Bændablaðið - 10.09.2015, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015
Ferðaþjónustufyrirtækið Bus-
travel Iceland, sem áður kenndi
sig við Þingvallaleið, býður ferða-
mönnum sérsniðnar ferðir í fjár-
réttir þetta haustið. Í bæklingi
sem fyrirtækið hefur útbúið er
sjónum beint að erlendum ferða-
mönnum þar sem þeim er boðið að
hitta íslenska bændur og kynnast
réttastörfunum.
Í boði eru fimm dagsetningar,
12., 14., 19., 20. og 21. september
en allar eru ferðirnar á Suðurlandi.
Ferðin tekur á bilinu 9–10 klst. en
auk þess að fara í réttir munu ferða-
langarnir fara Gullna hringinn, á
Þingvelli, Gullfoss og Geysi. Verðið
er 13.500 kr. á mann en börn undir
15 ára fá ferðina á hálfvirði. Að sögn
forsvarsmanna Bustravel eru ferð-
irnar ekki síður ætlaðar innlendum
ferðamönnum en erlendum gestum.
Fjárréttir og ferðaþjónusta:
Skipulagðar
ferðir í réttir
Fréttir
Gárungum í Sveitarfélaginu
Árborg stendur greinilega ekki á
sama hvernig umgengnin er um
fjörurnar. Settu þeir upp skilti því
til áréttingar.
„Þetta skilti var ekki sett upp með
samþykki sveitarfélagsins og verður
tekið niður. Ég þekki ekki á hvers
vegum þetta skilti er né hver til-
gangur þess er, hvort þetta á að vera
grín eða alvara,“ segir Jón Tryggvi
Guðmundsson, framkvæmda- og
veitustjóri hjá Sveitarfélaginu
Árborg þegar hann var spurður út
í nýtt skilti í fjörunni á Stokkseyri
þar sem kemur m.a. fram að þar sé
„bannað að gera þarfir sínar“. Það
var Hulda Gísladóttir á Stokkseyri
sem tók myndina af skiltinu í
morgungöngu á dögunum með hund-
inn sinn í fjörunni, austast í þorpinu.
Nokkuð ljóst er að hér hafa einhverjir
húmoristar verið á ferðinni í ljósi
umræðunnar í sumar hvar ferðamenn
geri og geri ekki þarfir sínar. /MHH
Fjörurnar í Árborg:
„Bannað að gera
þarfir sínar“
Bændur í Evrópu mótmæla lækkun á afurðaverði:
Átök milli bænda og lögreglu í Brussel
Til ryskinga kom milli bænda og
óeirðalögreglu í Brussel fyrr í þess-
um mánuði þar sem bændur höfðu
komið sér fyrir á dráttarvélum til
að mótmæla lækkun á afurðaverði
fyrir mjólk og kjöt.
Um fjögur þúsund bændur frá
ýmsum löndum Evrópu komu saman
í Brussel fyrr í þessum mánuði til
að vekja athygli á og mótmæla
sílækkandi afurðaverði á mjólk
og kjöti. Mótmælin voru haldin á
sama tíma og landbúnaðarráðherra
Evrópusambandsins sátu fund til að
ræða stefnur í landbúnaðarmálum
sambandsins.
Í mótmælaskyni lokuðu bænd-
urnir meðal annars götu með
dráttarvélum og heyböggum sem
þeir kveiktu í. Sumir þeirra hentu
eggjum og skvettu mjólk yfir lög-
regluna sem meinaði þeim aðgang
að fundarbyggingu ráðherranna. Til
átaka kom og beitti óeirðalögreglan
háþrýstivatnsbyssum til að bægja
bændunum frá.
Evrópa að drukkna í mjólk
Afurðaverð á mjólk til bænda í mörg-
um löndum Evrópusambandsins hefur
lækkað um allt að 25% frá því á síð-
asta ári og er víða komið talsvert undir
framleiðslukostnað. Auk þess sem verð
á kjöti hefur farið lækkandi.
Meðal ástæðna fyrir lækkuninni
er krafa verslunarinnar um lægra
innkaupsverð, bann Rússa við inn-
flutningi á matvælum frá löndum
Evrópusambandsins og minni útflutn-
ingur á mjólk til Kína vegna aukinnar
innanlandsframleiðslu þar. Þá hafa
fjárfestar og stórfyrirtæki í vaxandi
mæli verið að kaupa sig inn í landbún-
aðinn. Hafa þau „dumpað“ verði til
verslana þannig að venjulegir bændur
á viðkomandi landsvæðum geta ekki
keppt við þau. Neyðast þeir þá til að
gefast upp og selja bú sín.
Mjólkurframleiðsla í Evrópu
hefur aukist talsvert frá því að kvóti á
framleiðsluna innan ESB var lagður
af. Aukningin er reyndar svo mikil
að því er haldið fram að Evrópa sé
að drukkna í mjólk.
Langtímasamningar nauðsynlegir
Bændur á Bretlandseyjum hafa lengi
sakað stórmarkaði um að lækka verð á
mjólk til neytenda niður úr öllu valdi í
verðstríði sín á milli. Til þess að geta
haldið verðinu lágu til lengdar krefja
markaðirnir bændurna um lægra verð
og stundum svo lágt að það fer undir
framleiðsluverð. Verðlækkanir af
þessu tagi hafa leitt til gjaldþrota
þúsunda mjólkurbænda í löndum
Evrópusambandsins undanfarin ár.
Meðal hugmynda sem komið
hafa fram til lausnar er að bændur og
stórmarkaðir geri með sér langtíma-
samninga um afurðaverð til bænda
og útsöluverð til neytenda. Bresk
stjórnvöld hafa einnig uppi áform
um að skylda upprunamerkingar á
landbúnaðarvörur til þess að þeir
neytendur sem það vilja geti valið
innlendar vörur og þannig stutt inn-
lenda framleiðslu. /VH
Lögreglumenn vopnaðir kylfum reyna að hefta för bænda sem mótmæltu landbúnaðarstefnu ESB í Brussel. Bændur mættu í mótmælin vopnaðir mjólk-
Mynd / photoblog.nbcnews.com
Mynd / lolsnaps.com
Kjarnafæði yfirtekur SAH Afurðir á Blönduósi:
Gefur glögga mynd af bágri stöðu
fyrirtækja á kjötmarkaði
Kjarnafæði mun taka við rekstri
Sölufélags Austur-Húnvetninga,
sem rekur SAH Afurðir á
Blönduósi. Kjarnafæði tekur
einnig við öllum fasteignum
félagsins.
Þetta var samþykkt á félagsfundi
hjá Sölufélaginu nýverið. Rekstur
SAH Afurða hefur verið þungur
undanfarin misseri og segir Björn
Magnússon, stjórnarformaður hjá
SAH Afurðum á Blönduósi, að þessi
lending hafi verið sú sem mest sátt
hafi verið um.
Mest sátt um þessa niðurstöðu
Stjórn félagsins hefur nú heimild
félagsfundar til að ganga til samninga
við Kjarnafæði um að það taki við
rekstri þess, en fyrir átti Kjarnafæði
tæplega helming í SAH Afurðum.
Lítilræði, eða um 3% hlutur, er í
eigu einstaklinga á svæðinu og hefur
Kjarnafæði yfirtökuskyldu gagnvart
þeim.
„Staðan hefur verið mjög erfið
undanfarin misseri og þessi niður-
staða var í raun eini kosturinn í
þeirri slæmu stöðu sem uppi var og
sá kostur sem mest sátt var um innan
félagsins,“ segir Björn. Hann segir
að innan skamms verði samkeppn-
iseftirliti tilkynnt um breytingar, en
forsenda þess að þær taki gildi er að
eftirlitið samþykki þær. „Við munum
tilkynna samkeppniseftirliti um
þessar breytingar þegar endanlega
verður búið að ganga frá málum,“
segir Björn.
Umframbirgðir og mikil
samkeppni
„Það er langt í frá að þetta sé gert
af því við viljum eiga allt og ráða
öllu, langt í frá. Það má segja að
þessi kaup séu miðuð við að sækja í
það hagræði sem mögulega liggja í
nánari samvinnu félaganna tveggja,“
segir Gunnlaugur Eiðsson, fram-
kvæmdastjóri Kjarnafæðis. Hann
segir að yfirtakan á SAH Afurðum
gefi glögga mynd af bágri stöðu
fyrirtækja á kjötmarkaði, en rekstur
fyrirtækja sem eiga allt sitt undir í
sölu á kjöti sé afar erfiður.
„Samkeppnin er mikil og það er
talsvert meira magn til af lamba-
kjöti en markaður er fyrir sem aftur
leiðir til þess að verð er lágt. Þetta
hefur heldur verið að ágerast, þótt
reyndar sé umfram magn milli ára
heldur minna nú í ár en í fyrra.
Markaðurinn er þó fullmettur og
rúmlega það.“
Höfum fulla trú á að
dæmið gangi upp
Gunnlaugur segir erfitt að sitja uppi
með birgðir, einkum af lambakjöti
sem hefur í för með sér mikinn kostn-
að, einkum í formi hárra vaxta, vextir
séu langt umfram það sem fyrirtæki
sem nánast eingöngu starfi á inn-
anlandsmarkaði geti unnið á, „svo
einfalt er það“.
Gunnlaugur segir að Kjarna-
fæðismenn sjái tækifæri í þeim
breytingum sem fyrirhugaðar eru,
og séu þau einkum fólgin í meiri
vinnslu á lambakjöti en verið hafi
fram til þessa á Blönduósi. „Þetta
er spennandi verkefni, en alls ekki
sjálfgefið að það gangi upp. Við
höfum þó fulla trú á að svo verði,“
segir hann. /MÞÞ
Úr sláturhúsi SAH Afurða. Mynd / HKr.