Bændablaðið - 10.09.2015, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2015
Erna Kristín Hauksdóttir er hótel-
stjóri á Hótel Kjarnalundi, nýju
hóteli sem opnað var fyrir gestum
22. júní síðastliðinn í Kjarnaskógi
við Akureyri.
„Það hefur gengið mjög vel hjá
okkur frá því við opnuðum og það
er ekki síst að þakka góðum og
samhentum hópi starfsfólks. Það
er mikið lán að hafa á að skipa svo
frábæru starfsfólki, hér er valinn
maður í hverju rúmi og það skiptir
sköpum,“ segir Erna.
Starfsemin fer vel af stað, hót-
elið er vel bókað út sumarið.
„Staðsetningin skapar okkur nokkra
sérstöðu, við erum umvafin fallegri
náttúru sem gestir kunna vel að meta,
þeir endurnærast á sál og líkama í
námunda við afslappað umhverfi
skógarins.“
Erna Kristín flutti til Akureyrar
á liðnu vori til að taka að sér stjórn
hins nýja hótels. Segja má að hún
sé að leita í heimaslóðir á nýjan
leik eftir nokkurra ára fjarveru, en
hún ólst upp á Skeiði, næst innsta
bænum í Svarfaðardal. Þar var í
hennar barnæsku rekið loðdýrabú,
bæði með refi og minka. Samhliða
því var einnig rekið sauðfjárbú eða
þar til riðuveiki kom upp í dalnum
sem olli því að fé var skorið niður,
m.a. á Skeiði, og bændur þar tóku
upp nýja búgrein, loðdýrarækt. Síðar
þegar halla fór undan fæti í þeirri
grein brugðu foreldrar hennar búi
og fluttu til Dalvíkur.
Beið ekki skaða af dvölinni á
heimavistinni
„Þegar ég horfi til baka var þetta
yndislegur tími og ég er þakklát
fyrir að hafa alist upp í sveit, en man
samt að mér þótti það ekki sérlega
skemmtilegt á miðju gelgjuskeiði.
Þá fannst manni þetta dálítið of
afskekkt,“ segir Erna Kristín.
Á þeim tíma sem hún var að alast
upp sóttu börnin grunnskólanám í
Húsabakkaskóla. Heimavist var
þá enn við lýði og börnin dvöldu
í skólanum frá mánudegi til föstu-
dags. „Ótrúlegt en satt, flestir komu
heilir út úr þeirri vist,“ segir hún, en
heimavistir hafa nú verið aflagðar
alls staðar á landinu. „Mér líkaði
bara vel að vera á heimavist og hlaut
ekki skaða af, þvert á móti kenndi
það mér margt, eins og að fylgja
reglum og taka tillit til annarra, það
er ágætt að læra það ungur.“
Með bleikt naglalakk í
fæðingarorlofið
Erna Kristín segir að hún hafi sterkar
taugar til sveitarinnar.
„Það blundar alltaf í mér svolítil
sveitastelpa, ég velti því oft fyrir
mér að gaman væri að prófa á ný
að búa í sveit. Besta vinkona mín
býr í Reykjadal og þangað kemst
ég á hverju vori í fæðingarorlof eins
og við köllum það þegar ég mæti í
sauðburðinn. Háannatíminn í sauð-
fjárbúskap, sauðburður, göngur og
réttir er tími sem ég kann vel að meta
og reyni hvað ég get að taka þátt í.
Síðasta vor mætti ég í hótelgallanum
með bleikt naglalakk og svissaði mér
beint inn í fjárhús eftir að hafa skipt
um föt. Það er mjög hressandi og
endurnærir hvern mann sem tækifæri
hefur á að vera með.“
Flestir krakkar úr Svarfaðardal
fóru í 10. bekk til Dalvíkur, en
sá bekkur var ekki kenndur í
Húsabakkaskóla. Erna Kristín
valdi hins vegar að ljúka grunn-
skólagöngunni austur á Laugum í
Reykjadal, en þá leið hafði bróðir
hennar áður valið. Þar tók hún einnig
fyrsta árið í framhaldsskóla, en lauk
stúdentsprófi frá Framhaldsskólanum
á Húsavík árið 1995.
„Mig langaði að prófa eitthvað
nýtt, flestir fór til Dalvíkur og þaðan
til Akureyrar í skóla, en með því
að fara austur má segja að ég hafi
hoppað yfir Akureyri og hef aldrei
átt þar heima fyrr en ég flutti núna í
vor. Mér líkaði vel á Húsavík, þetta
voru frábær ár, við leigðum saman
nokkrir krakkar og skemmtum okkur
prýðilega öll framhaldsskólaárin,“
segir Erna Kristín.
Lærði bæði mannfræði og
sálfræði
Eftir stúdentspróf vann hún eitt ár
í Reykjavík, en hafði lítið haft af
höfuðborginni að segja fram að
því, farið þangað í heimsóknir 4–5
sinnum áður. Erna Kristín skráði
sig síðan í nám í mannfræði við
Háskóla Íslands og lauk BA-prófi
í greininni.
„Mannfræðin er áhugaverð og
skemmtileg grein, en ég vissi alltaf
að ég myndi ekki starfa við hana,
hún er hins vegar ágætis veganesti
út í lífið,“ segir hún. Því tók hún þá
ákvörðun að læra líka sálfræði og sá
fyrir sér að starfa sem sálfræðingur.
„Ég ætlaði að opna stofu, mér
fannst það heillandi tilhugsun að
reka eigin sálfræðistofu og vinna
frá 10 til 2,“ segir hún og brosir við
tilhugsunina.
Eftir að hafa einnig lokið
BA-prófi í sálfræði fór Erna Kristín
í meistaranám í félagssálfræði í
Amsterdam í Hollandi.
„Ég sótti þar um, fékk inngöngu,
pakkaði niður og fór út,“ segir hún,
en þetta var árið 2007. Allt á uppleið
og búið að fullvissa hana um að næg
verkefni á hennar sviði biðu á Íslandi
að námi loknu. Það fór á annan veg,
efnahagshrun haustið 2008 hafði í
för með sér að hvarvetna var skor-
ið niður og fátt um atvinnutækifæri
fyrir nýútskrifaða sálfræðinga.
„Menn hvöttu mig nú bara til að
halda mig úti, vera ekki að koma
heim, þangað væri ekkert að sækja.
Ég fór eftir þeim ráðum og leitaði að
vinnu úti,“ segir hún en m.a. starfaði
Erna Kristín Hauksdóttir, hótelstjóri á Hótel Kjarnalundi:
Spennandi verkefni að byggja upp nýtt hótel
„Ég er alsæl með að vera komin norður aftur, þannig að betra gerist það varla, að vera í skemmtilegri vinnu með frábæru fólki og hafa fjölskylduna í næsta nágrenni. Þetta er bara draumur í
dós,“ segir Erna Kristín sem stendur hér við afgreiðsluborðið á Kjarnalundi. Myndir / MÞÞ
„Þetta er spennandi verkefni og ég er þakklát fyrir það tækifæri sem bauðst við að byggja upp þennan hótelrekstur
frá grunni,“ segir Erna Kristín hótelstjóri.