Bændablaðið - 10.09.2015, Side 29

Bændablaðið - 10.09.2015, Side 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015 á staðnum. Hann hefur þegar hafist handa við framkvæmdir, ætlar að breyta hlöðu sem fyrir er á bænum og koma þar fyrir 15 gyltum til að byrja með, en stefnir að því að á næstu 3–4 árum verði þær um 120 talsins. „Ég stefni að því að hafa allt tilbúið hér í október, en auðvitað má segja að ekki blási byrlega í svína- ræktinni um þessar mundir. Verkfall dýralækna á liðnu vori hefur sett sitt strik í reikninginn hjá svínabændum, verðið lækkaði töluvert í kjölfarið og það er á brattann að sækja. En svona er þetta bara, það skiptast á skin og skúrir í þessu eins og öðru og ég hafði tekið þessa ákvörðun áður en verkfallið hófst. Ætli ég haldi mig ekki við hana,“ segir Elmar. Byrjað með 7 búr og stefnir í 21 Elmar hefur um ævina verið mikill hundavinur og átt hunda frá ung- lingsárum. Hugmyndin að því að opna hundahótel kviknaði fljótlega eftir að hann kom norður. Hann tók gamalt fjós sem fyrir var á staðnum undir þá starfsemi, gróf það allt út og tók í gegn. „Þetta var heilmikil vinna, við gjörbreyttum fjósinu, klæddum veggi með pallíettum, máluðum og gerðum þetta eins fínt og hægt er,“ segir Elmar. Hann smíðaði einnig öll búrin sjálfur og sinkhúðaði þau. „Við byrjuðum með þessa starf- semi í júní í fyrra og þá með 7 hunda- búr, en við vorum farin að taka á móti hundum áður en við opnuðum formlega, það hafði spurst út að til stæði að opna hundahótel og fólk var farið að hringja og spyrjast fyrir,“ segir Elmar. Nú er hann með alls 15 búr á staðnum og stefnir að því að bæta 6 við í haust, þannig að alls verði þau 21. Þá er hann einnig að smíða útisvæði í tengslum við hvert búr þannig að hundarnir geti sjálfir farið út að vild. Þær framkvæmdir eru á lokastigi.„Það stendur líka til að byggja nokkuð stórt opið gerði á túni framan við bæinn,“ segir hann. Aðstaðan verður því eins og best verður á kosið. Tæplega 70% hundanna frá Akureyri Hundarnir sem dvelja á Hundahóteli Norðurlands koma víða að, en flestir eiga þeir heima á Akureyri, næsta þéttbýlisstað við Jórunnarstaði. Elmar segir að allt að 70% hund- anna komi þaðan. Húsvíkingar hafi í töluverðum mæli notað þjónustuna og fengið dvöl fyrir hunda sína á hótelinu. „Það er líka svolítið um að íbúar af Austurlandi hafi komið hingað með sína hunda á meðan þeir skella sér í frí, við höfum fengið hunda frá Reyðarfirði og Fárskrúðsfiði og það eru líka dæmi um að íbúar af höfuð- borgarsvæðinu kjósi að aka hundum sínum norður í gæslu á meðan þeir eru í burtu,“ segir Elmar. „Við reynum að hafa þetta heim- ilislegt og eins sveiganlegt og hægt er og kappkostum að veita persónu- lega þjónustu þannig að þetta verði sem þægilegast fyrir kúnnann,“ segir hann og bætir við að orðsporið sem af starfseminni fer sé besta auglýs- ingin. Flestir koma með hundana á hótelið en Elmar hefur líka af og til náð í dvalargesti sína til Akureyrar ef þannig stendur á hjá eigendum hundanna. Brennandi áhugi fyrir hundum „Þetta er mjög skemmtilegt, margir hundanna hafa komið hér oft og eru heimavanir, en svo bætast sífellt nýir í hópinn. Þetta eru skemmtileg- ir karaterar og mann langar næstum að eiga annan hvern hund sem hing- að kemur,“ segir Elmar. Vissulega sé mjög bindandi að starfrækja hundahótel og ekki mikið svig- rúm til að bregða sér af bæ nema í örskamma stund í einu. „Þetta er auðvitað mjög bind- andi, maður er við þetta frá morgni til kvölds og eflaust á þetta starf ekki við alla, það þarf að hafa brennandi áhuga fyrir hundum.“ Dagurinn byrjar á því að hleypa þarf hundun- um út, hverjum á fætur öðrum, fara í gönguferðir, gefa þeim að borða og hirða um þá, þrífa búr, teppi og bæli sem þeir liggja á. „Það skortir ekki verkefnin.“ Met um verslunarmannahelgi Hótelið var opnað í júní í fyrra og hefur starfseminni vaxið fiskur um hrygg á því rúma ári sem liðið er. Alls nemur aukningin um 150% þegar saman eru borin sumrin 2014 og 2015. Enda stendur til að stækka og Elmar hefur þegar hafist handa við að bæta við plássi fyrir fleiri búr. Hann stefnir að því að búrin verði orðin ríflega 20 þegar líður á haustið. Um verslunarmannahelgina síðustu voru til að mynda alls 30 hundar í gæslu á Jórunnarstöðum og er það met. Þá voru hundar einnig hýstir inni á heimili Elmars. „Það var ansi líflegt hjá mér þá helgi,“ segir hann og viðurkennir að hann eigi erfitt með að neita þegar beðið er um pláss. „Maður reynir að gera allt, það er oft erfiðara fyrir fólk að fá pössun fyrir hundinn sinn en börnin, það er bara svoleiðis.“ Annar bragur í sveitinni en á Suðurnesjum Elmari líkar vel í Eyjafjarðarsveit en segir umhverfið allt með öðrum hætti en á æskuslóðum sínum á Suðurnesjum. Há fjöll allt um kring, mikill gróður og kyrrð. „Þetta er bara allt öðru vísi en það sem ég er vanur, annað lands- lag og mikil kyrrð, það er ágætt að losna við rokið og rigninguna og þann eril sem einkenndi gömlu heimabyggðina. Nágrannarnir eru alveg hreint frábærir og hafa reynst mjög vel, eru boðnir og búnir að aðstoða með alla skapaða hluti og hafa lánað tæki og annað. Það má segja að við höfum kastað okkur beint út í djúpu laugina þegar við fluttum hingað, alls óvön búskap og sveitastörfum, en allt hefur blessast þó stundum hafi nú gengið á ýmsu. Það hafa engin stóráföll orðið og almennt gengið mjög vel,“ segir Elmar. /MÞÞ Líf og fjör hjá hundunum á Jórunnarstöðum. Heimasmíðað rúm fyrir hótelgesti á Hundahóteli Norðurlands. limtrevirnet.is Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes Söluskrifstofa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur Netfang - sala@limtrevirnet.is Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 Þarft þú að gefa fé? -við framleiðum þrjár útfærslur af gjafagrindum Gjafagrind til notkunar úti eða á taði, fyrir allt að 30 kindur. · Létt og meðfærileg · Sterk · Sauðfé brýtur ekki hornin á grindinni Rúllugrindur fyrir stórgripi · Frábær hönnun · Mjög einföld í notkun · Sterk og meðfærileg Gjafagrind til notkunar innandyra, fyrir allt að 70 kindur. · Þrjár gerðir · Sterk · Auðveld í notkun · Sérstakar slæðigrindur · Sauðfé brýtur ekki hornin á grindinni Elmar Þór með þrjá „Pug“-hvolpa sem komu í heiminn 1. júlí síðast- liðinn.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.