílasprautari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Sleðaferð með pabba
og Viðari frænda.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Sóknarskrift.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Ég var meira eða minna í
heyskap í allt sumar.
Umsókn um orlofsdvöl
Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um:
Umsóknina skal senda fyrir 20. mars nk.
rafrænt á netfangið ho@bondi.is
eða á póstfang Bændasamtaka Íslands:
Bændahöllin v/Hagatorg,
107 Reykjavík, merkt Orlofsdvöl sumarið 2014
Sumarið 2015
Nafn umsækjanda Kennitala
Heimilisfang Símanúmer
Undirskrift félaga og dagsetning
Póstnúmer og staður
Hefur þú áður fengið úthlutað orlofsdvöl í
sumarhúsi hjá Bændasamtökunum?
Já Nei
Orlofsdvöl að Hólum - Tímabilið:
Orlofsdvöl á Flúðum - Tímabilið:
Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um orlofsdvöl í húsunum að Hólum í
Hjaltadal og á Flúðum, Hrunamannahreppi sumarið 2015. Það gildir fyrir félaga í
búnaðarsamböndum og/eða búgreinafélögum sem eiga aðild að BÍ – Frestur til að skila
inn umsóknum rennur út 20. mars 2015.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 26. febrúar